Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2020, Síða 4

Skessuhorn - 01.07.2020, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 20204 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.590 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.100. Rafræn áskrift kostar 2.815 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.595 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Að leyfa rödd sinni að hljóma Er ekki lífið yndislegt? Þjóðin búin að endurnýja umboð Guðna Th til áfram- haldandi búsforráða á Bessastöðum, lýðræðið hefur talað með sinni fegurstu rödd, lúpínan á þessa einu fallegu viku sem hún á árlega, veðrið leikur við hvurn sinn fingur og Óli apótekari græðir á tá og fingri á því að selja efni til að slá á lúsmýskláðann. Kýrnar eru komnar út, laxveiðimenn búnir að sleppa sama laxinum nokkrum sinnum en í strandveiðinni sleppa menn engu. Landsmenn þeytast nú um koppagrundir og hamast við að ákveða hvernig þeir munu skipta fimmþúsund króna ferðatékkanum sem kominn er í símann hjá þeim sem eiga svoleiðis síma. Já, lífið er yndislegt. Við litla fjölskyldan við Langasand tókum daginn frekar snemma á laugar- daginn. Eftir að hefðbundnum morgunverkum lauk, var farið á kjörstað. Há- tíðlegri stund en oft áður því átján ára dóttirin fékk nú í fyrsta skipti að kjósa í almennum kosningum. Þá er maður nefnilega orðinn fullorðinn og þarf að afla sér upplýsinga um hvernig atkvæðisréttinum verður varið. Hún var heppin blessunin. Það var frekar fljótlegt að kjósa núna í samanburði við kosningar til Alþingis eða hreppsnefnda. Nú voru valkostirnir einungis tveir og það tók ekki mjög langan tíma að setja sig inn í málið til að geta tekið upplýsta ákvörðun. Málið mun hins vegar vandast mjög á næsta ári þegar við þurfum að endurnýja umboð alþingismanna. Þá verða valkostirnir miklu fleiri og ógegnsærri, fólk þarf t.d. að kynna sér stefnumál og mannkosti frambjóðenda til að taka ákvörð- un sem fellur næst hagsmunum viðkomandi. Ég mun t.d. bera saman loforð og efndir áður en ég vel. Þar sem ár er í kosningar má fara að búast við því að stjórnmálin breytist töluvert mikið. Við förum að sjá ýmis álitleg boð sem fela í sér aukna hagsæld, betri tíma, blóm í haga og jafnvel verða einhverjir sem munu lofa meðvindi á hjólastígunum. Við munum upplifa gylliboð sem ekki verður innistæða fyrir, við munum einnig upplifa að pólitískir andstæðingar verða nýddir niður. Okkar er svo að hafa skynsemi til að velja úr þessum upplýsingum og hafna því sem ekki byggir á rót sannleikans. Mestar áhyggjur hef ég af því að gæði frétta og miðlunar efnis verði ekki nægjanlega mikil. Þótt að nýafstaðin kosningabarátta um forseta hafi verið tiltölulega einfaldur hlutur, fannst mér vera of mikið um rangar upplýsingar í umferð. Nefni af handahófi skoðanakannanir sem voru út úr kortinu. Af þeirri ástæðu að þær voru vísvitandi illa unnar. Gáfu því kolranga mynd af raunverulegu fylgi þessara tveggja karla sem buðu fram krafta sína. En það voru ekki einungis skoðanakannir sem voru slæmar. Verst þótti mér hversu margir voru tilbúnir til að rægja gagnaðilann í stað þess að verja kröftum sínum í að benda á kosti þess sem þeir studdu. Þessi galopna umræða sem fer fram á opnum samfélagsmiðlum sýndi sannarlega sitt rétta andlit og þess vegna ber ég ákveðinn kvíðboga fyrir því ári sem nú fer í hönd þar sem allflestir fjölmiðlar landsins eru í boði hagsmunaafla af ýmsu tagi og samfélagsmiðlar eru svona eins og kerfillinn, troða sér víðar en æskilegt væri. Fyrir og eftir kosningarnar á laugardaginn voru býsna margir sem lýstu andúð sinni vegna þess kostnaðar sem felst í að halda kosningar. Nefndu 400 milljónir. Hvaða skoðun sem menn hafa á frambjóðendum, var það hins vegar lýðræðið sem talaði. Guðmundur Franklín Jónsson hafði ótvíræðan rétt til að bjóða sig fram. Niðurstaðan varð hins vegar mjög afgerandi og nú mun Guðni Th Jóhannesson sitja annað kjörtímabil með glæsilegan stuðning þjóðarinnar á bakvið sig. 400 milljónir eru smáaurar í öllu samhengi þegar lýðræðið fær að tala. Það sem ég gagnrýni mest við þessar kosningar er hinsvegar sú staðreynd að réttur þriðjungur þjóðarinnar kaus ekki. Ákvað að sitja heima og láta aðra sjá um valið fyrir sig. Það fannst mér slappt. Kjördagur þjóðar er nefnilega hátíðis- dagur hverju sinni og þann rétt sem okkur er færður eiga allir að nýta sér. Það gerir lífið nefnilega svo miklu yndislegra að vera virkur þegn í samfélaginu og leyfa rödd sinni að hljóma þegar óskað er eftir því. Magnús Magnússon Skráningum í sumarnám háskól- anna fjölgar mikið og höfðu um miðja síðustu