Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2020, Síða 4

Skessuhorn - 20.05.2020, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 20204 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Flýtum okkur hægt Nú er fjórðungur úr ári síðan ljóst var að ferðaþjónusta bæði hér á landi og víðs vegar um heiminn yrði fyrir áfalli. Veiran, sem fyrst varð vart undir lok síðasta árs, náði að breiðast út um allt og munu áhrif hennar marka dýpri spor í efnahag þjóða en þekkist á friðartímum. Ég er ekki í minnsta vafa um að íslendingar hafa fram til þess staðið sig vel í bar- áttunni við Covid. Frá miðjum mars og út apríl hafa langflestir verið á varðbergi, reynt að fara að reglum og forðast smit. Með hækkandi sól og tilslökun takmarkana 4. maí síðastliðinn mátti hins vegar merkja töluverða breytingu. Fólk var ekki lengur að passa sig, varúðarreglur gleymdust jafnvel, handabönd og rembingskossar tóku sig upp. Vissu- lega hefur nú mjög dregið úr smitum og því ástæða til bjartsýni. En þetta er ekki búið fyrr en það er búið. Kossaflensið verður að bíða að- eins. Þótt virk smit hér á landi séu sárafá, er lengi hætta á einu. Ég ætla þannig rétt að vona að enginn sýktur hafi verið í hópi fjögur hundr- uð sundlaugargesta í Laugardalslauginni aðfararnótt mánudags, þegar ákveðið var að slá í gríðarmikla sundveislu. Fólk gat ekki beðið lengur. En það var mjög svo skiljanlegt, svona erum við íslendingar. Hérlend stjórnvöld hafa nú gefið það út að stefnt verði á að ley- fa komu erlendra ferðamanna 15. júní. Það gera yfirvöld að sögn ef- tir ábendingar frá sóttvarnayfirvöldum, en þó með þeim skilyrðum að skimað verði fyrir veirunni hjá hverjum og einum og viðkomandi ekki leyft að hefja för um landið fyrr en niðurstaða liggur fyrir. En þrátt fy- rir það er ekki einhugur innan heilbrigðiskerfisins um þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar að opna landið svo fljótt. Það staðfesti yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans í samtali við Ríkisútvarpið á mánu- dagsmorgun. Hann sagði afdráttarlaust að þessi ákvörðun um að opna landið væri mjög umdeild. Margir af hans samstarfsfélögum væru hugsi yfir þessu og jafnvel reiðir að þetta skuli vera gert svo fljótt. Ég velti sömuleiðis fyrir mér hvort skynsamlegt sé að opna landið strax. Fyrir það fyrsta er vitað að veiran grasserar víða erlendis, þótt dregið hafi úr útbreiðslunni. Ekkert er því í hendi að ferðavilji fólks hingað til lands verði til staðar og enn meiri óvissa ríkir um vilja flugfé- laga til að hefja áætlunarflug hingað. Framtíð okkar eigin flugfélags er auk þess í bullandi óvissu. Erum við íslendingar ef til vill að flýta okkur of mikið? Ekki ósvipað og þessir fjögur hundruð sem taldir voru á sama tíma í Laugardalslauginni aðfararnótt mánudags? Öllum er ljóst að staða ferðaþjónustunnar er mjög þröng. Atvinnu- leysi og uppsagnir eru helstu fréttir úr þeim ranni, enda nær ekkert er- lent ferðafólk á landinu. En þrátt fyrir erfiðleika eru fjölmörg ferðaþjó- nustufyrirtæki sem hafa opið eða eru að fara að opna á næstu dögum til að þjónusta íslendinga sem ætla að verja sumrinu í að njóta eigin lands. Með því móti ætla þessi fyrirtæki að halda lífi á næstu mánuðum. Ég verð í hópi þeirra sem ætla að styðja íslenska ferðaþjónustu. En forsen- da fyrir að það takist að fá okkur íslendinga til ferðalaga, er sú að ekki breiðist út smit að nýju og að okkur verði óhætt á tjaldstæðum, vei- tingastöðum eða annarsstaðar. Um það þurfum við að vera þokkalega örugg. Ég tek því undir með þeim sem