Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 2020 27 Pennagrein Vísnahorn Alltaf kemur blessað vorið á hverju ári. Fer ekki hjá því þó það taki stundum einhverja smá útúrkróka á leiðinni. Björg Sigurðardóttir á Geirastöð- um í Mývatnssveit orti einhvern tímann á út- mánuðum. Gæti hafa verið eftir gott kvöld á skautum á ísilögðu Mývatni með einhverjum jafnaldra sínum og sveitunga: Ég hélt að það væri að vora og hlýna og vonin hún kemst yfir allt en þegar ég háttaði í holuna mína var helvítið ís jökulkalt. Björg var að ég hygg nokkuð jafnaldra Þuru í Garði og gamansöm ekki síður. Um sjálfa sig kvað hún: Þegar ég agðast um bæinn ill í skapi og blökk á kinn þráir tengdasoninn sinn Siggi gamli pabbi minn. Aldrei kom þó sá tengdasonur þar sem Björg mun hafa dáið ung og ógift. Hinsvegar gerist það stundum á vorin á okkur leita hugs- anir um eitthvað sem einu sinni var. Jón Hin- riksson orti í minningu reiðhests: Blæs um hól og bliknar kinn björt er fjólan glóði, autt er ból þar blakkurinn baðaði í sólarflóði. Heiðin geymir Huga spor. Holtið dreymir lyngað, þegar gleymir vetri vor veran sveimar hingað. Á sumardaginn fyrsta 1921 var Halldór Helgason fenginn til að halda fyrirlestur í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal og hófst hann á þessari vísu: Heillavinir, heyrið þið: hrakinn og nærri kalinn, kem ég að sækja sólskinið suður í Reykholtsdalinn. Jakob Guðmundsson sem lengi var vinnu- maður á Húsafelli og lengst við þann bæ kenndur fylgdi oft ferðafólki yfir Kaldadal. í einni slíkri ferð mun þessi vísa hafa orðið til: Líður óðum lífs á kvöld lækkar sól á degi. Djúp er þögn og kyrrðin köld Kaldadals á vegi. Nokkuð lengi er ég búinn að kunna eftir- farandi vísu og finnst ég hafi séð hana með lít- ilsháttar orðamun eignaða Páli Jónssyni sem kallaður var skáldi. Eins og með fleira er ekki svo gott að vita fullar sönnur á hinum eina sannleik en látum hana samt vaða: Er hér kominn yngismaðurinn Ólafur Gestsson. Ber þann sér á baki prestsson Brúnn af Kjalarnesi hestsson. Sá ágæti Bjarni frá Gröf horfði í kringum sig snemmvors og ávarpaði fósturjörð sína þessum orðum: Hvíta skikkjan ónýt er alltaf fjölga götin. Guð má fara að gefa þér grænu sparifötin. Hjálmar Freysteinsson sem nú er nýlega látinn var einstakur hagyrðingur og húmor- isti og gjarnan með svolítið „aðra sýn“ á til- veruna sem gefur vísum oft aukið gildi. Eftir hann er þessi öfugmælavísa: Í myndastyttum er mikið blóð. Máfurinn syngur fögur ljóð. Sparsöm oft var þessi þjóð. -Þessi vísa er skratti góð. Held endilega að næsta vísa sé eftir Jón Tryggvason í Ártúnum: Ég opnaði alla glugga sem unnt var á gamla bænum því vorylur vakti í blænum og vorið á enga skugga. Hinsvegar er ég ekki viss um höfund að þessari en jafngóð fyrir því: Sitjum kyrr í kveldsins ró, hvískrar þeyr á skjánum. Merlar tár á mosató. -Mér er kalt á tánum... Það er nefnilega ógaman ef fólki verður kalt á tánum og vont ef skórnir þrengja að þar að auki. Baldvin Jónatansson mun höfundur að þessari: Þótt ég beri þráfalt hér þröngan skó á fæti. Enginn taka