Skessuhorn - 01.07.2020, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 2020 9
Félagsstarf fyrir aldraða og öryrkja
sumarið 2020
Félagsstarf að Kirkjubraut 40
Félagsstarfið er fyrir aldraða og öryrkja og hvetjum við alla þá sem hafa áhuga á að kynnast
starfinu, njóta samveru með öðrum og nýta sér það sem verður boðið upp á í sumar að mæta.
Allir velkomnir.
Félagsstarfið verður opið að Kirkjubraut 40 alla daga frá 29. júní til 14. ágúst 2020
kl. 13:00-16:00. Lögð er áhersla á að fólk geti mætt og sinnt þeim verkefnum sem
þeim hentar hverju sinni á þessum tíma. Fyrst og fremst er lögð áhersla á samveru.
Hlustað verður á óskir fólks um viðburði og verkefni.
Boðið verður upp á ýmsa viðburði s.s. gönguferðir og námskeið. Verður það auglýst
sérstaklega á heimasíðu Akraneskaupstaðar, facebooksíðu félagsstarfsins, á facebooksíðu
FEBAN og einnig verða settar auglýsingar í félagsstarfið vikulega.
Félagsstarfið má finna á facebook undir nafninu félagsstarf aldraðra og öryrkja á Akranesi.
Dagskrá 29. júní til 14. ágúst 2020
Starfsmenn eru: Brynjar Már, Rakel Rósa og Þorgils
Mánudagar
Kl. 13.00-16.00 Opið fyrir alla.
Kl. 13.00-16.00 Kennsla á spjaldtölvu og snjallsíma. Brynjar og Þorgils sjá um.
Heitt á könnunni
Þriðjudagar
Kl. 13.00-16.00 Opið fyrir alla. Heitt á könnunni
Kl. 12.45-13.15 Stólaleikfimi. Brynjar og Þorgils eru leiðbeinendur.
Miðvikudagar
Kl. 13.00-16.00 Opið fyrir alla. Heitt á könnunni
Kl. 10.30-11.00 Gönguferð undir leiðsögn. Hist á Aggapalli.
Ganga sem hentar öllum en lögð er áhersla á að fara hægt yfir.
Brynjar og Þorgils sjá um.
Fimmtudagar
Kl. 13.00-16.00 Opið fyrir alla - skipulagður viðburður hvern fimmtudag og auglýst
sérstaklega. Umsjón í höndum Rakelar Rósar. Heitt á könnunni
Kl. 12.45-13.15 Stólaleikfimi. Brynjar og Þorgils eru leiðbeinendur.
Föstudagar
Kl. 13.00-16.00 Opið fyrir alla. Heitt á könnunni.
Borgnesingurinn Eygló Lind Eg-
ilsdóttir fagnaði 70 árunum á laug-
ardaginn þegar hún sló til heljar-
innar veislu í tilefni dagsins. Haldið
var opið hús um miðjan dag í Stöð-
ulsholtinu í Borgarnesi hjá dóttur
hennar, Sonju Lind, þar sem öllum
vinum og fjölskyldu Eyglóar var
boðið að þiggja veitingar og sam-
gleðjast með Eygló sem hefur varið
stórum hluta ævi sinnar í að gleðja
aðra í kringum sig. Blaðamað-
ur Skessuhorns, sem er jafnframt
frænka Eyglóar, kíkti í heimsókn í
veisluna með myndavél undir hönd
og smellti nokkrum myndum.
glh
Eygló Lind
70 ára
Blásið var á kerti í tilefni dagsins með aðstoð frá barnabörnum.
Lögreglumennirnir Þórður og Rúnar
kíktu við til að óska afmælisbarninu til
hamingju með daginn. Í fyrstu þóttust
þeir vera komnir til að stöðva veisluna
vegna Covid-19. Leiðréttu það svo
snarlega.
Róbert Liljar, yngsta barnabarn Eyglóar ásamt Mörthu Lind yngstu dóttur
Eyglóar, Eygló og Hilda Lofts.
Tvö af börnum Eyglóar, Kristín Lilja og
Ingi Björn í góðu stuði.
Sonja Lind og Kristín Lind, dóttir og
barnabarn Eyglóar.
Nóg var af veglegum veitingum í boði fyrir veislugesti.
Eygló Lind er rík af vinum og fjölskyldu
í kringum sig sem létu sig ekki vanta á
afmælisdaginn.