Skessuhorn - 20.05.2020, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 202026
Pennagrein
Það eru og hafa alltaf verið for-
réttindi að fá að vera félagi í ung-
mennafélagi. Ég undirritaður hef
haft töluverða aðkomu að starfi
Umf. Snæfells í tugi ára. Mest hef
ég starfað með knattspyrnudeild-
inni, fyrst sem leikmaður og síðar
þjálfari. Þá frjálsíþróttadeildinni,
fyrst sem þátttakandi og síðar þjálf-
ari og nú síðustu árin með körfu-
boltadeildinni, áður leikmaður og
síðan stjórnarmaður.
Eftir námsár og átta ára kennslu
við Héraðsskólann í Reykholti kom
ég heim í Hólm 1984. Mjög fljót-
lega fór ég að láta mig starfið hjá
Snæfelli skipta. Við Lára eignuð-
umst fjóra krakka sem öll ákváðu
að stunda hvers kyns íþróttir. Ég
hef alltaf verið þeirrar skoðunar að
það sé mjög farsælt fyrir foreldra
að taka sem virkastan þátt í félags-
starfi barna sinna. Þeirri skoðun
minni hef ég fylgt mjög eftir og svo
mikið að krökkunum mínum hefur
örugglega á einhverjum tímapunkti
fundist nóg um.
Ég tók þátt í starfi frjálsíþrótta-
adeildarinnar sem formaður
stjórnar á árunum 1996-2008. Á
þessum árum voru innanfélagsmót,
héraðsmót og landsmótin stærstu
viðburðirnir og það var ávallt mjög
gaman. Þáttakendur í Snæfelli og
HSH voru til fyrirmyndar og stóðu
sig frábærlega vel. Krakkarnir okkar
unnu mörg afrekin á þessum lands-
mótum. Sannarlega var það fyrir-
myndarbikarinn sem HSH fékk
sem stendur upp úr og það nokkr-
um sinnum.
Árið 2009 var tekin sú ákvörð-
un að sameina stjórnir kvenna og
karla í meistaraflokkum Snæfells í
körfubolta. Fram að þeim tímama
voru öflugar stjórnir í karladeild-
inni. Hjá stelpunum tóku nokkrir
foreldrar sig til og stýrðu starfinu.
Þjálfarar stelpnanna, Högni Frið-
rik og Baldur, sýndu starfinu mik-
inn metnað og öll þessi mikla sam-
vinna skilaði liðinu upp í efstu deild
hjá stelpunum.
Ég er þeirrar skoðunar að á þess-
um tímapunkti hafi þetta verið hár-
rétt ákvörðun. Með þessu nýtum
við betur mannauð okkar til stjórn-
arsetu, einfölduðum ýmis praktísk
atriði og nýtum peningana enn bet-
ur. Við tókum strax þá ákvörðun að
hafa áfram metnað í þjálfarateym-
inu. Árin þarna á undan höfðum við
verið mjög heppin með þjálfara
Ingi Þór Steinþórsson kom í
Hólminn og stóð vaktina í 10 ár
eða allt til vorsins 2019. Með hon-
um fengum við hina ýmsu þjálf-
ara til aðstoðar og tel ég mig enga
móðga þótt ég nefni hér tvo þeirra,
þ.e. Baldur Þorleifsson og Gunn-
laug Smárason, en þeir hafa sýnt
félagi okkar einstaka hlýju og gera
enn. Hafið bestu þakkir fyrir það
kæru vinir.
Þá vil ég senda Inga Þór sérstakar
kveðjur og þakka honum fyrir allt
og allt. Það var algjör unun að fá að
vinna með slíkum meistara. Gangi
þér og þinni fjölskyldu áfram vel,
með góðum kveðjum og þakklæti
frá Snæfellsfjölskyldunni.
Mér finnst við hæfi að renna yfir
alla þá titla sem að hóparnir okk-
ar skiluðu í Hólminn undir stjórn
Inga Þórs, aðstoðarþjálfara og okk-
ar í stjórninni. Við skulum aldrei
gleyma öllum þeim gleðistundum
sem að við veittum okkur sjálfum
sem og stuðningsfólki úti um allan
heim.
Á árunum 2009-2018 náðu liðin
okkar að vinna alla titla einu sinni í
meistaraflokki karla og kvenna. Það
er meira en mörg stærri félög hafa
náð að afreka.
