Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 29

Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 2020 29 Akranes – miðvikudagur 1. júlí Kyrrðar- og slökunarflot í Guð- laugu með Hildi Karen flotþerap- ista. Skráning er nauðsynleg vegna takmarkaðs pláss. Skráning fer fram með tölvupóstsendingu á hild- urka@gmail.com. Verð kr. 2.500. Dalabyggð – miðvikudagur 1. júlí Byggðasafn Dalamanna og Sauð- fjársetur á Ströndum halda áfram samstarfi sínu um sögurölt. Fyrsta rölt sumarsins kl. 19:30 og hefst á hlaðinu á Skarði. Stella kollubóndi á Skarði og Valdís safnvörður munu vappa um hlaðið og nágrenni og segja sögur af alls konar konum á Skarði. Húsfreyjum, húskonum, vinnukonum, stúlkum, reifabörn- um og draugum. Rétt er þó að taka fram að karlmenn geta komið við sögu í einstaka tilfellum. Í boði eru örstutt rölt á hlaðinu, stutt rölt með smá hækkun og örlítið lengra rölt þar sem fara þarf yfir eitt vatnsfall. Allir áhugasamir eru velkomnir á meðan einstaklingsbundnar sótt- varnir og samkomutakmarkanir eru virtar. Stykkishólmur – miðvikudagur 1. júlí Úr drunga og doða sóttkvía og -kvíða rís söngur og gleði eins og fuglinn Fönix úr öskunni. Kristjana Stefáns og Svavar knútur munu geysast um landið í júlí næstkom- andi á sinni árlegu sumartónleika- ferð undir yfirskriftinni: „Með Faðm- lög í farteskinu“. Ferðalagið hefst í gömlu kirkjunni í Stykkishólmi 1. júlí. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Miða- verð er kr. 4.000 og frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Akranes – fimmtudagur 2. júlí Bæjarhátíðin Írskir dagar hefjast á Akranesi. Fjölbreytt dagskrá alla helgina og nóg í boði fyrir alla. Nán- ari dagskrá má sjá í auglýsingu hér í blaðinu. Akranes – fimmtudagur 2. júlí Álmaðurinn 2020 fer fram á Akra- nesi. Keppandafundur byrjar kl 18:00, keppnin sjálf kl 18:30. Öðru- vísi þríþrautarkeppni, hjólað er frá Jaðarsbökkum upp að Akrafjalli (5,5 km), gengið/hlaupið upp á Háahnjúk og aftur niður (550m hækkun), hjól- að niður á langasand og synt 400m meðfram ströndinni. Keppt er í karla, kvenna og boðflokki (óháð kyni). Akranes – fimmtudagur 2. júlí FC Ísland mætir Úrvalsliði Akraness á æfingasvæðinu við Jaðarsbakka kl. 18:30. Tökur á nýrri þáttaröð sem sýnd verður á Stöð 2 og ber heitið FC Ísland hefur hafið göngu sína. Í þáttunum FC Ísland ferðast marg- ir af þekktustu fyrrverandi knatt- spyrnumönnum Íslands um landið og skora á knattspyrnulið á lands- byggðinni í góðgerðarleik til styrkt- ar málefnum í hverju sveitarfélagi. Leikurinn á Akranes verður til styrkt- ar Minningarsjóði Lovísu Hrundar. Akranes – fimmtudagur 2. júlí Hreimur ásamt sjö manna hljóm- sveit spilar öll vinsælustu lög Hreims frá 1997-2020 á Gamla kaupfélaginu kl. 20. miðar til sölu á tix.is. Grundarfjörður – fimmtudagur 2. júlí Helga Fríða Tómasdóttir verður spjallari vikunnar. Hún býður gest- um og gangandi á sólpallinn heima hjá sér, að Hamrahlíð 9 kl. 21. Boð- ið verður upp á búferlaflutninga- grobbsögur og kannski einhverj- ar Halliwood-sögur fylgi með. Veit- ingar í anda ´70-áratugarins. Gest- ir mega gjarnan hafa með sér létta stóla. Búðardalur – föstudagur 3. júlí Bæjarhátíðin Heim í Búðardal hefst með kjötsúpurölti föstudagskvöld- ið og verður nóg af viðburðum um allan bæ og í sveitunum í kring alla helgin. Nánari upplýsingar er að finna í umfjöllun hér í blaðinu. Hvalfjarðarsveit – föstudagur 3. júlí Pub quiz á Laxárbakka kl. 18. Njótum grillmatar, tónlistar og reynum okk- ur við spurningar í PUB QUIZ, flottir vinningar. Víðir Jónasson og Erling- ur Viðarsson halda uppi stuði. Stykkishólmur – laugardagur 4. júlí Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan verður haldin í Norska húsinu. Nán- ari upplýsingar má finna í auglýs- ingu hér í blaðinu. Stykkishólmur – laugardagur 4. júlí Hljómsveitin ÞRÍR spilar á pallinum við Sjávarpakkhúsið milli kl. 15 og 17. Kokk- arnir bjóða smakk af bláskel og barinn