Skessuhorn - 10.06.2020, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 10. júNÍ 202030
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Sumarstörfum hjá Orkuveitu
Reykjavíkur og dótturfélögum
verður fjölgað um 30, til að koma
til móts við erfitt atvinnuástand í
landinu vegna Covid-19 faraldurs-
ins. Störfin bætast við þau ríflega
eitt hundrað sumarstörf sem þegar
hefur verið ráðið í.
Störfin sem bætast við eru af
ýmsum toga og krefjast margvígs-
legrar þekkingar, enda starfsemi
OR og dótturfyrirtækja víðfeðm,
hvort sem litið er til framleiðslu-
hlutans eða þjónustu. Störfunum er
ekki ætlað að koma til móts við at-
vinnuleysi á meðal skólafólks, held-
ur gefst öllum færi á að sækja um
hluta þeirra. Ráðið er til þessara 30
starfa til tveggja mánaða.
„Vegna ástandsins hafa mörg fyr-
irtæki og stofnanir neyðst til þess
að draga verulega saman seglin og
fresta eða hætta alveg við ráðning-
ar sumarstarfsfólks. OR samstæðan
tekur hlutverk sitt sem samfélags-
legur þegn alvarlega. Við teljum
því mikilvægt að leggja okkar lóð á
vogarskálina og ráða allt það sum-
arstarfsfólk sem áætlanir fyrir Co-
vid-19 gerðu ráð fyrir og að auki
gefa verulega í með þessum 30
nýju stöðugildum,“ segir Sólrún
Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra
mannauðs og menningar hjá Orku-
veitu Reykjavíkur.
kgk
Við ákváðum að gelda varðhund-
inn okkar og fengum í heimsókn
eina dýralækninn í borginni, mögu-
lega landinu öllu. Dýralæknir-
inn, sem er mjög sérstök rússnesk
kona sem hefur búið hérna í Níg-
er í 40 ár, kom í heimsókn og bless-
aði rakkinn Rex fór í aðgerð á stofu-
borðinu okkar. Það var mjög erfitt
að skilja sterka rússneska hreiminn
hennar, en á endanum skildi ég að
hundurinn yrði að vera undir okk-
ar eftirliti í viku á meðan hann væri
að jafna sig. Ég er búinn að sitja
með greyinu síðustu daga og passa
að hann borði, drekki og festi ekki
lampaskerminn sem hann hefur um
hálsinn í grindverkinu.
Þessi hundapössun hefur gefið
mér nægan tíma til að lesa mér til
um hitt og þetta á netinu. Ég hef
verið sérstaklega forvitinn um hvað
Íslendingar til forna vissu um Afr-
íku, og í stuttu máli virðist vitneskj-
an ekkert sérstaklega mikil eða djúp.
Í fornum íslenskum sagnaritum er
talað um Bláland, með tilvísun til
líklegast Eþíópíu, og svo Bláland
hið mikla fyrir löndin í kring og
mögulega heimsálfuna alla. Ef við
skoðum til dæmis riddarasöguna af
Dínusi Drambláta, sem skrifuð er af
jóni Gissurarsyni á Íslandi einhvern
tímann á milli 1610 og 1648, þá er
Blálandi hinu mikla lýst svona:
„Þar sem hafið vellur af sólarhita.
Þar eru margir staðir sviðnir og
brunnir af sólarhitanum. Þar fæðast
mjög jötnar ýmislegir og blámenn
bannsettir og alls kyns skessilegar
skepnur.“
Ég get svo sem verið sammála
því að hér í Níger velli allt af sólar-
hita, þar sem það er um 44°C hiti
úti hérna í jaðri Sahara eyðimerk-
urinnar, en lýsingin á íbúum þessa
lands er frekar fordómafull, þó að
þetta sé bara ævintýrasaga. Því mið-
ur voru fordómar í garð íbúa þess-
arar heimsálfu auðvitað algengir
í Evrópu á þessum tímum, heims-
mynd fólks var öðruvísi en í dag. Ég
hugsaðu um þetta og tók þessi skrif
ekki of nærri mér. Ég hélt áfram að
lesa og var frekar stoltur þegar ég
rambaði á skrif Magnúsar Stephen-
sen.