mun frá mér mína eðliskæti. Löngum hafa stúdentar þessa lands ver- ið lítt haldnir af þessa heims auðæfum en skemmtanalíf þeirra þó oft nokkuð fjörlegt. Veturinn 1964-5 bjó Aðalsteinn Davíðsson á Nýjagarði og orti þá kvæði í stíl Jóns frænda míns Helgasonar og nefndist Afgangar. Þar í má finna þetta erindi: Uppundir hvelfing efsta gangs ómur af partí stafar, frænda sem prófið flaut í haust fagna slompaðir afar. Situr þar lögfræðisveitin öll, saman við flöskur skrafar, meðan oss hina hrífur fast hugarvílið til grafar. Það er nú svona með blessað unga fólkið. Athafnaþráin er því í blóð borin og hverfur ekki fyrr en það kemur í vinnuna. Fjallgöngur eru sívinsæl íþrótt og dansinn frábær hreyfing og líkamsrækt og svo er nú þetta með fram- burðinn. Þarf að átta sig vel á honum. Man samt ekkert hver orti: Skólapiltar fara á fjöll og faðma heimasætur. Ungar stúlkur elska böll einkanlega um nætur. Það mun hinsvegar hafa verið Magnús Ein- arsson sem sagði: Unga fólkið iðkar dans, unun þetta vekur, alveg upp að mitti manns menntun þessi tekur. Teitur Hartmann kvað um unga og íðil- fagra stúlku og framtíðarvonir sínar fyrir hennar hönd: Þess vildi ég óska að Ásta gæti fengið maka. Ef hún þráir það þá mun vaxa gengið. Ætli það sé ekki farið að nálgast endalok þessa þáttar og væri ekki rétt að ljúka honum með þessari ágætu vísu Eyjólfs í Sólheimum. Sannleiksgildi hennar efa ég ekki og hef oft sannreynt á sjálfum mér við að grafa upp úr kollinum eitthvað sem ég hélt að ég kynni: Þó harðni átök ellinnar, andleg reisn sé þrotin, glitra á barmi gleymskunnar gömlu vísubrotin. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Glitra á barmi gleymskunnar – gömlu vísubrotin Varnir, vernd og viðspyrna er yfir- skrift á aðgerðaáætlun stjórnvalda við þeirri stöðu sem við stönd- um frammi fyrir. Það er mikil- vægt hverju samfélagi að halda uppi þéttu og fjölbreyttu atvinnu- lífi. Það er svo sannlega tími til að virkja þann mikla mannauð sem býr í landsmönnum. Við höf- um allt til staðar; viljann, mann- auðinn og tæknina. Samgöngur fara batnandi og með allt þetta að vopni náum við viðspyrnu um allt land. Við erum að stefna inn í þyngra efnahagsástand með tilheyrandi uppsögnum og samdrætti á mörg- um sviðum vegna COVID-19. Þá hefst slagurinn um að verja störf- in. Verja og halda þeim opin- beru störfum sem nú þegar eru á landsbyggðinni. Þar þurfa allir að leggjast á eitt. Það hefur því mið- ur verið raunin að fyrir eitt starf sem glatast tekur það 10 ár að fá annað til baka. Það getur líka ver- ið hluti af hagræðingu að verja þau störf sem fyrir eru og hluti af viðspyrnunni að leggja enn meiri áherslu á að skilgreina störf án staðsetningar og dreifa þeim sem best. Störf án staðsetningar Opinber störf á vegum ríkisins eru rúm 20.000. Þá eru ekki meðtalin þau störf sem eru á vegum sveitar- félaga. Hér á landi er skipting opin- berra útgjalda milli ríkis og sveit- arfélaga 70/30. Það er því ljóst að staðsetning ríkisstarfa skiptir miklu máli og ætti það að vera forgangs- mál stjórnvalda að dreifa þeim sem mest um