veðrur færður út á pall. Frítti inn. Stykkishólmur – laugardagur 4. júlí Hot wings kappát verður í Skúrn- um frá kl. 16-17. Keppt verður í áti á Skúrsvængjum sem verða sterkari og sterkari með hverjum vænt. Tak- markað sætaframboð og þátttöku- gjald er 1000 krónur. Stykkishólmur – laugardagur 4. júlí 80‘s og 90‘s partý með DJ Dodda á Skippernum frá kl. 20:30-23. Borgarbyggð – l augardagur 4. júlí Úr drunga og doða sóttkvía og -kvíða rís söngur og gleði eins og fuglinn Fönix úr öskunni. Kristjana Stefáns og Svavar knútur munu geysast um landið í júlí næstkom- andi á sinni árlegu sumartónleika- ferð undir yfirskriftinni: „Með Faðm- lög í farteskinu“. Tónleikarnir í Brúar- ási í Borgarfirði hefjast kl. 21. Miða- verð er kr. 4.000 og frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Búðardalur – sunnudagur 5. júlí Vínlandssetur í Búðardal verður formlega opnað kl. 15. Stykkishólmur – sunnudagur 5. júlí Lokagreinar Vestfjarðarvíkingsins, keppni sterkustu manna landsins. Keppt verður í kasti yfir vegg kl. 17 á túninu fyrir framan gömlu kirkjuna og svo í blandaðri grein á planinu við hafnarvogina. Að því loknu fer fram verðlaunaafhending. Hvalfjarðarsveit – sunnudagur 5. júlí Kvæðamannafélagið Snorri verður á Laxárbakka. Súputilboð verður frá kl. 18 og hefst kveðskapur kl. 20. Stykkishólmur – mánudagur 6. júlí Snæfell og Kormákur/Hvöt mætast í 4. deild karla í knattspyrnu á Stykkis- hólmsvelli kl. 20. Akranes – þriðjudagur 7. júlí ÍA og Völsungur mætast í 1. deild kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli kl. 18. Ólafsvík – þriðjudagur 7. júlí Víkingur Ó tekur á móti Fram í 1. deild karla í knattspyrnu. Leikið verður á Ólafsvíkurvelli kl. 19:15. Akranes – þriðjudagur 7. júlí Kári og Kórdrengirnir mætast 2. deild karla í knattspyrnu í Akranes- höllinni kl. 20. Óska eftir leiguíbúð Leita að fjögurra eða fimm herbergja leiguhúsnæði fyrir mig, manninn minn börnin okkar þrjú á Akranesi. Við erum reglusöm, reykjum ekki og erum ekki með gæludýr. Við getum borgað allt að þriggja mánaða trygg- ingu. Greiðslugeta á mánuði er max 220 000. Upplýsingar í tölvupósti á rakel.eythors@hotmail.com. Óska eftir íbúð á Hvanneyri Óska eftir lítilli íbúð/stúdió íbúð á Hvanneyri, þar sem tveir krúttlegu geldir og kassavanir kettir væru vel- komnir, þegar ég byrja í LbhÍ um miðj- an ágúst. Það væri frábært að finna íbúð sem er laus fyrir 1. ágúst. Upp- lýsingar hjá Tebea Elisabeth í síma: 842-6198 Raðhús til skammtímaleigu Þriggja svefnherbergja raðhús við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit til leigu frá 1.september til 15. janúar 2021 (eða styttri sé þess óskað). Leigist með húsgögnum. Upplýsingar á netfangið Hus.i.hvalfjardarsveit@gmail.com. Herbergi óskast Óska eftir að taka á leigu herbergi eða litla íbúð á Akranesi eða í nágrenni. Upplýsingar í síma 786-2799. Á döfinni Markaðstorg Vesturlands Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s . barnið! www.skessuhorn.is LEIGUMARKAÐUR Nýfæddir Vestlendingar 3. júní. Drengur. Þyngd: 3.168 gr. Lengd: 48 cm. Foreldrar. Una Bjarnadóttir og Hafþór Elíasson, Kópavogi. Ljósmóðir: Hafdís Rún- arsdóttir. 20. júní. Drengur. Þyngd: 4.694 gr. Lengd: 54 cm. Foreldrar. Hanna Valdís Jóhannsdóttir og Broddi Hilmarsson, Kópavogi. Ljósmóðir: Jenný Inga Eiðsdóttir. 24. júní. Stúlka. Þyngd: 3.564 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Svein- björg Zophaníasdóttir og Jón Ás- grímsson, Borgarfirði. Ljósmóðir: Hrafnhildur Ólafsdóttir. 25. júní. Stúlka. Þyngd: 3.698 gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar: Rebekka Unnarsdóttir og Patrick Roloff, Hellissandi. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir. 27. júní. Drengur. Þyngd: 3.250 gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar: Magn- ea Dröfn Hlynsdóttir og Jón Örn Haraldsson, Hólmavík. Ljósmóðir. Elín Sigurbjörnsdóttir.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.