Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 2020 21
Þegar mest lét voru 38 þúsund
manns í minnkuðu starfshlutfalli
en nú eru þeir 27 þúsund talsins.
Samtals hafa því um ellefu þúsund
manns afskráð sig af hlutabótaleið-
inni svokölluðu. „Ég get ekki betur
séð en að nokkuð margir séu komn-
ir aftur til vinnu sinnar í maí eft-
ir að slakað var á samkomubanni,“
sagði Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar, sem var sér-
stakur gestur á upplýsingafundi al-
mannavarna síðastliðinn föstudag.
Atvinnuleysi í apríl mældist 17,8%
og Vinnumálastofnun spáir því að
atvinnuleysi verði 14,8% í maí.
„Þannig að það horfir til betri veg-
ar,“ sagði Unnur.
Forstjóri Vinnumálastofnun-
ar minnti á mikilvægi þess að þeir
sem væru komnir aftur í fyrra
starfshlutfall, hefði verið sagt upp
eða væru að vinna uppsagnafrest,
skráðu sig úr úrræðinu. „Svo ekki
komi upp tvígreiðsla annars vegar
frá atvinnurekanda og hins vegar
frá okkur með tilheyrandi endur-
greiðslukröfum,“ sagði Unnur.
Þá sagði Unnur að enn frem-
ur að allir sem ætli að vera áfram
í hlutabótaúrræðinu og fái greidd-
ar atvinnuleysisbætur þurfi nú að
staðfesta atvinnuleit sína 20. maí.
Opið verður fyrir það til 25. maí.
Staðfestingin sé einföld, hnapp-
ur á „mínum síðum“ á heimasíðu
Vinnumálastofnunar. Staðfesting sé
skilyrði fyrir greiðslu 1. júní næst-
komandi. „Þetta er nýtt og mjög
mikilvægt að það komist til skila,“
sagði hún.
Listi verður birtur
Næst vék Unnur að birtingu
lista yfir fyrirtæki sem hafa nýtt sér
hlutabótaleiðina, en slíkt hefur ver-
ið töluvert til umræðu undanfar-
ið. „Persónuvernd telur hann ekki
varða lög um persónuvernd og að
almannahagsmunir leiði til þess þar
sem svo miklir fjármunir séu í húfi
að rétt sé að birta lista yfir fyrir-
tækin,“ sagði Unnur. „Til að svara
því, þá mun það verða gert, en þessi
listi er bara alls ekki til. Þetta tölvu-
kerfi var ekki hannað til að taka út
lista yfir fyrirtæki eða greiðendur,
það þarf heilmikla handavinnu til.
Tölvukerfið var sett upp á mettíma
til að taka við umsóknum frá ein-
staklingum og greiða þeim,“ sagði
hún, en bætti því við að verið væri
að skoða hvernig best væri að sækja
þessar upplýsingar og setja í birt-
ingarhæfan búning.
Hún lýsti því þó yfir að hún sjálf
væri hugsi um birtingu listans,
þrátt fyrir álit Persónuverndar. „Ég
er hugsi og hef stuðning persónu-
verndarfulltrúa stofnunarinnar í því
hvort sé rétt að birta til dæmis lista
yfir fyrirtæki með fimm starfsmenn
eða færri. Þá er ég að hugsa um
það traust sem þarf að ríkja milli
Vinnumálastofnunar og skjólstæð-
inga hennar,“ sagði hún. „Það hef-
ur verið alveg heilagt hjá okkur að
það fari aldrei út fyrir veggi Vinnu-
málastofnunar hverjir eru að leita
til okkar,“ sagði Unnur. „En það
verður ekkert að frétta af þessum
lista um helgina og líklega ekki fyrr
en um miðja næstu viku. Við þurf-
um að fá sannfæringu um að listinn
sé réttur og birtur með þeim hætti
sem við sættum okkur við.“
Sótt um fyrir 953
vegna sóttkvíar
Opnað hefur verið fyrir greiðslur til
atvinnurekenda fyrir fólk sem var í
sóttkví og gat ekki sinnt starfi sínu
vegna þess um ákveðinn tíma. Alls
hafa 288 atvinnurekendur sótt um
þessar greiðslur, 67 sjálfstætt starf-
andi einstaklingar og 199 launþeg-
ar sóttu um sjálfir. „Samtals hefur
því verið sótt um fyrir 953 einstak-
linga sem þurftu að sæta sóttkví,“
sagði Unnur.
Að lokum vék hún að sumarstörf-
um námsmanna í samstarfi við ríki
annars vegar og sveitarfélög hins
vegar. Sveitarfélögin sjá sjálf um
að auglýsa 1.700 störf á þeirra veg-
um en Vinnumálastofnun auglýsir
3.400 störf hjá stofnunum ríkisins.
Opnað verður fyrir þær umsóknir
26. maí næstkomandi.
kgk
Konur í Lionsklúbbnum Eðnu á
Akranesi komu færandi hendi í
Fjölbrautaskóla Vesturlands síðast-
liðinn fimmtudag. Tilefnið var að
færa skólanum að gjöf fjórar nýjar
spjaldtölvur en þær verða notað-
ar til kennslu á starfsbraut skólans.
Það voru þær Arndís Halla Guð-
mundsdóttir deildarstjóri á starfs-
braut og Steinunn Inga Óttarsdótt-
ir skólameistari sem veittu gjöfinni
viðtöku og þökkuðu Eðnukonum
kærlega fyrir hlýjan hug og rausn-
arskap.
Við þetta tækifæri sagði Arn-
dís Halla stuttlega frá því hvernig
spjaldtölvur eru notaðar til kennslu
og afþreyingar á starfsbrautinni.
Bæði er kennt með aðstoð tölva
hefbundnar námsgreinar á borð við
stærðfræði og íslensku, ýmis gagn-
virk verkefni eru unnin í tölvunum
en einnig lestur rafbóka, videó-
klippingar unnar í þeim og fjölmargt
fleira. Sagði hún þessi tæki því afar
hentug til kennslu en starfsbrautin
býr nú yfir sex nýjum spjaldtölvum.
Nemendur sem skráðir eru á starfs-
braut skólans er 23 og þar af ellefu
sem alfarið stunda nám sitt þar.
Gefandi félagsskapur
Lionsklúbburinn Eðna er 23 ára og
eru félagsmenn 25 á öllum aldri. Að
sögn Maríu Kristínar Óskarsdóttur
forseta klúbbsins er það markmið
Eðnukvenna að styðja við góð mál-
efni í nærsamfélaginu. Hvetur hún
áhugasaman konur um að ganga til
liðs við klúbbinn og lofar skemmti-
legu og gefandi starfi. Helsta fjár-
öflun klúbbins er svokallaður svel-
tifundur sem haldinn er í febrúar.
Nafnið er þó engan veginn lýsandi,
því á sveltifundi bjóða félagskonur
vinkonum sínum til mikillar veislu.
Gestirnir eru þó borgandi og boð-
ið er upp á góðar veitingar, happ-
drætti og annað til fjáröflunar fyrir
starf klúbbsins. mm
Lionskonur færðu starfsbraut FVA fjórar spjaldtölvur
Frá afhendingu gjafanna síðastliðinn fimmtudag. F.v. Þóra Björk Kristinsdóttir, Sonja F. Jónsson, Sólrún Engilbertsdóttir og María Kristín Óskarsdóttir frá Eðnu. Þá
Arndís Halla Guðmundsdóttir deildarstjóri starfsbrautar og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari FVA.
Ellefu þúsund skráð sig af hlutabótaleiðinni