Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 24

Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 202024 Þetta byrjaði allt með eldgosinu í Eyjafjallajökli fyrir tíu árum síðan. Eiginlega vorum við alveg viss um að gosið hafi hafist vegna þess að við sungum svo kröftuglega þennan veturinn lagið „Eldinn“ úr tónverk- inu Þúsaldarljóð eftir þá bræður Sveinbjörn I. og Tryggva M. Bald- vinssyni. Þar er sungið um náttúru- öflin eld, vatn, loft og jörð og heill- aðist hópurinn af kraftinum í eldin- um í texta Sveinbjarnar. Eldurinn logar langt niðri í jörðu leitar að opinni slóð. Æðir um ganga, grefur sér leiðir, glóandi, ólgandi blóð. Spýtist úr gígum með geigvænu öskri, grásvörtum bólstrum af reyk. Leiftrandi steinar, logandi hraunið, lifandi kraftur að leik. En handann við sortann, háskann og mökkinn, sem heldimmur leggst yfir ból, dansar á himni, dátt yfir landi, dirfskunnar leiftrandi sól. Krafturinn í þessum söng gæti hugsanlega hafa komið af stað eld- gosi, allavegana veltum við því mik- ið fyrir okkur þarna fyrir tíu árum síðan kennarinn og skapandi nem- endurnir með ímyndunaraflið á fullu. Í dag eru þessir fyrrum nem- endur leikskólans sem var fyrsti hópurinn á eldfjallið orðnir 15 ára, sumir 16. Þeir sökktu sér í fróð- leikinn og fylgdust spenntir með fréttum, náðu sér í fræðibækur á bókasafnið, bjuggu til spúandi eld- fjöll úr flestum þeim efnivið sem finna mátti í leikskólanum og eitt leiddi af öðru, við myndum stefna á að klífa eitt eldfjall um vorið. Í raun er þetta lýsing á svo mörgu öðru í leikskólastarfinu. Hópurinn fær brennandi áhuga á einhverju efni, fer á bólakaf í það, kannar á alla mögulegu vegu og ákveður svo saman hvað skuli gera meira úr því. Stundum er það framkvæmanlegt og stundum ekki, en við getum ekki vitað það nema kanna það. Síðan þá hefur ferð á Gráukúlu verið fastur liður í útskriftarferð elstu nemenda leikskólans á vorin, en Gráakúla er eldfjallið sem valið var vorið 2010 til að skoða. Nú í vor var því komið að ell- eftu ferðinni á Gráukúlu. Fjall sem við höfum alltaf fyrir augunum og keyrum framhjá þegar við förum suður fyrir fjall. Þetta telst ekki hátt fjall, 211 metrar yfir sjávarmáli, en er gríðarleg áskorun fyrir börn sem eru flest ennþá fimm ára (bráðum 6). Ferðirnar hafa alltaf gengið vel og á því var ekki undantekning í þetta sinn. Þátttaka aðstandenda barnanna hefur aukist með árunum og þykir eftirsóknarvert að komast með. Sem betur fer því þetta væri erfitt í framkvæmd ef þeirra nyti ekki við. Kærar þakkir fyrir það þið fjölmörgu foreldrar, ömmur, afar, frænkur og frændur sem hafið hjálpað til þessi tíu ár. Við förum á einkabílum upp að eldfjallinu og aldrei hefur vantað bíla. Eitt sinn kom þetta ekki nógu skýrt fram í undirbúningsumræð- unni og nemendi okkar hélt að við myndum ganga alla leið upp í fjall. Svolítið langt en hann ætlaði sko al- veg að láta sig hafa það. Við þurfum að fara eftir reglum. Líkt og við lærum í útikennslunni þá þurfum við að hugsa um nátt- úruna og passa að skilja ekki eft- ir okkur mikil ummerki. Þeir sem hafa farið í