Skessuhorn - 10.06.2020, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 10. júNÍ 20206
Lentu í sjálfheldu
í Kjósarskarði
KJÓS: Björgunarsveitir aðstoð-
uðu unglingsstúlkur og föður
þeirra eftir að stúlkurnar höfðu
lent í sjálfheldu í klettum í Kjós-
arskarði á laugardaginn. Hjálp-
arbeiðni barst um kl. 14:00. Vel
gekk að aðstoða fólkið, að sögn
Davíðs Más Bjarnasonar, upp-
lýsingafulltrúa Landsbjargar, og
voru allir komnir niður úr klett-
unum upp úr kl. 16:00. Með-
fylgjandi mynd af vettvangi tóku
félagar í Landsbjörgu. -kgk
Búfé á ferð
VESTURLAND: Töluvert
hefur borið á því að búfénaður
sé á ferðinni á vegum í umdæm-
inu undanfarna viku, að sögn
lögreglu. Tilkynnt hefur ver-
ið um hross og sauðfé á þjóð-
veginum, auk þess sem nokkrar
tilkynningar hafa borist um að
keyrt hafi verið á lömb og ekki
látið vita. -kgk
Meira en tvö-
földun aðsóknar í
kennaranám
LANDIÐ: Umsóknum um
kennaranám hefur fjölgað veru-
lega á milli ára í háskólunum
fjórum; Háskólanum á Akur-
eyri, Listaháskóla Íslands, Há-
skólanum í Reykjavík og Há-
skóla Íslands. Á Menntavísinda-
sviði Háskóla Íslands fjölgar
umsóknum um framhaldsnám
leikskólakennara um 118% í
ár, grunnskólakennaranám um
85%, framhaldsskólakennara-
nám um 47% og 67% í íþrótta-
kennaranámið. -mm
Nýr forstjóri
Neytendastofu
LANDIÐ: Þórdís Kol-
brún Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og ný-
sköpunarráðherra, hefur sett
Þórunni Önnu Árnadótt-
ur í embætti forstjóra Neyt-
endastofu. Setning Þórunn-
ar í embætti gildir frá 1. júlí
næstkomandi til áramóta.
Þórunn er lögfræðingur að
mennt og hefur starfað hjá
Neytendastofu um 13 ára
skeið, þar sem hún gegnir
starfi sviðsstjóra neytenda-
réttarsviðs auk þess að vera
staðgengill forstjóra. Hún
tekur við embætti forstjóra
af Tryggva Axelssyni, sem
hefur gegnt starfinu undan-
farin 15 ár. -kgk
Dregið úr um-
ferðarhraða
MOS: Í gær hófust fram-
kvæmdir við tvöföldun
Vesturlandsvegar í Mos-
fellsbæ milli Skarhólabraut-
ar og Langatanga. Á með-
an á framkvæmdum stend-
ur verður umferð á einni ak-
rein í hvora átt. Búast má við
því að umferð gangi hægt og
að einhverjar tafir verði um
vinnusvæðið en hámarks-
hraði verður tekinn niður í
50 km/klst, skv. tilkynningu
frá Vegagerðinni. -mm
Hraðinn eykst
VESTURLAND: Hrað-
akstur var mjög áberandi í
umdæmi Lögreglunnar á
Vesturlandi undanfarna viku
og að sögn lögreglu er öku-
hraðinn meiri en verið hef-
ur undanfarnar vikur. Nokk-
uð var um það í vikunni að
ökumenn væru mældir á um
og yfir 130 km hraða á klst.,
jafnvel vel yfir. Ungur öku-
maður var mældur á 151 km
hraða á klst. á Akrafjallsvegi á
mánudaginn. Ökumaðurinn
á yfir höfði sér 210 þúsund
króna sekt, fær þrjá punkta í
ökuferilsskrá og verður svipt-
ur réttindum í einn mánuð.
Umræddur ökumaður er 17
ára gamall og fékk bílprófið í
apríl, að sögn lögreglu. Sök-
um ungs aldurs ökumanns-
ins var haft samband við
foreldra og brotið tilkynnt
barnavernd. Miðvikudaginn
3. júní var ökumaður stöðv-
aður á 130 km hraða á klst.
á Vesturlandsvegi við Fells-
enda. Sá var ekki með öku-
skírteini meðferðis og á yfir
höfði sér samtals 130 þús.
króna sekt. -kgk
Á miðvikudaginn í síðustu viku var
áttæringurinn Ólafur Skagfjörð af-
hentur Hjálmari Kristjánssyni, út-
gerðarmanni í Rifi. Það var Hafliði
Aðalsteinsson, skipasmíðameistari
og formaður Bátasafns Breiðafjarð-
ar, sem afhenti bátinn, en Hjálm-
ar kostaði endurgerð hans. Við það
tilefni var Ólafur sjósettur og róið
um höfnina í Rifi.
Ólafur Skagfjörð var smíðaður
1885 í Bjarneyjum á Breiðafirði.
Hvergi eru skráðar heimildir um
smið bátsins, en allar líkur taldar
á að Bergsveinn Ólafsson, bóndi í
Bænum í Bjarnareyjum, hafi smíðað
bátinn. Báturinn var fyrst skráður í
skipaskrá árið 1908. Þá var Krist-
rún Eyjólfsdóttir, ekkja á Hellis-
sandi, eigandi bátsins og Sigurður
Þorsteinsson formaður hans. Pétur
Maríus Guðlaugur Guðmundsson
á Hellissandi keypti bátinn 1911.
Hann lét endurbyggja hann á ár-
inum 1925-1927 og þá var sett vél
í bátinn. Næst er óskað eftir skrán-
ingu bátsins árið 1940 af Haraldi
jóhanni Guðmundssyni og allar
líkur á að hann hafi keypt bátinn
um það leyti. Hann réri bátnum
frá Krossvík og Rifi. Eftir andlát
Haraldar 1962 gaf Elín Oddsdóttir,
ekkja hans, og fjölskylda bátinn til
Sjóminjasafnsins á Hellissandi.
Það var síðan á haustmánuðum
2019 að Hafliði Aðalsteinsson hóf
endursmíði bátsins og afhenti hann
3. júní síðastliðinn, sem fyrr segir.
Í tilefni af því var opið hús á sjóm-
injasafninu sl. sunnudag þar sem
Ólafur Skagfjörð var til sýnis.
Áhugasömum er bent á að ítar-
legri upplýsingar um sögu bátsins
má finna á vefnum www.batasmidi.
is.
kgk/ Ljósm. Bátasmíði.
Ólafi Skagfjörð róið um höfnina í Rifi.
Ólafur Skagfjörð afhentur
eftir endursmíði
Hafliði Aðalsteinsson, skipasmíðameistari og formaður Bátasafns Breiðafjarðar,
afhendir Hjálmari Kristjánssyni, útgerðarmanni í Rifi, bátinn Ólaf Skagfjörð.