Skessuhorn - 23.08.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 39. tbl. 23. árg. 23. september 2020 - kr. 950 í lausasölu
Fæst m.a. í Apóteki Vesturlands
Tilboðið gildir
út september 2020
Smurt rúnstykki
& Kókómjólk
499 kr.
ALLA LEIÐ
EF ÞÚ SÆKIR, 21.–27. SEPT. 2020
Með því að bóka tíma losnar þú við biðina í útibúinu, hvort sem
erindið snýst um ráðgjöf eða aðra þjónustu. Þú byrjar á að fara á
arionbanki.is/bokafund og panta símtal. Við hringjum svo í þig
og �innum tíma sem hentar. Markmiðið er alltaf að
bankaþjónustan sé eins þægileg og hægt er.
arionbanki.is
Bókaðu þægilegri
bankaþjónustu
Á mánudaginn var hin 150 ára gamla altaristafla í Akraneskirkju tekin niður til forvörslu og viðgerðar. Bjarni Skúli Ketilsson myndlistarmaður, Baski, tók verkið að sér,
en hann hefur sérhæft sig í viðgerðum af þessu tagi á gömlum málverkum. Upphaflega stóð til að setja ljósmynd af altaristöflunni til að hafa í rammanum í kirkjunni þá
tvo mánuði sem viðgerð stendur yfir. Baski tók sig hins vegar til og málaði aðra mynd með þá gömlu sem fyrirmynd. Hér er listamaðurinn ásamt Guðmundi Sigurðssyni
með myndirnar tvær. Nýja málverkið er til vinstri. Sjá nánar á bls. 9 í blaðinu í dag. Ljósm. mm.
Tilraunaveiðar á humri í gildr-
ur eru hafnar á Breiðafirði. Þær
verða stundaðar á bátnum Ingu
P SH-423. Skipstjóri er Klemens
Guðmundsson en útgerðarfélag-
ið Kvika hefur tekið að sér veið-
arnar fyrir Vinnslustöðina í Vest-
mannaeyjum. Á mánudagskvöldið
var 71 gildra lögð norður af Bárð-
argrunninu. Fyrst voru gildrurn-
ar lagðar án beitu til prufu, en síð-
an var dregið og beitt í þær og þær
lagðar að nýju. Nú liggja þær því í
sjó þangað til veður leyfir til þess að
draga þær upp og vitja um aflann í
þeim. Gildrurnar eru settar á leið-
ara og eru 15 faðmar á milli hverrar
gildru. Beitt var síld sem veidd var
á Færeyjamiðum.
Vinnslustöðin hefur verið með
tilraunaveiðar í humargildrur út
frá Suðurlandi með ágætum ár-
angri. Þessar veiðar hafa hins veg-
ar ekki verið reyndar áður í Breiða-
firði svo nú bíða menn spenntir efir
hvernig mun ganga. Veiðar í gildr-
ur eru mun umhverfisvænni veiði-
aðferð í samanburði við humar-
troll. Bæði er botninn ósnertur með
þessu móti og minni olíueyðsla en á
stærri trollbátum.
af
Tilraunaveiðarnar verða stundaðar á Ingu P SH-423.
Tilraunaveiðar á humri hafnar á Breiðafirði
Hjörtur Guðmundsson útgerðarmaður var með þegar
gildrurnar voru lagðar í fyrsta skipti.