Skessuhorn - 01.07.2020, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 2020 25
Sumartónleikar Menningarsjóðs-
ins undir Jökli fara fram næstkom-
andi laugardag í Búðakirkju og er
hún öllum opin af því tilefni. Það
er þríeykið Hljómórar sem flyt-
ur tónlistardagskrá við allra hæfi,
í heldri stofu stíl. Rúna Esradóttir,
Dagný Arnalds og Jón Gunnar B.
Margeirsson mynda dægurorgan-
ismann í Hljómórum en þríradda
söngur og „stofuhljóðfæri“ bera
dagskrána uppi.
Það eru nýjar útsetningar eldri
laga af trúarlegum toga, amerísk
og íslensk sem og alþýðutónlist
sem fangar tíðaranda kirkjunnar á
Búðum. Einnig verða flutt ný lög
Jóns Gunnars við nokkra eldri sál-
ma. Andinn í þessari fallegu og vin-
sælu kirkju hefur laðað ferðalan-
ga, íslenska og erlenda, að þessum
magnaða stað um árabil, en ekki
er hægt að hafa kirkjuna opna al-
mennt fyrir gesti sökum þess. Í su-
mar var aftur á móti tekið upp á því
að hafa kirkjuna opna fyrir gesti alla
fimmtudaga frá kl. 13-16 svo fleiri
hefðu tök á að skoða þessa gersemi
sem endurgerð var í upprunalegri
mynd sinni fyrir rúmum 30 árum
síðan. Kirkjan var reist árið 1847 og
á sér sérstaka og merkilega sögu.
Tónleikar Hljómóra, Alþýðumú-
sík við allra skap - fyrir þrjár raddir
og stofuhljóðfæri fara fram í Búða-
kirkju í Staðarsveit á Snæfellsne-
si laugardaginn 4. júlí kl. 17:00 og
er aðgangur ókeypis en vissulega er
frjálst að styðja starfsemi sjóðsins.
Kirkjan er lítil og rúmar aðeins um
60 manns en það má hafa samband
við sóknarprestinn til að taka frá
sæti fyrir eldri borgara.
-fréttatilkynning
Handverksfólkið í Gallerí Jökli í
Snæfellsbæ opnaði galleríið sitt á
þjóðhátíðardaginn 17. júní. Var
opnað í raun bara til að hafa opið
og átti hópurinn ekki von á því að
mikið yrði að gera. Þessa fyrstu
opnunardaga hefur hins vegar ver-
ið miklu meira að gera en nokk-
ur þorði að vona og er hópurinn
mjög ánægður með viðtökurnar.
Ætlunin er að hafa opið alla daga
frá klukkan 13 til 17 og hand-
verksfókið tekur vel á móti þeim
sem koma við. Galleríið er stað-
sett að Norðurtanga 3 í Ólafsvík.
Á myndinni er hluti handverks-
hópsins sem klæddi sig að sjálf-
sögðu í glæsilegar lopapeysur sem
eru til sölu í galleríinu ásamt fleiri
fallegum vörum svo sem vett-
lingum, húfum, sokkum, kort-
um, hekluðum fígúrum og ýmsu
fleiru.
þa
Ný örsýning var opnuð í Safna-
húsinu í Borgarnesi 27. júní síð-
astliðinn og hefur hún hlotið heit-
ið „Saga úr samfélagi“. Þar segir frá
framtaki Eyglóar Lind Egilsdótt-
ur í Borgarnesi, sjö barna móður
og ömmu í Borgarnesi, sem gladdi
marga á erfiðum Covid-tímum í
vor með því að búa sig upp í mis-
munandi búninga og guða á glugga
hjá barnabörnum sínum sem voru
í sóttkví. Sonja dóttir hennar náði
myndum af þessu og hefur góð-
fúslega samþykkt að afhenda þær
á Héraðsskjalasafnið til varðveislu.
