Skessuhorn - 20.05.2020, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 2020 31
Félagar í Golfklúbbnum Jökli hóf-
ust handa við gerð nýs níu holu
golfvallar í Rifi í síðustu viku. Byrj-
að var á að móta flatir og sá í þær.
Jón Bjarki Jónatansson, formað-
ur golfklúbbsins, segir að fram-
kvæmdir fari vel af stað. „Við erum
búnir að móta þrjár flatir og verð-
um í því í sumar að móta flatir og
sá í þær og leggja niður vökvunar-
kerfi vallarins. Það verður svona
stóra verkefni sumarsins,“ seg-
ir Jón Bjarki í samtali við Skessu-
horn. „Vökvunarkerfið er það
flottasta sem til er á markaðnum
sjálvirkt kerfi sem er stýrt í gegn-
um tölvu. Það verður ekki mörg ár
að borga sig upp í vinnusparnaði
og mikið öryggi að hafa vökvunar-
kerfi til að geta alltaf gripið inn í
og vökvað flatir og teiga ef þarf,“
segir hann. „Síðan skemmir ekki að
efnið sem fyrir er á staðnum er afar
hentug til verksins af náttúrunnar
hendi. Þetta er blanda af sandi og
mold sem ég held að margir vildu
eiga jafn greiðan aðgang að og við
þegar verið er að byggja golfvelli.
Þannig að þetta lítur allt saman vel
út og við hjá klúbbnum erum fullir
tilhlökkunar fyrir þessu verkefni,“
segir Jón Bjarki.
Klár fyrir stórafmælið
Þegar búið er að sá í flatirnar er
einangrunardúkur lagður yfir þær
og landið fær að gróa þar undir og
grasið að vaxa. „Það gerist nokkuð
fljótt ef hitinn verður góður og við
fáum gott veður í sumar, þá virkar
þetta í rauninni bara eins og gróð-
urhús,“ segir Jón Bjarki. „Næsta
sumar verður farið í að útbúa
brautir og teiga. Þar er vinnulag-
ið eins og við gerð flatanna, gras-
ið sem fyrir er fjarlægt og síðan sáð
í og vökvað,“ segir hann. Að svo
búnu þarf tíminn að fá að vinna sín
handtök. Jón Bjarki vonast til að
geta tekið völlinn í notkun innan
fárra ára. „Klúbburinn á 50 ára af-
mæli 2023 og markmiðið er að geta
spilað á nýja vellinum eigi síðar en
á afmælisárinu. Vonandi getum við
tekið hann í notkun fyrr, en það fer
eftir tíðarfari og fleiru,“ segir Jón
Bjarki. „Þetta ferli er búið að taka
langan tíma og mjög jákvætt að það
sé komið í gang,“ bætir hann við.
Jökullinn í baksýn
Nýi golfvöllurinn í Rifi er svokall-
aður „linksvöllur“, sem er elsta
gerð golfvalla í heiminum. Af
þeirri gerð voru fyrstu golfvellirn-
ir í Skotlandi í árdaga íþróttarinn-
ar. Hafa slíkir vellir stundum ver-
ið nefndir strandvellir á íslensku,
byggðir í sendnu landi við sjávar-
síðuna, með stífum brautum og
hröðum flötum.
Strandvöllurinn í Rifi er í fal-
legu umhverfi á Breiðinni með
Snæfellsjökul í baksýn. Hönnuð-
ur vallarins er Edwin Roald, sem
hefur hannað marga golfvelli hér á
landi. „Hann er búinn að vera með
okkur frá degi eitt og hefur verið
okkur innan handar með hvaðeina.
Við fengum hann til okkar áður en
nokkuð var ákveðið til að athuga
hvort þetta væri yfirleitt mögu-
legt. Honum leist strax vel á þenn-
an stað. Jökullinn verður í baksýn
og þetta verður mjög fallegt,“ segir
Jón Bjarki að endingu.
kgk
Körfuknattleikskonan Embla Krist-
ínardóttir mun leika með Skalla-
grími í Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik næsta vetur. Greint
var frá því á föstudag að Embla
hefði samið við Skallagrím til næstu
tveggja ára.
Embla er 24 ára gömul og leik-
ur stöðu bakvarðar. Hún gengur til
liðs við Skallagrím frá Fjölni, þar
sem hún lék síðasta vetur í 1. deild-
inni. Embla er hins vegar uppalin
Keflvíkingur og hefur lengst af sín-
um meistaraflokksferli leikið með
uppeldisfélagi sínu og orðið með
því bæði íslands- og bikarmeist-
ari. Hún hefur einnig leikið með
Grindavík á sínum ferli.
Embla á að baki 21 landsleik með
A-landsliði íslands og lék meðal
annars með liðinu á smáþjóðaleik-
unum 2013, 2015, 2017 og 2019.
Þá á hún að baki fjölda leikja með
yngri landsliðunum íslands.
