Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 14

Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 202014 Brákarhátíð var haldin hátíðlega í Borgarnesi um helgina og náði hátíðin hámarki á laugardeginum með fjölbreyttum viðburðum á víð og dreif um bæinn. Byrjað var að skreyta götur í hverfislitunum í upphafi vikunn- ar. Froðugamanið var að vanda í Kveldúlfsgötunni á fimmudag- inn þegar Slökkvilið Borgarfjarð- ar mætti á staðinn og bleytti vel í mannskapnum sem lék sér í froð- unni í blíðskaparveðri. Á föstudag fóru fram götugrill þar sem íbúar voru duglegir að hópa sig saman og grilla góðan mat. Gula hverfið sló í partí og tónleika við Kvíaholt. Dagurinn endaði svo með tónleik- um hjá KK í Borgarneskirkju sem voru vel sóttir. Laugardagurinn er svo aðaldag- ur hátíðarinnar og var eitthvað fyr- ir alla á boðstólnum. Sjósund við Brákarey og bátaferðir úr Englend- ingavík fór fram fyrri part laugar- dags og bauðst öllum gestum að fá kleinur og heitt kakó í kjölfarið. Skömmu eftir hádegi fengu krakkar þær Sollu Stirðu og Höllu Hrekkju- svín úr Latabæ í heimsókn á Skalla- grímsvöll og var sungið saman og teknar góðar æfingar. Stuttmyndir frá fólki úr héraðinu voru sýndar í Félagsmiðstöðinni Óðali yfir daginn og jóga og hug- leiðsla bauðst gestum hátíðarinnar á grasbletti við Kaffi Kyrrð svo fátt eitt sé nefnt. Markaðstorg barna var í Félagsbæ og einhverjir kepptu í Bubblebolta á gervigrasvellinum við Grunnskólann í Borgarnesi. Fór hátíðin vel fram og voru við- burðir almennt vel sóttir. „Nefnd Hollvinasamtaka Borg- arness, vill þakka fyrir Brákarhátíð. Við viljum koma á framfæri þakk- læti til Sigursteins Sigurðssonar, Imbu Hargrave og Erlu Kristjáns- dóttur fyrir sína þátttöku í hátíðar- höldunum. Einnig viljum við þakka þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til og komu að hátíðinni með ein- um eða öðrum hætti. Að lokum viljum við þakka þeim frábæru fyr- irtækjum sem styrktu hátíðina í ár,“ sagði í tilkynningu frá nefndinni að hátíð lokinni. glh Blíða á Brákarhátíð Mikið stuð var á krökkunum þegar íbúar Latabæjar, Solla Stirða og Halla Hrekkjusvík, mættu á Skallagrímsvöll. Froðugamanið í Kveldúlfsgötunni er einn vinsælasti dagskráliðurinn á Brákarhá- tíðinni. Ljósm. Helena Guttormsdóttir. Góð stemning myndast á froðugamaninu. Ljósm. Brákarhátíð. Hlynur Mikael tók í æfingunum frá Sollu Stirðu og Höllu Hrekkjusvíni. Kata á Kaffi Kyrrð tók sér pásu frá störfum og nýtti sér jóga og hugleiðslu í garðinum hjá Blómasetrinu – Kaffi Kyrrð. Ljósm. Brákarhátíð. Einhverjir spreyttu sig í Bubbleboltunum á gervigrasvellinum. Ljósm. Brákarhátíð. Ýmsar skemmtilegar hefðir tengdar Brákarhátíðinni hafa sprottið upp á síðustu árum. Má þar nefna Mini-barinn á Böddanum sem hefur verið í umsjón Gunna Jóns og Guðmundar Eyþórs undanfarin ár. Gummi hafði að vísu látið af störfum en Jón Ingi bróðursonur Gunna kom í hans stað og bauðst gangandi vegfarendum fríir drykkir, áfengir og óáfengir, á föstudeginum sem áttu þar leið hjá. Nokkrir sjósundsgarpar byrjuðu daginn á sjósundi í Brákarey. Ljósm. Brákarhátíð. Englendingavík var í sparibúningi á laugardaginn. Ljósm. Brákarhátíð. Björgunarsveitin Brák bauð gestum upp á bátasiglingar í kringum Brákarey. Ljósm. Brákarhátíð.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.