landið. í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er að finna áherslu hennar um að skilgreina störf og auglýsa þau án staðsetn- ingar eins og kostur er. Auk þess styður samþykkt byggðaáætlun við þetta markmið. Með aukinni sam- skiptatækni, háhraðafjarskiptateng- ingum um allt land ásamt greiðum samgöngum er nú hægt að dreifa opinberum störfum sem aldrei fyrr. Þeir tímar sem við höfum geng- ið í gegnum á undanförnum vikum hafa sýnt að fjarvinna er ekki bara draumsýn, heldur raunverulegur möguleiki. Störf án staðsetningar geta verið jafn vel unnin í Ármúla í Reykjavík og á Hólmavík. Halla Signý Kristjánsdóttir Höf. er alþingismaður Framsókn- arflokks í NV kjördæmi. Opinber störf á landsbyggðinni Útvarpsstöðin K100 ætlar að kynn- ast landinu betur í maí og júní og kynna áhugaverða staði sem eru að bjóða upp á spennandi hluti í sum- ar. Fyrsti áfangastaður stöðvarinn- ar verður Borgarbyggð. Öll dag- skrá og fréttir stöðvarinnar verða í beinni útsendingu frá Borgarnesi á föstudaginn, 22. maí. „Morgunþátt- ur stöðvarinnar, ísland vaknar, með þau Ásgeir Pál, Jón Axel og Borg- nesinginn Kristínu Sif hefst stund- víslega kl. 6 að morgni. Auðun Ge- org miðlar fréttum frá því helsta sem er að gerast í sveitarfélaginu og Síðdegisþáttur K100 með þeim Loga Bergmann og Sigga Gunnars fjalla um fjölbreytt mannlíf og það sem gerir Borgarbyggð að áhuga- verðum stað til að heimsækja, starfa og búa,“ segir í tilkynningu. Útsending úr hjólhýsi „Við byrjuðum á þessu í fyrrasum- ar, að setja fókusinn á ákveðin svæði á landinu og kynna hvað hægt sé að gera þar. Það gekk svo vel að í kjöl- farið ákváðum við í haust að næsta sumar skyldum við gera enn bet- ur og ferðast til þessara staða sjálf og senda þaðan út,“ segir Sigurður Gunnarsson, dagskrár- og tónlist- arstjóri K100 í tilkynningu. Munu stjórnendur útvarpsþáttanna ísland vaknar og Síðdegisþáttarins ger- ast ferðamenn í eigin landi, hengja hjólhýsið aftan í bílinn á föstudög- um og ferðast um landið með hlust- endum. Þyrluflug í boði Skemmtilegur viðburður verður í boði á föstudaginn, í tilefni af út- sendingu K100, en þá ætlar Helo. is að bjóða upp á útsýnisflug með þyrlu. Sex farþegar komast í hverri ferð. Flogið verður frá Borgarnes- flugvelli frá klukkan 16:00 og kost- ar 10 þúsund krónur á mann. Skipulagt fyrir faraldur „Þetta verður mjög skemmtilegt verkefni,“ segir Sigurður Gunnars- son. „Við hlökkum til að skella út- sendingarhjólhýsinu okkar á kúl- una og halda af stað. Við ætlum að kynnast skemmtilegu fólki sem er að gera spennandi hluti í ferðaþjón- ustu,“ segir hann og bætir við að verkefnið hafi verið skipulagt löngu áður en kórónuveirufaraldurinn skall á. „Það hittir þó vel á að við séum að fara í svona veglegt verk- efni til þess að kynna ferðaþjón- ustuna hér á íslandi, oft var þörf en nú er nauðsyn,“ segir hann. mm Borgnesingurinn Kristín Sif Björgvinsdóttir er einn þáttastjórnanda morgun- þáttarins Ísland vaknar á útvarpsstöðinni K100. Útvarpsstöðin K100 sendir út frá Borgarbyggð á föstudaginn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.