flestar ferðirnar þessi tíu ár hafa tekið eftir því að ýmislegt hefur breyst á og við eldfjallið og ágangur hefur augljóslega aukist. Stundum hafa börnin orðið smeik uppi á toppnum en þó að- allega um mömmu sína, hún má ekki detta. Flestir verða hissa þeg- ar upp er komið. Gígurinn er dýpri en við höfðum búist við, bílarnir sem keyra þjóðveginn fyrir neðan svo agnarsmáir og útsýnið dásam- legt. Heilmikil upplifun fyrir bæði smáa og stóra. Og nestið, það skipt- ir alltaf höfuð máli í öllum ferðum með börnum. Auðvitað, við þurfum nú mikla orku í allt sem við viljum gera. Þegar niður er komið tekur hraunið við, fallegir berggangar og ótal myndir sem sjá má í hraun- inu. Það þarf ekki mikið til að vekja ímyndurnaraflið hjá börnunum sem rétt gefa sér tíma til að fá smá nestis- bita áður en haldið er áfram niður á Hraunflöt. Þangað höfum við stefnt síðustu árin og höfum fengið afnot af skálanum og svæðinu þar í kring. Þökkum við eigendum fyrir að taka ár eftir ár vel í bón okkar um að fá lykilinn lánaðann. Eftir að hafa borðað góðan hádeg- ismat út undir berum himni, farið í fjársjóðsleit og könnunarleiðangra um svæðið er haldið heim á leið eft- ir enn eitt ævintýrið, allir stoltir og glaðir yfir að hafa sigrað eldfjallið. Elísabet Lára Björgvinsdóttir, leikskólakennari í Leikskólanum í Stykkishólmi. Jenis av Rana, mennta- og utanrík- isráðherra Færeyja, og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra Íslands heimsóttu Snæfellsnes síð- asta mánudag. Funduðu þeir á Hótel Búðum og fóru að því loknu í skoðunarferð um Snæfellsbæ. Farið var á Arnarstapa, Malarrif, Djúpa- lónssand og Sjóminjasafnið á Hell- issandi undir leiðsögn Ragnhildar Sigurðardóttur. Á ferð sinni komu gestirnir við í Gallerí Jökli í Snæ- fellsbæ þar sem hluti handverks- hópsins þar tók á móti þeim. Með í för voru eiginkonur ráðherranna, Anna av Rana og Ágústa Johnson, og Kristinn Jónasson bæjarstjóri. þa Frá því er greint í nýjasta tölu- blaði bæjarblaðsins Jökuls í Ólafs- vík að ákveðið hafi verið að draga útbreiðslusvæði blaðsins saman að nýju eftir sex mánaða tilraun sem gerð var í desember síðastliðnum. Þá var dreifingarsvæði blaðsins öll sveitarfélögin á Snæfellsnesi. „Því miður hefur komið í ljós að þessi tilraun gengur ekki upp, því ekki hefur reynst rekstrargrund- völlur fyrir þessu fyrirkomulagi. Stærsti kostnaðarliðurinn við út- gáfuna er dreifing, auglýsingar sem tengjast stækkuðu dreifingarsvæði standa ekki undir dreifingarkostn- aði, hvað þá öðrum útgjöldum. Aðal tekjulind Jökuls er af auglýsing- um og eins og hjá flestum öðrum fjölmiðlum hafa þær dregist mikið saman það sem af er ári,“ segir í til- kynningu frá Jóhannesi Ólafssyni útgefanda Jökuls. „Því höfum við ákveðið að draga úr útgáfunni, fara aftur til fyrra horfs og dreifa aðeins í Snæfellsbæ og Grundarfirði eins og gert var fyrir 1. desember 2019,“ bætir hann við. mm Utanríkisráðherra Færeyja á ferð um Snæfellsnes Útbreiðslusvæði bæjarblaðsins Jökuls minnkað að nýju Ellefta ferðin á eldfjallið Pennagrein

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.