Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2020, Page 10

Skessuhorn - 01.07.2020, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 202010 Í sumar gerir Vinnuskóli Akra- neskaupstaðar tilraun með hey- net í stað svartra ruslapoka til að fjarlægja gras af flötum bæjarins. Í sumar verður þó blönduð notk- un á þessum tveimur tegundum af pokum á meðan aflað er reynslu og gerðar viðeigandi ráðstafanir áður en skrefið verður tekið til fulls, eins og fram kemur á vef Akraneskaup- staðar. Heynet eru fjölnota pokar undir gras sem saumaðir eru í Mosfellsbæ af fyrirtækinu Heyneti. Pokarn- ir eru sterkir og endingargóðir og auðvelt er að gera við þá. Pokarnir eru í sniðinu líkt og pulsa og rúm- ar hver þeirra um það bil það sama og fjórir svartir ruslapokar. „Vinnu- skólinn hefur áður reynt fyrir sér með aðrar lausnir í fjölnota pok- um sem ekki hafa gengið að óskum. Pokarnir loftuðu þá ekki nægilega vel sem varð til þess að þeir fóru mjög fljótlega að lykta illa. Netin eru í eðli sínu með mikla loftun og er von um að það minnki líkur á því vandamáli.“ Vinnuskólinn á Akranesi hefur árlega verið að nota yfir tíu þúsund svarta ruslapoka og hafa þeir ým- ist verið notaðir einu sinni eða oft- ar. „Með þessari lausn nær vinnu- skólinn u.þ.b. að helminga notkun svartra ruslapoka fyrst um sinn en í framtíðaráætlunum verða einungis fjölnota pokar í notkun. Þetta verk- efni er einn liður í því að minnka kolefnisspor sveitarfélagsins og taka ábyrgð á eigin neyslu og er takmörkuð notkun á einnota um- búðum lítið skref í átt að bættri framtíð,“ segir í frétt bæjarins. mm/ Ljósm. Akraneskaupstaður. Lúsmý hefur plagað fólk víða um vestanvert landið að undanförnu. Fluga þessi er agnarsmá og kviknar ekki til lífs og ferðalaga fyrr en kom- ið er fram í júní. Ólafur Adolfsson lyfsali í Apóteki Vesturlands seg- ir ljóst að lúsmý hafi á undanförn- um dögum verið í talsverðum vexti. Það tengist bæði árstímanum og hægviðrisdögum. Mest telur hann að hafi orðið vart við lúsmý í Graf- arvogi, upp í Kjós og í Borgarfirði, en þó segir hann það vera í frekari útrás. Nefnir að búið sé að stað- festa lúsmý í Húnavatnssýslunum. Besta ráðið gegn biti að nóttu segir Ólafur vera að hafa viftu í svefnher- bergisgluggum sem blási út. Þá nái flugan einfaldlega ekki inn í hús. Hann segir mjög mismunandi eftir einstaklingum hvernig þeir bregð- ast við biti. Sumir finna ekki fyrir neinu, en makinn er hugsanlega al- settur biti. Ekki hafi verið sýnt fram á að bitin tengist mismunandi blóð- flokkum. Ólafur segir allavega ljóst að flugan er í vexti, sala á eitri og smyrslum hafi aukist mikið að und- anförnu og samhliða góðu veðri næstu daga sé því rétt að vera vel á verði. mm „Nýtt malbik verður lagt yfir kafla á Kjalarnesi á milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga um leið og aðstæð- ur leyfa, á þeim kafla þar sem ný- lögn stenst ekki staðla og útboðsskil- mála varðandi viðnám. Vegarkafl- inn var mældur á mánudagsmorgun og reyndist mun hálli en kröfur eru gerðar um af Vegagerðinni,“ sagði í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á þessum vegarkafla varð banaslys þeg- ar tveir sem voru á mótorhjóli lentu í árekstri við húsbíl sem kom úr gagn- stæðri átt um nónbil á sunnudaginn. Sama á við um kafla við Gullinbrú í Reykjavík, en sá kafli verður fræst- ur og endurlagður. Aðrir kaflar sem gætu verið of hálir verða skoðaðir og lagfærðir ef þörf reynist á. „Í ljósi þess hörmulega slyss sem varð á sunnudag á Vesturlandsvegi norðan Grundarhverfis fer Vega- gerðin nú yfir málið. Farið verður ofan í þessa einstöku framkvæmd með þeim verktökum sem að þeim koma en auk þess verða verkferl- ar skoðaðir og breytingar gerðar til þess að freista þess að svona atburður endurtaki sig ekki. Starfsfólk Vega- gerðarinnar er slegið yfir þessu slysi og hugur okkar er með ættingjum og aðstandendum þeirra sem létust í slysinu. Umferðaröryggi er eitt það mikilvægasta í öllum störfum Vega- gerðarinnar.