vilja að við förum okkur hægt í að galopna landið og bjóða með því móti hættunni heim. Vissulega veit ég að pressan frá hagsmunaaðilum er mikil, en hún má þó aldrei verða skynseminni yfirsterkari. Magnús Magnússon Vegagerðin áformar að skipta út vegstikum fyrir LED kantljós í Hvalfjarðargöngunum og setja upp nýtt myndbandsvöktunarkerfi. Gísli Eiríksson, forstöðumaður jarðgangadeildar Vegagerðarinn- ar, segir að hefðbundnar vegstik- ur séu nú í göngunum. Þær verða fljótt skítugar vegna mikillar ryk- mengunar og sjást ekki vel þegar ekið er með lágu ljósin. „Ákveðið hefur verið að setja LED ljós með 25m millibili á kantana sem leiða umferðina vel. Slík ljós eru í Norð- fjarðargöngum og hefur þeim ver- ið mjög vel tekið. Ljósin gagnast einnig sem rýmingarlýsing ef reyk- ur kemur í göngin. Búið er að opna tilboð í verkið og var Orkuvirki ehf. Reykjavík með lægsta tilboð. Áætl- að er að hefja verkið í september á þessu ári, eftir mesta umferðartím- ann, og á verkinu að ljúka í nóvem- ber,“ segir Gísli. mm Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð- arsveitar var kallað að járnblendi- verksmiðju Elkem á Grundar- tanga á fjórða tímanum á fimmtu- dag þegar skaut brotnaði á einum ofninum. „Það var enginn eldur en það myndaðist ákveðið hættu- ástand. Við erum búnir að tryggja það og ástandið er stöðugt,“ sagði Jens Heiðar Ragnarsson slökkvi- liðsstjóri skömmu eftir útkall í sam- tali við Skessuhorn. Upptök reyksins mátti rekja til skautbrots á einum af þremur ofn- um verksmiðjunnar. „Það brotn- aði skaut á einum ofninum og kom svartur reykur upp á fjórðu hæð- ina,“ segir Einar Þorsteinsson, for- stjóri Elkem, í samtali við Skessu- horn. „Að kalla til slökkvilið er hluti af stöðluðum viðbrögðum. Sem betur fer var þetta ekkert annað en góð æfing,“ segir Einar, en slökkvi- liðið var á vakt við Elkem fram eftir fimmtudagskvöldi, til öryggis. Engin slys urðu á fólki og að sögn Einars urðu engar skemmdir á búnaði verksmiðjunnar. kgk Félagar í sjóbjörgunar- flokki Björgunarfélags Akraness voru á mánu- dagsmorgun kallaðir til aðstoðar vélarvana báti, Kofra-íS, sem staðsett- ur var um sjö mílur frá Akranesi. Farið var á björgunarbátnum Jóni Gunnlaugssyni í útkallið. Ferðin gekk að óskum, Kofri var tekinn í tog og komið á Akranes í há- deginu. Veður var með besta móti, stilltur sjór og sól. mm Fræðslunefnd Borgar- byggðar lagið til á fundi 16. apríl síðastliðinn að tvö- falda frístundastyrk í Borg- arbyggð á árinu úr 20 þús- und krónum í 40 þúsund krónur á ári. íþrótta- og Ólympíusamband íslands hafði þá sent bréf þess efnis að íþrótta- og ungmenna- félög á landsvísu horfi fram á mikla erfiðleika í rekstri vegna Covid-19 veirunn- ar. Á fundi byggðarráðs 22. apríl var fjallað um málið og lagt til að sveitarstjórn samþykki tillöguna og að hækkunin verði til frambúðar. Sveitar- stjórn samþykkti á fundi 14. maí tillögu byggðarráðs að hækka frístundastyrkinn til frambúðar. Geta þeir sem þegar hafa nýtt sér styrkinn á árinu sótt um aftur til að fá mismuninn upp í 40 þús- und krónur fyrir árið. Frí- stundastyrkurinn er ætlað- ur börnum og ungmennum á aldrinum 6-18 ára til að hvetja þau til að taka þátt í frístundastarfi. arg Járnblendiverksmiðja Elkem á Grundartanga. Ljósm. úr safni/ kgk. Slökkviliðið kallað að járnblendinu Sóttu vélarvana bát LED ljós sambærileg og eru í Norðfjarðargöngum verða í haust sett í Hval- fjarðargöngin. LED ljós koma í stað vegstika í Hvalfjarðargöngum Tvöfalda frístundastyrk í Borgarbyggð

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.