Skessuhorn - 01.07.2020, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 202028
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Körfuknattleiksdeild Snæfells í
Stykkishólmi hefur hvergi setið
auðum höndum þegar kemur að
því að styrkja leikmannahóp sinn
fyrir komandi tímabil. Penninn
var á lofti í liðinni viku og samdi
félagið við fimm nýja leikmenn
ásamt því að endurnýja samninga
við þrjá.
Þær Tinna Guðrún og Dagný
Inga munu taka slaginn með
meistaraflokki kvenna og Eiríkur
Már verður með meistaraflokki
karla næstkomandi vetur. Þá
samdi félagið einnig við banda-
ríska leikmanninn Haiden Pal-
mer um að leika með kvennaliði
Snæfells á næsta tímabili. Haiden
þekkir vel til Snæfells en hún lék
með liðinu tímabilið 2015-2016
þegar Snæfell varð Íslands- og
Bikarmeistari. Karlaliðið samdi
við Litháan og bakvörðinn Erik-
as Jakstys sem spilaði síðast með
Sindra á Höfn í Hornafirði síð-
astliðið tímabil.
Þau sem hafa endurnýjað
samninga sína eru Anna Soffía,
Rebekka Rán og Aron Ingi. Þess
má geta að í maímánuði var samið
við Halldór Steingrímsson um að
þjálfa bæði meistaraflokk karla og
kvenna í komandi átökum.
glh/ Ljósm. Kkd. Snæfells.
Lokahóf Körfuknattleiksdeildar
Skallagríms fór fram á B59 Hotel í
Borgarnesi á föstudaginn. Eins og
flestum er kunnugt var mótið blás-
ið af áður en úrslitakeppni hófst
og engir Íslandsmeistarar voru
því krýndir í ár vegna áhrifa Co-
vid-19. Skallagrímskonur náðu þó
að hampa eina titlinum þetta tíma-
bilið en þær urðu Bikarmeistarar í
fyrsta skipti í sögu félagsins þegar
þær unnu KR-inga í Laugardals-
höllinni í febrúar á þessu ári.
Veittar voru viðurkenningar fyrir
góða frammistöðu í meistaraflokk-
um deildarinnar. Hjá meistaraflokki
karla var Kristján Örn Ómarsson
talinn hafa sýnt bestu frammistöðu
á tímabilinu, Marinó Þór Pálma-
son fékk viðurkenningu fyrir mestu
framfarirnar og Almar Örn Björns-
son var valinn af félögum sínum í
liðinu besti klefinn. Hjá meistara-
flokki kvenna fékk Keira Robinson
viðurkenningu fyrir bestu frammi-
stöðuna á tímabilinu, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir var valinn mikilvæg-
asti leikmaðurinn og Arna Hrönn
Ámundadóttir fékk viðurkenningu
fyrir mestu framfarirnar.
glh/ Ljósm. Kkd. Skallagríms.
Baráttan milli Akurnesinga og
Borgarbyggðar í pútti eldri borg-
ara hófst á mánudaginn í blíðskap-
arveðri á Akranesi. Um er að ræða
árlegt þriggja daga mót sem fer
milli golfvalla á svæðinu. Keppn-
in hófst á Akranesi. Annar keppn-
isdagur verður á Reykholtsdalsvelli
í Nesi 21. júlí en mótið endar síðan
á Hamri við Borgarnes 13. ágúst.
Samanlagður árangur bestu spilara
úr hvoru keppnisliði telur til úrslita
á mótinu, bæði í einstaklings- og
liðakeppni.
mm
Systurnar Arna Hrönn og Sigrún Sjöfn
ásamt Birgi sem tók við viðurkenningu
fyrir hönd Keiru Robinson og svo
Guðrún Ósk, þjálfari meistaraflokks
kvenna.
Sigrún Sjöfn og
Kristján Örn mikilvægust
Þjálfari meistaraflokks karla, Atli Aðalsteinsson ásamt Marinó, Almari og Kristjáni.
Sumarmót eldri borgara hafið
Bandaríkjakonan Haiden Palmer tekur slaginn á ný með Snæfelli.
Penninn á lofti í
Hólminum
Samið var við Eirík, Tinnu og Dagný í liðinni viku.
Litháinn Erikas Jakstys mun leika með
Hólmurum á komandi tímabili.