Magnús var mjög merkilegur
Vestlendingur. Hann var fæddur á
Leirá í Leirársveit árið 1762 og var
einn öflugasti liðsmaður Upplýsing-
arinnar á Íslandi. Hann gekkst með-
al annars fyrir stofnun Hins íslenska
landsuppfræðingarfélags árið 1794
og það félag festi kaup á Hrapps-
eyjarprentsmiðju í Breiðafirði og
flutti hana að Leirárgörðum. Það-
an hóf Landsuppfræðingarfélagið
mikla bókaútgáfu í anda upplýsing-
arstefnunnar og henni var tekið vel
af almenningi á Íslandi, sem í fyrsta
sinn átti nú kost á fræðsluefni um
málefni hins daglega lífs, beint frá
Vesturlandi.
Mér fannst magnað að lesa um
hann Magnús en því miður brast
stoltið í mér þegar ég las sumt af
því sem hann skrifaði. Þó að hann
hafi verið að mörgu leyti frjálslynd-
ur skynsemishyggjumaður sem vildi
stuðla að framförum, þá var hann
samt með fordómafullt hugar-
far. Til dæmis skrifar Magnús árið
1797, þremur árum eftir að Frakk-
ar banna allt þrælahald, eftirfarandi
í tímaritinu sínu Skemmtileg vin-
agleði:
„Þessi Frílönd smánudu alla vora
upplýstu nordurálfu, med því ad
verda lángfyrst til ad veita Negr-
um, er ádur þrælkudu í þeirra veldi,
manneskiu-rétt og frelsi.”
Ég vildi óska þess að geta sagt
ykkur að þetta fordómafulla hugar-
far hafi lognast út af á Íslandi með
árunum og öldunum sem leið, en því
miður er saga Íslands stráð smánar-
blettum sem ná vel að okkar tímum í
dag. Í bókinni Uppgjör við umheim-
inn - Samskiptin við Bandaríkin og
NATO, 1960-1974, eftir Val Ingi-
mundarson frá árinu 2001, er greint
frá því að það var lengi vel stefna ís-
lenskra stjórnvalda að í varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli mættu ekki
starfa svartir hermenn. Hermann
jónasson forsætisráðherra setti fram
slíka ósk árið 1941 þegar hervernd-
arsamningur var gerður við Banda-
ríkin, og þessari stefnu var fylgt eftir
allt fram á sjöunda áratuginn.
Rétt eins og í dag þá var á þessum
tíma mikil umræða um kynþáttamis-
rétti í bandarísku samfélagi. Sjálf-
ur john F. Kennedy Bandaríkjafor-
seti setti á fót sérstaka forsetanefnd
til að vinna gegn kynþáttahyggju og
mismunun á grundvelli litarháttar.
Kennedy furðaði sig á Íslandsmál-
inu, eins og það var kallað, og ósk-
aði eftir að fá allar upplýsingar um
það hvers konar heiðursmannasam-
komulag væri í gildi milli banda-
rískra og íslenskra stjórnvalda um
að svartir hermenn yrðu ekki send-
ir til Íslands. Eftir þetta var brugð-
ist skjótt við og nokkrir svartir her-
menn voru sendir til Íslands. En Ís-
lendingar drógu samt lappirnar og
mótmæltu þessu eins og sést í þess-
um skrifum í Mánudagsblaðinu frá
10. maí 1965:
„Blökkumönnum fjölgar á Íslandi
- Yfirvöld varnarhersins ,,gleyma”
samningnum. Það eru mikil mis-
tök hjá bandaríska varnarliðinu að
brjóta samninga lútandi að því, að
ekki yrðu negrar fluttir hingað á
vegum hersins. Íslendingar hafa
ekki haft af kynþáttavandamálum
að segja og ætla sér ekki að fá þessa
innflutningsvöru að vestan.”