Á sýningunni er varpað frekara
ljósi á konuna að baki þessu vinsæla
framtaki. Sýningin var opnuð á 70
ára afmælisdegi Eyglóar og er ein
fimm sýninga sem sjá má í Safna-
húsi í sumar. Sjá má meira um starf-
semi hússins á heimsíðu Safnahúss,
www.safnahus.is.
-fréttatilkynning.
Kaffihúsið Kaldilækur var opnað-
ur aftur á dögunum en Kaldilæk-
ur hefur verið rekinn yfir sumar-
tímann síðan 2017 og er staðsett-
ur í Sjómannagarðinum í Ólafsvík.
Nýir rekstraraðilar hafa nú tekið
við og opnuðu 25. júní. Það eru þau
Jón Páll Pálmason þjálfari Víkings
og eiginkona hans Kerry Palmason
sem hafa tekið við rekstrinum.
þa
Reynir Hauksson gítarleikari verð-
ur með tónleika í Einkunnum við
Borgarnes fimmtudaginn 2. júlí
klukkan 17 og svo aðra tónleika á
Hvanneyri Pub föstudaginn 17. júlí
klukkan 21. Tónleikar þessir marka
upphaf og endi ellefu tónleika ferð-
ar sem Reynir fer um landið í þess-
ari ferð sinni. Á tónleikunum spil-
ar hann lög af nýútkominni plötu
sinni og þekkt íslensk dægur- og
þjóðlög á Flamenco hátt.
Reynir er búsettur á Spáni og
vinnur þar fyrir sér sem Flamenco
gítarleikari. Síðustu ár hefur hann
þó komið reglulega hingað til lands
og kynnt Flamenco tónlist fyrir
landsmönnum og þá með hljóm-
sveit sinni og dönsurum frá Spáni.
„Það var fyrirhugað tónleikaferða-
lag að þessu sinni með hljómsveit
og dönsurum til að kynna sóló plöt-
una mína, en öllu var frestað útaf
Covid. Spánn fór einmitt illa útúr
þessu og það er vægast sagt erfitt að
búa þar á þessum tíma. En ég er að
fara að halda í hringferð um landið
spilandi Flamenco. Það verða ellefu
staðir í það heila, Selfoss næst fyrst
í röðinni,“ segir Reynir.
Reynir Hauksson er fæddur og
uppalinn á Hvanneyri en hefur um
árabil búið í Granada á Spáni þar
sem hann vinnur sem Flamenco
listamaður. Hann er þekktur fyr-
ir orkumikinn og tilfinningarík-
an flutning í bland við skemmti-
legar sögur og spjall á milli laga
um líf hans í Andalúsíu. Reynir del
Norte gaf út sína fyrstu sólóplötu,
El Reino de Granada, í desemb-
er 2019 sem jafnframt er fyrsta ís-
lenska Flamenco hljómplatan. Plat-
an inniheldur átta tónsmíðar Reynis
sem fluttar voru af honum sjálfum í
samstarfi við nokkra af færustu Fla-
menco listamönnum Granada. Lög
af plötunni verða flutt á tónleik-
unum sem og nokkur þekkt íslensk
dægur- og þjóðlög útsett af Reyni
fyrir Flamenco gítar. Þema tónleika
verður því íslenskt Flamenco.
Forsala : https://tix.is/is/
event/10279/reynir-del-norte-fla-
menco-hringinn-um-landi-/ mm
Spilar í Einkunnum og á
Hvanneyri í tónleikaferð sinni
Gallerí Jökull opið
Nýir rekstraraðilar að
Kaldalæk í Ólafsvík
Myndin var tekin við opnun sýningarinnar. Þar má sjá Eygló ásamt þremur dætra
sinna; Guðveigu Lind, Sigríði Lind og Kristínu Lilju.
Ný sýning
í Safnahúsi
Alþýðutónlist í
Búðakirkju á laugardaginn