viku 5.100 nemend- ur skráð sig í slíkt nám og rúm- lega 330 í sumarnám framhalds- skólanna. Aðgerðum stjórnvalda er ætlað að sporna gegn atvinnuleysi og efla virkni og menntun með- al ungs fólks og atvinnuleitenda. Alls er 800 milljónum kr. varið til að efla sumarnám og 2,2 milljörð- um kr. í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir náms- menn. Upplýsingar um framboð og námskosti í sumarnámi má finna á vefnum næstaskref.is/sumarnam. Bæði er hægt að taka einingarbæra áfanga sem og fjölbreytt námskeið en sérstök áhersla er á nám sem nýtist sem undirbúningur fyrir há- skólanám, námskeið á sviði iðn- og verknáms, valkosti á sviði símennt- unar og færnibrýr fyrir atvinnuleit- endur sem vilja skipta um starfs- vettvang. mm Í síðustu viku var undirritað- ur endurnýjaður samningur milli Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) og Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Eldri samningurinn byggði á samstarfi um sameiginlega nátt- úrufræðibraut með búfræðisviði til stúdentsprófs þar sem nemendur taka fyrstu tvö árin í Menntaskóla Borgarfjarðar og síðari tvö árin á Hvanneyri til búfræðiprófs. Nem- endur útskrifast þá eftir fjögurra ára nám með sameiginlega gráðu sem stúdent og búfræðingur. Nú hefur samningurinn ver- ið útvíkkaður og tekur einnig til náms í garðyrkjubrautum LbhÍ á Reykjum. Nemendur geta þá stundað nám til stúdentsprófs og búfræðings eða garðyrkjufræð- ings. Þá hefja þeir fyrri tvö árin í MB og síðari tvö á Reykjum eða Hvanneyri. Á Reykjum er hægt að velja á milli sex brauta; ylrækt- ar, lífrænnar ræktunar matjurta, garð- & skógarplöntuframleiðslu, skrúðgarðyrkju, blómaskreytinga og skóg & náttúrubraut (skóg- tækni). Búfræðin er svo kennd á Hvanneyri. Bragi Þór Svavarsson skóla- meistari MB segir það mik- ið ánægjuefni fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar að geta útvíkkað samstarfið við Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri enn frekar. „Nú bjóðum við nemendum okk- ar ekki einungis að útskrifast sam- hliða sem búfræðingur og stúdent heldur núna sem garðyrkjufræð- ingur og stúdent. Við í MB höf- um fundið fyrir auknum áhuga á þessari námsleið og greinilegt að margir sjá hana sem gott tækifæri“ segir Bragi um samstarfið. Allt að fimm nemendur sem innritast árlega á brautina hjá MB eiga vísa skólavist í búfræði ann- arsvegar og garðyrkju hinsvegar hjá LbhÍ eftir að hafa lokið þeim hluta námsins sem fram fer í MB. Nemendur sem velja að stunda nám á garðyrkjubrautum útskrif- ast sem garðyrkjufræðingar eftir að hafa lokið 60 vikna verknámi undir handleiðslu meistara eða garðrykjufræðings ásamt bók- og verklegu námi við LbhÍ á Reykj- um. „Landbúnaðarháskóli Íslands og Menntaskóli Borgarfjarðar hafa í nokkur ár átt farsælt samstarf um sameiginlega braut til stúdents- prófs og búfræðings. Það er mikið gleðiefni að sá samningur hafi ver- ið endurnýjaður og taki nú einn- ig til garðyrkjunámsins þannig að nemendur okkar geti tekið stúd- entspróf samhliða námi til garð- yrkjufræðings” segir Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor LbhÍ við undirskrift samnings. mm Fyrr í sumar var skrifað undir verk- samning við Borgarverk ehf. um endurgerð á Faxabraut á Akranesi og grjótvörn meðfram henni. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni bárust fjögur tilboð í verkið og voru Borgarverksmenn hlutskarpastir en tilboð þeirra var upp á 467 millj- ónir króna, eða 87,9% af áætluð- um verktakakostnaði. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinn- ar, Akraneskaupsstaðar auk Veitna og Mílu og var boðið út á evrópska efnahagssvæðinu. Verkefnið sem um ræðir er sömuleiðis stór þáttur til að uppbygging á Sementsreitn- um geti hafist, en hækka þarf yfir- borð götunnar umtalsvert og laga sjóvarnargarð áður til að tryggja ör- yggi fyrir uppbyggingu svæðisins. Stefnt er að því að Borgarverk hefjist handa með haustinu og að verkinu verði að fullu lokið eigi síð- ar en 1. september 2021. mm Nám til stúdentsprófs og garðyrkjufræði Bragi Þór Svavarsson skólameistari MB og Ragnheiður Þórarinsdóttir rektor LbhÍ með endurnýjaðan og útvíkkaðan samning. Ljósm. LbhÍ. Metaðsókn er í sumarnám Frá undirritun verktakasamnings. Frá vinstri: Sæmundur Víglundsson og Óskar Sigvaldason frá Borgarverki, Alfreð Þór Alfreðsson, Jón Ólafsson, Sævar Freyr Þráinsson og Sigurður Páll Harðarson frá Akraneskaupstað, Pálmi Þór Sævarsson frá Vegagerðinni, Sverrir Reynisson frá Mílu og Helgi Helgason frá Veitum. Ljósm. Vegagerðin. Skrifað undir verktakasamning um Faxabraut á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.