Karlaliðið náði eftir-
farandi árangri:
Bikarmeistarari í unglinga-
flokki karla, Snæfell/Skallagrímur
(2009-2010)
íslands- og bikarmeistarar karla,
Snæfell (2009-2010)
Deildarmeistarar - Lengjubikar-
meistarar - Meistarar meistaranna í
mfl. karla, Snæfell (2010-2011)
Kvennaliðið náði eftir-
farandi árangri:
Bikarmeistari í unglingaflokki
kvenna (2010-2011)
Bikarmeistari í unglingaflokki
kvenna (2011-2012)
Meistarar meistaranna - Lengju-
bikarmeistarar kvenna 2012-2013
Deildarmeistarar í Domino‘s
deild kvenna og íslandsmeistarar
2013-2014
Deildarmeistarar í Domino‘s deild
kvenna, íslandsmeistarar og Meist-
arar meistaranna 2014-2015
Bikarmeistarar Poweradebikars
kvenna, íslandsmeistarar, Meistar-
ar meistaranna 2015-2016
Deildarmeistarar, Meistarar meist-
aranna 2016-2017
Á þessum tímamótum í lífi mínu
hef ég ákveðið að stíga til hliðar.
Það er hverju ungmennafélagi hollt
að fá nýtt fólk til starfa. Ég lái eng-
um að halda því fram að menn eins
og ég hafi dvalið allt of lengi við
stjórnvölinn. En þar sem að krakk-
arnir mínir hafa haft svo ótrúlega
gaman af þessu sporti þá hef ég
einnig elskað að vera með þeim í
liði og það held ég að sé ein af betri
uppskriftum að farsælu uppeldi eins
og ég hef áður komið að.
Allir saman í liði!
Ég vil þakka öllum þátttakendum,
innan vallar sem utan, foreldrum,
stuðningsfólki, styrktaraðilum og
síðast en ekki síst frábæru stjórn-
arfólki fyrir skemmtilegt og gef-
andi samstarf. Þá vil ég sérstaklega
þakka Davíð Sveinssyni fyrir hans
miklu vinnu fyrir Snæfell í gegn um
árin. Það er
töluvert léttara að sinna for-
mennsku í hvaða félagi sem er
ef að gjaldkera starfið er í lagi og
þannig hefur það verið hjá meistara
Dabba alla tíð. Aðalstjórn Snæfells
sendi ég mínar bestu þakkarkveðjur
sem og formanni og stjórn HSH.
Öflugt samstarf yngri flokka og
meistaraflokka er gríðarlega mik-
ilvægt hverju félagi. Þeirri vinnu
hefur Jón Þór Eyþórsson formaður
og stjórn hans sinnt með frábærum
hætti og ber að þakka það. Þá vil ég
senda mínar bestu þakkir til Vignis,
Arnars og starfsfólks íþróttamið-
stöðvarinnar í Stykkishólmi. íbú-
ar sem og bæjaryfirvöld í Stykkis-
hólmi - bestu þakkir fyrir ykkar öfl-
uga stuðning hingað til.
Þá vil ég einnig senda stjórnar-
fólki KKí innilegar kveðjur með
þakklæti fyrir frábært samstarf. Öll-
um öðrum körfuboltaliðum þakka
ég samstarfið. Ég hef notið hverrar
stundar í þessu félagsstarfi og vona
svo innilega að það hafi átt við okk-
ur fleiri.
Ég hvet alla til að styðja unga
fólkið til áframhaldandi þátttöku í
einhverju því sem ungmennafélög-
in bjóða upp á á sínu heimasvæði.
Það skiptir í raun litlu hvert við-
fangsefnið er. Eina sem við skulum
kappkosta, á hvaða aldri sem að við
erum, er að allir séu að gera eitt-
hvað – við skiptum öll máli. Ein-
göngu þannig höldum við áfram að
efla okkar mikilvæga starf og gera
lífið ennþá skemmtilegra. Ég skora
á alla að styðja áfram við öflugt
ungmennafélagsstarf á Islandi.
Brostu - þá er líklegra að þú fáir
bros á móti.
Takk fyrir mig,
Gunnar Svanlaugsson.
Stuðningsmenn Snæfells á pöllunum í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá.
Horft til baka
Gunnar Svanlaugsson. Ljósm. úr safni/ sá.
Gunnar Svanlaugsson ásamt Láru Guðmundsdóttur og dætrum þeirra Gunnhildi
og Berglindi með Íslandsmeistarabikarinn. Ljósm. úr safni/ þe.
Karlalið Snæfells sem varð Íslandsmeistari 2009-2010. Ljósm. úr safni/ þe.
Snæfellskonur fagna bikarmeistaratitli í Laugardalshöll. Ljósm. úr safni/ sá.