“ Þá segir í tilkynningu Vegagerðar- innar að hraði hafi verið tekinn nið- ur á þessum köflum og verður fylgst með viðnáminu og leyfilegur hraði hækkaður þegar aðstæður leyfa. Þekkt er að nýlagt malbik er hálla í byrjun en jafnar sig nokkuð hratt. „Í tilvikum sem hér um ræðir er viðnámið hinsvegar þannig að ekki verður við unað og því er brugðið til þess ráðs að leggja nýtt malbik yfir. Til framtíðar verður sú regla einn- ig tekið upp við lagningu malbiks að hraði verður ætíð tekinn niður. Hraðinn verður ekki hækkaður fyrr en viðnámið er ásættanlegt. Svæðið verður skiltað þannig að ekki fari á milli mála að mögulega sé malbik hálla en alla jafna og þá sérstaklega í miklum hita og/eða rigningu.“ Þá segir í tilkynningu Vegagerðarinn- ar að vegfarendur eru hvattir til að aka varlega og hafa í huga að næstu daga er spáð miklum hita og skúrum og aðstæður geta því fljótt breyst til hins verra.“ mm Banaslys varð á Kjalarnesi laust eft- ir klukkan þrjú síðastliðinn sunnu- dag. Tveir létust þegar bifhjól og húsbíll sem komu úr gagnstæðri átt rákust saman. Þeir sem létust voru báðir á bifhjólinu; ökumaður og farþegi. Ökumaður annars bifhjóls sem kom aðvífandi missti stjórn á hjóli sínu og féll af því. Sá var flutt- ur á Landspítalann til aðhlynning- ar og er líðan hans eftir atvikum, samkvæmt upplýsingum frá Lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgöngu- slysa rannsaka tildrög slyssins. Ekki er grunur um hraðakstur, en sjón- ir rannsakenda beinast að malbiki sem lagt var fyrir helgina á veg- arkafla á Kjalarnesi. Malbikið var flughált á slysstað. Vesturlandsvegi var lokað frá því skömmu eftir slysið og þar til klukkan var langt gengið í sjö um kvöldið meðan björgunaraðilar og rannsóknarteymi voru að störfum á vettvangi. Mikið umferðaröng- þveiti skapaðist þar sem straum- ur fólks lá um svæðið og margir á heimleið úr helgarfríi. Á tímabili náði röð bíla allt frá Mosfellsbæ og norður fyrir Grundartanga, þrátt fyrir að fjöldi fólks færi hjáleið um Kjósarskarð. Vegna umferðartepp- unnar var þyrla Landhelgisgæsl- unnar kölluð út til að flytja sjúkling af Vesturlandi á sjúkrahús í Reykja- vík. mm Tveir létust í umferðarslysi Vesturlandsvegur á Kjalarnesi á svipuðum slóðum og banaslys varð á sunnudag- inn. Ljósm. Vegagerðin. Nýtt malbik verður lagt yfir á Kjalarnesi Fjölnota netpokar Lúsmý vaxandi plága í góða veðrinu Haustið 1947 hófst framhaldsnám í búfræði við nýstofnaða Fram- haldsdeild við Bændaskólann á Hvanneyri. Námstíminn var tvö ár til viðbótar við hefðbund- ið búfræðinám, með sumarlöngu verknámi á milli námsára. Síðar var sjálft kandídatsnámið lengt í þrjú ár og einnig gerð krafa um viðbótar undirbúningsnám í al- mennum greinum. Bændaskólinn á Hvanneyri, síðar Landbúnað- arháskóli Íslands, hefur frá árinu 1949 reglulega útskrifað nem- endur á háskólastigi, BSc.- bú- fræðikandídata. Þeir hafa farið til fjölbreyttra starfa í landbúnaði og á öðrum vettvangi. Þá hafa all- margir þeirra sótt framhaldsnám við erlenda háskóla, sem hafa þar með viðurkennt kandídatsnám- ið á Hvanneyri sem fyrstu próf- gráðu við háskóla. Í júní 1970 luku níu nemend- ur búfræðikandídatsnámi BSc. frá Hvanneyri. Í tilefni þessara tíma- móta var 50 ára afmælisins minnst 26. júní síðastliðinn með sam- komu á Hvanneyri. Þar afhenti hópurinn Hvanneyrarstað níu sérvaldar og traustar birkiplöntur við hátíðlega athöfn, að viðstödd- um rektor skólans og gestum. Hinir fyrrverandi nemendur eru; Árni Snæbjörnsson, Guðmundur P. Steindórsson, Jón Atli Gunn- laugsson, Ríkharð Brynjólfsson, Sigurður Karl Bjarnason, Sig- urjón Bláfeld Jónsson (látinn), Tryggvi Eiríksson, Þorsteinn H. Gunnarsson og Þorvaldur G. Ágústsson. Dr. Ragnheiður I. Þórarinsdótt- ir rektor Landbúnaðarháskólans þakkaði fyrir góða gjöf og greindi frá núverandi starfi skólans og framtíðaráformum. Fram kom í máli rektors að mikil aðsókn er að skólanum, bæði á framhalds- skólastigi og háskólastigi. Að at- höfn lokinni, í fallegum lundi hjá læknum við Gamla skólann, var gestum boðið til kaffisamsætis í Skemmunni á Hvanneyri. ás Búfræðikandídatar héldu upp á 50 ára útskriftarafmæli Frá vinstri: Jón Atli Gunnlaugsson, Þorvaldur G. Ágústsson, Þorsteinn H. Gunnarsson, Sigurður Karl Bjarnason, Ríkharð Brynjólfsson, Tryggvi Eiríksson, Árni Snæbjörnsson og Guð- mundur P. Steindórsson. Frá vinstri; Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor LBHÍ, Guð- mundur P. Steindórsson, Þorvaldur G. Ágústsson, Tryggvi Eiríksson, Sigurður Karl Bjarnason, Ríkharð Brynjólfsson, Þorsteinn H. Gunnarsson, Jón Atli Gunnlaugsson og Árni Snæbjörnsson.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.