Málfríður - 2016, Side 9

Málfríður - 2016, Side 9
Annar viðmælandi sagðist einnig vilja nýta tækni meira í sinni kennslu en taldi sig ekki geta það sökum skorts á tækjum við skólann. Því má telja líklegt að þeir viðmælendur sem nýta tæknina lítið myndu frekar nýta hana hefðu þeir betri fyrirmyndir varðandi tölvu- notkun í kennslu og gott tölvuaðgengi við skólann. Einnig virtust vera tengsl milli vinnustaðar og viðhorfa viðmælenda vegna þess að þeim mun tæknitengdari sem skólinn var því jákvæðari var kennarinn gagnvart tölvunotkun almennt. Tæknikennsla í kennaranámi Aðeins einn viðmælanda taldi sig hafa fengið góðan undirbúning í námi fyrir notkun upplýsingatækni í kennslu, en lengst er síðan sá kennari lauk námi. Aðrir viðmælendur töluðu um að hafa ekki fengið næga tæknikennslu í námi sínu, sem gæti verið ein ástæða fyrir neikvæðari viðhorfum þeirra. Þeir kennarar sem höfðu jákvæðari viðhorf störfuðu við tæknivædda skóla og hefur starfsumhverfið ef til vill leitt til betri tæknikunnáttu þeirra og um leið aukið jákvætt viðhorf gagnvart tækninotkun nemenda. Kostir og gallar við notkun tölvutækni í tungumála- námi Viðmælendur töldu helstu kosti tölvutækni vera þá að tæknin dýpkaði tungumálanám, gæfi kost á fjöl- breyttari verkefnum, yki möguleika nemenda með námserfiðleika, gerði kennsluna skilvirkari og stuðlaði að auknu sjálfstæði nemenda. Tölvunotkun nemenda fylgdu samt sem áður ýmsir gallar, að mati viðmæl- enda. Einn af þeim var sá að netið byði upp á aukið aðgengi áður skrifaðs efnis og yki þar með líkurnar á ritstuldi nemenda. Tölvuvæðingin hefði einnig, að mati viðmælenda, haft neikvæð áhrif á ritun og stafsetningu nemenda. Hún hefur leitt til styttingar orða og aukningar í notk- un skammstafana, með það að leiðarljósi að koma texta frá sér með fljótlegri hætti. Niðurstöður og umræða Þegar litið er til þess hversu mikilvæg tæknin virðist vera, er ekki að undra að flestir viðmælendur rann- sóknarinnar virtust nýta sér hana að einhverju marki. Öllum viðmælendum þótti einnig henta vel að nýta sér tækni í enskukennslu en skoðanamunur var þó á hversu mikil notkunin ætti að vera. „Skóli er ekki bara staður þar sem kennsla fer fram. Skóli er líka menningarleg stofnun þar sem ákveðnir starfshættir og orðræður eru við lýði og bera svipmót þess samfélags sem skólinn er hluti af, hefða sem þar ríkja“ (Hafþór Guðjónsson, 2012, bls. 14). Það er fjarri því að hægt sé að alhæfa um niðurstöður rannsókn- arinnar fyrir alla enskukennara í framhaldsskólum. Rannsóknin veitir hins vegar örlitla innsýn í skoðanir og notkun viðmælenda á tækni í kennslu ásamt því að vera vísbending um þá fjölbreytni í vinnulagi ensku- kennara hvað varðar tækninotkun. Heimildir Aðalnámskrá framhaldsskóla. (2011). Almennur hluti. Reykjavík: Mennta og menningarmálaráðuneytið Hafþór Guðjónsson. (2012). Kennaramenntun og skólastarf í ljósi ólíkra viðhorfa til náms. Netla - veftímarit um uppeldi og menntun. Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Sótt af: http://netla.hi.is/ greinar/2012/ryn/016.pdf Magndís Huld Sigmarsdóttir. (2014). Tölvustutt tungumálanám á framhaldsskólastigi : Tæknin sem stuðningstæki í enskukennslu. Meistararitgerð: Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Sótt af: http:// skemman.is/stream/get/1946/20122/45621/3/Magnd%C3%ADs _H._Sigmarsd%C3%B3ttir._M.Ed_ritger%C3%B0.doc._HP.pdf MÁLFRÍÐUR 9

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.