Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 202026 Pennagrein Það eru og hafa alltaf verið for- réttindi að fá að vera félagi í ung- mennafélagi. Ég undirritaður hef haft töluverða aðkomu að starfi Umf. Snæfells í tugi ára. Mest hef ég starfað með knattspyrnudeild- inni, fyrst sem leikmaður og síðar þjálfari. Þá frjálsíþróttadeildinni, fyrst sem þátttakandi og síðar þjálf- ari og nú síðustu árin með körfu- boltadeildinni, áður leikmaður og síðan stjórnarmaður. Eftir námsár og átta ára kennslu við Héraðsskólann í Reykholti kom ég heim í Hólm 1984. Mjög fljót- lega fór ég að láta mig starfið hjá Snæfelli skipta. Við Lára eignuð- umst fjóra krakka sem öll ákváðu að stunda hvers kyns íþróttir. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það sé mjög farsælt fyrir foreldra að taka sem virkastan þátt í félags- starfi barna sinna. Þeirri skoðun minni hef ég fylgt mjög eftir og svo mikið að krökkunum mínum hefur örugglega á einhverjum tímapunkti fundist nóg um. Ég tók þátt í starfi frjálsíþrótta- adeildarinnar sem formaður stjórnar á árunum 1996-2008. Á þessum árum voru innanfélagsmót, héraðsmót og landsmótin stærstu viðburðirnir og það var ávallt mjög gaman. Þáttakendur í Snæfelli og HSH voru til fyrirmyndar og stóðu sig frábærlega vel. Krakkarnir okkar unnu mörg afrekin á þessum lands- mótum. Sannarlega var það fyrir- myndarbikarinn sem HSH fékk sem stendur upp úr og það nokkr- um sinnum. Árið 2009 var tekin sú ákvörð- un að sameina stjórnir kvenna og karla í meistaraflokkum Snæfells í körfubolta. Fram að þeim tímama voru öflugar stjórnir í karladeild- inni. Hjá stelpunum tóku nokkrir foreldrar sig til og stýrðu starfinu. Þjálfarar stelpnanna, Högni Frið- rik og Baldur, sýndu starfinu mik- inn metnað og öll þessi mikla sam- vinna skilaði liðinu upp í efstu deild hjá stelpunum. Ég er þeirrar skoðunar að á þess- um tímapunkti hafi þetta verið hár- rétt ákvörðun. Með þessu nýtum við betur mannauð okkar til stjórn- arsetu, einfölduðum ýmis praktísk atriði og nýtum peningana enn bet- ur. Við tókum strax þá ákvörðun að hafa áfram metnað í þjálfarateym- inu. Árin þarna á undan höfðum við verið mjög heppin með þjálfara Ingi Þór Steinþórsson kom í Hólminn og stóð vaktina í 10 ár eða allt til vorsins 2019. Með hon- um fengum við hina ýmsu þjálf- ara til aðstoðar og tel ég mig enga móðga þótt ég nefni hér tvo þeirra, þ.e. Baldur Þorleifsson og Gunn- laug Smárason, en þeir hafa sýnt félagi okkar einstaka hlýju og gera enn. Hafið bestu þakkir fyrir það kæru vinir. Þá vil ég senda Inga Þór sérstakar kveðjur og þakka honum fyrir allt og allt. Það var algjör unun að fá að vinna með slíkum meistara. Gangi þér og þinni fjölskyldu áfram vel, með góðum kveðjum og þakklæti frá Snæfellsfjölskyldunni. Mér finnst við hæfi að renna yfir alla þá titla sem að hóparnir okk- ar skiluðu í Hólminn undir stjórn Inga Þórs, aðstoðarþjálfara og okk- ar í stjórninni. Við skulum aldrei gleyma öllum þeim gleðistundum sem að við veittum okkur sjálfum sem og stuðningsfólki úti um allan heim. Á árunum 2009-2018 náðu liðin okkar að vinna alla titla einu sinni í meistaraflokki karla og kvenna. Það er meira en mörg stærri félög hafa náð að afreka. Karlaliðið náði eftir- farandi árangri: Bikarmeistarari í unglinga- flokki karla, Snæfell/Skallagrímur (2009-2010) íslands- og bikarmeistarar karla, Snæfell (2009-2010) Deildarmeistarar - Lengjubikar- meistarar - Meistarar meistaranna í mfl. karla, Snæfell (2010-2011) Kvennaliðið náði eftir- farandi árangri: Bikarmeistari í unglingaflokki kvenna (2010-2011) Bikarmeistari í unglingaflokki kvenna (2011-2012) Meistarar meistaranna - Lengju- bikarmeistarar kvenna 2012-2013 Deildarmeistarar í Domino‘s deild kvenna og íslandsmeistarar 2013-2014 Deildarmeistarar í Domino‘s deild kvenna, íslandsmeistarar og Meist- arar meistaranna 2014-2015 Bikarmeistarar Poweradebikars kvenna, íslandsmeistarar, Meistar- ar meistaranna 2015-2016 Deildarmeistarar, Meistarar meist- aranna 2016-2017 Á þessum tímamótum í lífi mínu hef ég ákveðið að stíga til hliðar. Það er hverju ungmennafélagi hollt að fá nýtt fólk til starfa. Ég lái eng- um að halda því fram að menn eins og ég hafi dvalið allt of lengi við stjórnvölinn. En þar sem að krakk- arnir mínir hafa haft svo ótrúlega gaman af þessu sporti þá hef ég einnig elskað að vera með þeim í liði og það held ég að sé ein af betri uppskriftum að farsælu uppeldi eins og ég hef áður komið að. Allir saman í liði! Ég vil þakka öllum þátttakendum, innan vallar sem utan, foreldrum, stuðningsfólki, styrktaraðilum og síðast en ekki síst frábæru stjórn- arfólki fyrir skemmtilegt og gef- andi samstarf. Þá vil ég sérstaklega þakka Davíð Sveinssyni fyrir hans miklu vinnu fyrir Snæfell í gegn um árin. Það er töluvert léttara að sinna for- mennsku í hvaða félagi sem er ef að gjaldkera starfið er í lagi og þannig hefur það verið hjá meistara Dabba alla tíð. Aðalstjórn Snæfells sendi ég mínar bestu þakkarkveðjur sem og formanni og stjórn HSH. Öflugt samstarf yngri flokka og meistaraflokka er gríðarlega mik- ilvægt hverju félagi. Þeirri vinnu hefur Jón Þór Eyþórsson formaður og stjórn hans sinnt með frábærum hætti og ber að þakka það. Þá vil ég senda mínar bestu þakkir til Vignis, Arnars og starfsfólks íþróttamið- stöðvarinnar í Stykkishólmi. íbú- ar sem og bæjaryfirvöld í Stykkis- hólmi - bestu þakkir fyrir ykkar öfl- uga stuðning hingað til. Þá vil ég einnig senda stjórnar- fólki KKí innilegar kveðjur með þakklæti fyrir frábært samstarf. Öll- um öðrum körfuboltaliðum þakka ég samstarfið. Ég hef notið hverrar stundar í þessu félagsstarfi og vona svo innilega að það hafi átt við okk- ur fleiri. Ég hvet alla til að styðja unga fólkið til áframhaldandi þátttöku í einhverju því sem ungmennafélög- in bjóða upp á á sínu heimasvæði. Það skiptir í raun litlu hvert við- fangsefnið er. Eina sem við skulum kappkosta, á hvaða aldri sem að við erum, er að allir séu að gera eitt- hvað – við skiptum öll máli. Ein- göngu þannig höldum við áfram að efla okkar mikilvæga starf og gera lífið ennþá skemmtilegra. Ég skora á alla að styðja áfram við öflugt ungmennafélagsstarf á Islandi. Brostu - þá er líklegra að þú fáir bros á móti. Takk fyrir mig, Gunnar Svanlaugsson. Stuðningsmenn Snæfells á pöllunum í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá. Horft til baka Gunnar Svanlaugsson. Ljósm. úr safni/ sá. Gunnar Svanlaugsson ásamt Láru Guðmundsdóttur og dætrum þeirra Gunnhildi og Berglindi með Íslandsmeistarabikarinn. Ljósm. úr safni/ þe. Karlalið Snæfells sem varð Íslandsmeistari 2009-2010. Ljósm. úr safni/ þe. Snæfellskonur fagna bikarmeistaratitli í Laugardalshöll. Ljósm. úr safni/ sá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.