Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2020, Síða 11

Skessuhorn - 01.07.2020, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 2020 11 Mikill fjöldi umsókna hefur borist Landbúnaðarháskóla Íslands bæði í háskólanám og starfsmenntanám skólans. Aðsóknin í grunnám (BS) við skólann jókst um 51,1% á milli ára. Aukningin er hlutfallslega mest í BS-nám í landslagsarkitektúr, eða 240% á milli ára. Fjölgun um- sókna í garðyrkjunám á Reykjum er 45% og umsóknum í búvísindanám fjölgaði um 40%. Við skólann er einnig boðið upp á framhaldsnám til meistara- og doktorsgráðu. Á meistarastigi er boðið einstaklingsmiðað rannsókn- anám og starfsmiðað meistaranám í skipulagsfræði. Í skipulagsfræði er mikil aukning frá því í fyrra en 18 eru skráðir til náms á fyrsta ári í haust, en til samanburðar voru sjö nemendur árið áður. Nemendum í doktorsnámi hefur fjölgað á undan- förnu ári og hafa aldrei verið fleiri en nú. Þá er gaman að nefna að tveir nemendur vörðu doktorsrit- gerðir sínar nú í júní mánuði. Landbúnaðarháskóli Íslands býr við þá sérstöðu að bjóða bæði upp á háskólanám og starfsmennt- anám á framhaldsskólastigi. Að- sókn í starfsmenntanám skólans sló öll fyrri met í vor með samtals 280 umsóknum. Má þar sérstaklega nefna góða aðsókn í garðyrkjunám á Reykjum þar sem 136 umsóknir bárust og hafa þær aldrei verið jafn- margar í sögu skólans. Flestir sækja um í lífræna ræktun matjurta en þar sóttu 45 nemendur um nám. Að- sókn er einnig góð í ylrækt með 26 umsóknir og 10 í garð- og skógar- plöntuframleiðslu. Á Hvanneyri fer starfsmennt- anám í búfræði fram og er mjög góð aðsókn þar og komast færri að en vilja. Leitað er leiða til að mæta þessari eftirspurn, að því að fram kemur í tilkynningu frá skólanum. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands segir það vera mikið gleðiefni að sjá hversu mikinn áhuga ungt fólk sýn- ir námi í Landbúnaðarháskóla Ís- lands og hversu dreifing umsókna er mikil. „Það er gaman að sjá auk- inn áhuga á búvísindanámi, en þar hefur orðið aukning um 40% milli ára. Mikilvægt er að fjölga vísinda- mönnum á breiðu sviði búvísinda, en þar hefur skort á nýliðun á und- anförnum árum. Þá er greinilegt af umsóknum til brautar náttúru- og umhverfisfræða að áframhald- andi áhugi er á sjálfbærri þróun og jafnvægi verndunar og nýtingar. Þá gleður það mig sérstaklega að sjá þá þessa miklu fjölgun umsókna í starfsmenntanámið okkar, bæði á Hvanneyri og á Reykjum. Aldrei hafa fleiri sótt um að komast að í garðyrkjunámi á Reykjum og færri komast að en vilja í búfræði.“ mm Nýverið framlengdu Mennta- skóli Borgarfjarðar og Sjúkrasjóð- ur Stéttarfélags Vesturlands sam- komulag sem felur í sér stuðning við nemendur sem stunda nám í MB í formi endurgreiðslu á sál- fræðiþjónustu. Samningurinn er til næstu tveggja skólaára og er hugs- aður sem forvörn gegn brottfalli nemenda úr skóla. Bragi Þór Svavarsson skóla- meistari segir að gegn tilvísun frá námsráðgjafa skólans geti hver nemandi fengið endurgreiðslu eða styrk fyrir allt að fjórum sálfræði- tímum á skólaári. Skólinn greið- ir fyrsta tímann en Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá tíma að hámarki. Sjúkrasjóð- ur Stéttarfélags Vesturlands hefur styrkt nemendur MB með þessum hætti síðustu ár og að þessu sinni var gerður samningur til tveggja ára. „Stjórnendur Menntaskóla Borgarfjarðar eru afar þakklátir aðilum Sjúkrasjóðs Stéttarfélags Vesturlands og vilja koma því á framfæri að styrkur sem þessi er ómetanlegur fyrir skólann og nem- endur hans,“ segir Bragi Þór Svav- arsson. mm Metaðsókn í Landbúnaðarháskóla Íslands Samið um styrk til sálfræðiráðgjafar Reykholtskirkja Verið velkomin í Reykholtskirkju 4. sd. e. Festum Trinitatis Messa í Reykholtskirkju kl. 14 Sunnudaginn 5. júlí Ferming: Dagbjört Rós Jónasdóttir, Kjalvararstöðum Sóknarprestur S K E S S U H O R N 2 02 0 / L jó sm . G uð la ug ur Ó sk ar ss on velkomin í Stykkishólm 4. júlí 2020 SKOTTHÚFAN Í FÓTSPOR FJALLKONU Gamla Stykkishólmskirkja kl. 10:30 KOMIN MEÐ BÚNING, HVAÐ SVO? Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir Eldfjallasafnið kl. 13:00 HELGIGRIPUR EÐA VEISLUKLÆÐI? Anna Karen Unnsteinsdóttir Eldfjallasafnið kl. 13:30 DANSINN OG BÚNINGARNIR Atli Freyr Hjaltason Eldfjallasafnið kl. 14:00 BÚNINGASKART Júlía Þrastardóttir gullsmíðameistari Norska húsið kl. 11:00 - 17: 00 MYNDATAKA Myndataka við Norska húsið kl. 15:00 KAFFIBOÐ Í BETRI STOFUNNI Gestum í þjóðbúningum er boðið upp á kaffi og rjóma- pönnukökur að hætti kvenfélagskvenna í Stykkishólmi. Norska húsið kl. 15:15 DANSVINNUSTOFA Sporin kennd, æfð og stigin fyrir kvöldið. Eldfjallasafnið kl. 17:00 DANSINN STIGINN Atli Freyr, Eydís Gauja, Elizabeth Katrín og Hrefna stýra balli í Eldfjallasafninu kl. 21:00 SÓKNARÁÆTLUN VESTURLANDS Lista- og menningarsjóður Stykkishólmsbæjar norskahusid.is f norskahusid f skotthufan Bókamarkaðurinn á Snæfells- nesi var opnaður í Grundarfirði á sunnudaginn en það eru meðlimir í leshópnum Köttur út í mýri sem standa að markaðnum og er þetta annað sumarið í röð sem hann er settur upp. Þar er að finna ýmsar bækur, bæði nýjar og gamlar. Mark- aðurinn er staðsettur við Borgar- braut 2 og verður hann opinn all- ar helgar fram í ágúst. Í tilefni opn- unarinnar var boðið upp á veitingar og kom Karl Jóhann Jóhannsson og las fyrir börnin og höfðu þau gam- an af. arg/ Ljósm. aðsendar Kalli las fyrir börnin af mikilli innlifun. Bókamarkaðurinn á Snæfellsnesi opnaður Jenný, Lilja og Herdís eru allar í leshópnum Köttur út í mýri. Hér eru þær að njóta góða veðursins á opnunardegi.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.