Embla flytur í Borgarnes og
kveðst full tilhlökkunar að ganga
til liðs við Skallagrím. „Ég er ótrú-
lega spennt fyrir nýjum tímum með
Skallagrími sem náði geggjuðum
árangri seinasta vetur. Ég vona að
ég geti hjálpað liðinu á sem best-
an veg á komandi leiktíð,“ er haft
eftir Emblu á Facebook-síðu kkd.
Skallagríms. „Ég tek þessu nýja og
óvænta verkefni fagnandi,“ segir
hún.
Þar lýsir Guðrún Ósk Ámunda-
dóttir, þjálfari Skallagríms, jafn-
framt ánægju með að fá Emblu til
liðsins. „Það gleður mig mikið að
fá Emblu í liðið okkar, hún þekkir
deildina vel og er mikilvæg viðbót í
hópinn. Hún er með mikla reynslu
og hefur meðal annars spilað með
A landsliði íslands. Hún er fjölhæf-
ur leikmaður sem mun hjálpa okk-
ur á báðum endum vallarins,“ segir
Guðrún Ósk. kgk
Fyrsta mótið á stigamótaröð Golf-
sambands íslands þetta sumarið
verður leikið á Garðavelli á Akra-
nesi dagana 22.-24. maí næstkom-
andi. Keppt verður í höggleik flokki
karla og kvenna, 18 holur leikn-
ar hvern dag en niðurskurður eft-
ir annan hring. Það er Golfklúbb-
urinn Leynir sem er mótshaldari.
Rakel Óskarsdóttir, framkvæmda-
stjóri klúbbsins, á von á sterku móti
um helgina. „Allir sterkustu ís-
lensku kylfingarnir eru heima á ís-
landi vegna faraldursins og ætla að
taka þátt um helgina,“ segir Rakel
í samtali við Skessuhorn, en Co-
vid-19 faraldurinn hefur auðvi-
tað meiri áhrif á mótshald en það.
Golfhreyfingin hefur sett reglur um
golfiðkun vegna hans sem miða að
því að fækka öllum sameiginlegum
snertiflötum. Þannig er bannað að
taka flaggstangirnar upp úr holun-
um, engar hrífur eru í glompum og
kúluhreinsar hafa verið fjarlægðir.
„Áhorfendur mega ekki ganga með
hollunum sem tekur smá sjarma
úr þessu en við erum svo heppin
að íATV ætlar að taka þátt í þessu
með okkur og reyna að streyma frá
mótinu. Einnig verður skorið fært
inn „live“ og hægt að fylgjast með
öllum keppendum á golf.is,“ segir
Rakel.
B59 Hotel í Borgarnesi er aðal-
styrktaraðili mótsins. Rakel segir
ánægju með það samstarf og segir
að það verði ef til vill meira á kom-
andi misserum. „Það hefur auðvitað
verið erfitt að sækja styrktaraðila í
þessu ástandi en við í golfklúbbn-
um tókum meðvitaða ákvörðun nú
í vor að horfa til ferðaþjónustuað-
ila á Vesturlandi þegar við þurfum
að kaupa verðlaun í golfmót. Þann-
ig vinna allir og hjól atvinnulífsins
fara að snúast aftur af stað,“ segir
hún.
Þegar Skessuhorn ræddi við Rak-
el í gærmorgun voru 113 kylfingar
skráðir en hámarksfjöldi í mótið er
144. „Skráningu lýkur í kvöld og ég
hef fulla trú á því að það verði fullt.
Goflkúbburinn Leynir er með þrjá
skráða keppendur, þau Valdísi Þóru
Jónsdóttur, Alex Hinrik Haraldsson
og Björn Viktor Viktorsson,“ segir
framkvæmdastjórinn sem var í óða-
önn að undirbúa mótið. „Handtök-
in við að halda svona mót eru mörg.
Sjálfboðaliðar í klúbbnum koma
mikið að þessu móti og við erum
svo rík í Leyni að við eigum fullt af
félagsmönnum sem bjóða sig fram
við hin ýmsu verkefni sem tengjast
mótinu,“ segir Rakel Óskarsdóttir
að endingu.
kgk
Landsliðskonan Embla
Kristínardóttir í Skallagrím
Embla Kristínardóttir í leik með landsliðinu. Ljósm. FIBA/.
Framkvæmdir hafnar
við golfvöllinn í Rifi
Unnið í vellinum. Ljósm. Hjörtur Ragnarsson.
Rögnvaldur Ólafsson, Hjörtur Ragnarsson og Jón Bjarki Jónatansson á svæðinu
sem nú er verið að breyta í golfvöll. jósm. af.
Stigamótaröð GSÍ hefst á Garðavelli um helgina
Bestu kylfingar landsins taka þátt
Valdís Þóra Jónsdóttir tekur þátt í mótinu á sínum heimavelli, ásamt mörgum
öðrum af fremstu kylfingum landsins. Ljósm. úr safni.
Leikið á Garðavelli. Ljósm. úr safni/ kgk.