Ég er fæddur árið 1986 og þeg-
ar ég var að alast upp voru Eddie
Murphy og Michael jordan algjör-
ar hetjur í mínum augum. Ég hef
aldrei verið mikill áhugamaður um
körfubolta en ég man vel að ég vildi
nota skósvertu til að líta út eins og
Michael jordan á Öskudeginu, hann
var bara svo frábær. Ég myndi auð-
vitað ekki klæða mig í „blackface“
búning í dag, en það sem ég meina
með þessu er að börn fæðast ekki
með fordóma. Fordómar koma úr
samfélaginu í kringum okkur. Bless-
unarlega er mun minna af fordóm-
um í íslensku samfélagi í dag mið-
að við fyrri tíma en þetta hugarfar
er ekki sjálfsagður hlutur. Ég er alls
ekki saklaus af fordómum, en ég
reyni mitt besta að vera gagnrýn-
inn á hugarfar mitt og samfélagsins í
kringum mig.
Það sem veldur mér áhyggjum er
að skoða samfélagsmiðlana í dag og
lesa hvað sumt fólk sem er „virkt í
athugasemdum“ er að skrifa við
fréttirnar frá Bandaríkjunum. Ég vil
ekki hafa eftir þeirra skrif hérna, en
ég get sagt að það er eins og sumir
heima á Íslandi séu enn með hugar-
farið sitt fast lengst aftur í fornöld.
Treystið mér, það eru engar
skessilegar skepnur frá Blálandi, ég
bý hérna og er umkringdur dásam-
legu fólki, já og hundi sem er að
hressast. Árið er 2020, allt fólk er
mannfólk og við eigum öll að berj-
ast saman gegn kynþáttafordómum
og hatri.
Geir Konráð Theódórsson í Níger
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
standa á föstudaginn kl. 9 fyrir vef-
ráðstefnu um aukið samstarf safna
í landshlutanum. Ráðstefnan hefst
á fræðsluerindum um safnastarf
og starf safna á landsbyggðinni, en
seinni hluti ráðstefnunnar er mál-
þing safnafólks, starfsmanna menn-
ingarverkefna sveitarfélaganna og
nefndarmanna menningarmála-
nefnda á Vesturlandi. Fræðsluer-
indin eru öllum opin og verða
streymt á Facebook síðu SSV úr
Safnahúsi Borgarfjarðar.
Að sögn Sigursteins Sigurðs-
sonar menningarfulltrúa SSV er
ráðstefnan hluti af stærra verkefni.
„Samkvæmt Byggðaáætlun ríkis-
stjórnarinnar 2018-2024 er gert
að markmiðum að auka samstarf
safna á landsbyggðinni og jafn-
framt er þetta eitt af áhersluverk-
efnum Sóknaráætlunar Vesturlands
2020-2024. Ráðstefnan er sam-
starfsverkefni SSV og ráðgjafafyrir-
tækisins Creatrix, en að viðburðin-
um kemur Muninn kvikmyndagerð
á Akranesi, sem sér um útsendingu
ráðstefnunnar, og Safnahús Borg-
arfjarðar.“ mm
Tökur á sjónvarpsþættinum Systra-
bönd hófust í Ólafsvík á mánudag-
inn, 8. júní, og standa yfir þessa
dagana. Um er að ræða glæpa-
þætti í leikstjórn Silju Hauksdótt-
ur. Þættirnir fjalla um hvarf þrettán
ára stúlku um aldamótin síðustu og
þrjár æskuvinkonur sem þurfa að
horfast í augu við fortíðina 19 árum
síðar. Tökurnar eru á vegum fram-
leiðslufyrirtækisins Sagafilm.
Á meðan á tökum stendur kunna
einhverjar takmarkanir að verða á
umferð um ákveðnar götur bæjar-
ins. Engum götum verður lokað
en fólk gæti þurft að hinkra stutta
stund á meðan verið er að taka upp,
að því er fram kemur á vef Snæfells-
bæjar.
kgk/ Ljósm. af
Bláland hið mikla og kynþáttafordómar
Vestlendingurinn Magnús Stephensen.
Flokkun og greining steinasafns náttúrugripasafnsins í Borgarnesi. Hér eru jarð-
fræðingar að störfum. Ráðstefnan nú er samstarfsverkefni SSV, Munins, Creatrix
og Safnahúss Borgarfjarðar. Ljósm. úr safni.
Ræða aukið samstarf
safnafólks á Vesturlandi
Starfsmaður Veitna, dótturfélags OR,
að störfum. Ljósm. úr safni.
Orkuveitan fjölgar sumarstörfum
Tökur standa yfir í Ólafsvík