Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2020, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 23.08.2020, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 2020 9 EB Flutningar Sækjum vörur í allar verslanir á höfuðborgarsvæðinu og komum heim að dyrum sama kvöld á Akranesi. Einnig er ferð kl. 10 úr Reykjavík. Tökum einnig að okkur búslóðaflutninga. Hafið samband í síma 788-8865 Safnahús Borgarfjarðar Mánudagurinn 28. september er upphafsdagur nýrrar sýningar sem nefnist Síðasta sýningin. Þar má sjá fjölbreytt verk eftir Guðmund Sigurðsson myndlistarmann og fyrrverandi skólastjóra Grunnskólans í Borgarnesi. Guðmundur er á 85. aldursári og segir þetta verða sína síðustu sýningu og vel við hæfi að halda hana í Borgarnesi þar sem hann bjó í rúm fjörutíu ár. Sýningin er í Hallsteinssal. Ekki verður um formlega opnun að ræða vegna aðstæðna en stefnt er að því að auglýsa viðveru listamannsins síðar. Verið velkomin Hallsteinssalur er í Safnahúsinu að Bjarnarbr. 4-6 í Borgarnesi. Opið er 13.00-18.00 virka daga. Ókeypis aðgangur en söfnunarbaukur á staðnum. 433 7200 - www.safnahus.is Verk Guðmundar Sigurðssonar 28.09. - 27.10. 2020 Síðasta sýningin Garða- og Saurbæjarprestakall Miðvikudagar í Akraneskirkju Bænastund alla miðvikudaga kl. 12.15 Súpa í Vinaminni eftir stundina Opið hús verður tvo miðvikudaga í mánuði í vetur (2. og 4. miðvikud. í mán.) 30. sept. Bingó, spjall og söngur Pétur Jóhannesson stjórnar 14. okt. Sr. Þóra Björg Sigurðardóttir kennir gömlu dansana 28. okt. Bingó, spjall og söngur Pétur Jóhannesson stjórnar 11. nóv. Hallgrímur Ólafsson leikari kemur í heimsókn 25. nóv. Bingó, spjall og söngur Pétur Jóhannesson stjórnar 9. des. Starfsfólk kirkjunnar í aðventu- skapi og leikur á alls oddi FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Búðardalur 2020 Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf. Vesturbraut 20 Fimmtudagurinn 1. október Föstudagurinn 2. október Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE SS U H O R N 2 02 0 Á mánudaginn var altaristafla Akra- neskirkju tekin niður til forvarn- ar og viðgerðar. Skagamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson listmálari, Baski, tók að sér viðgerð á mál- verkinu og mun hann vinna verk- ið í húsnæði gamla Iðnskólans við Skólabraut. Baski hefur sérhæft sig í lagfæringum á eldri málverkum samhliða listsköpun sinni í Hol- landi. Hann býst við að vinnan taki um tvo mánuði, verði í síðasta lagi lokið fyrir næstu jól. Um vandaverk er að ræða þar sem bakhlið verks- ins er fyrst hreinsuð og striginn lagfærður samkvæmt kúnstarinnar reglum. Til fyrsta hluta verksins fær hann sér til aðstoðar hollenska sam- starfskonu sína. eftir það tekur við mikil nákvæmnisvinna við hreins- un og skerpingu sjálfs málverksins. Sérstök efni eru notuð þegar göm- ul málverk sem þessi eru lagfærð, meðal annars olíulitir með mjög lít- illi olíu til að halda réttu áferðinni og forðast t.d. skarpan mun milli nýrra og gamalla lita. Altaristafl- an er nokkuð sprungin enda fyrstu árin geymd í óupphituðu húsnæði Garðakirkju þar sem rakastig var mjög breytilegt. Þá eru litir í mynd- inni farnir að fölna, einkum efri hluti verksins. Auk þess hefur ná- lægt við kerti; vax og hita í tímans rás, sett mark sitt á myndina. Altaristaflan í Akraneskirkju er 150 ára og því eldri en kirkjan sjálf. Verkið prýddi upprunalega Garða- kirkju en var síðar flutt á hestvagni upp á Akranes þar sem það hefur verið síðan. Sigurður Guðmunds- son málaði myndina sem eftirmynd af altaristöflunni sem enn þann dag í dag prýðir Dómkirkjuna í Reykja- vík. Upphaflega stóð til að Baski myndi stækka ljósmynd af altaris- töflunni í raunstærð til að koma fyrir í rammanum og hafa sem alt- aristöflu í kirkjunni meðan viðgerð stæði yfir. Hann ákvað hins vegar að mála aðra mynd eftir þeirri gömlu. Það verk segist hann hafa málað með svipuðum aðferðum og lista- menn fyrri tíma beittu. eftirmynd- in er því býsna lík frummyndinni. Aðspurðum um hvað hann hyggist gera við eftirmyndina þegar viðgerð á gömlu myndinni lýkur, segir Baski að hún verði einfaldlega föl. mm Altaristafla Akraneskirkju tekin niður til viðgerðar Baski er hér með altaristöfluna eftir að búið var að ná henni úr rammanum. Guðmundur Sigurðsson og Bjarni Skúli bera málverkið frá kirkjunni og í gamla Iðnskólann þar sem forvörn og lagfæringar á verkinu verða unnar. Hér er verið að losa bakhlið altaristöflunnar þannig að ná mætti myndinni úr rammanum. Pappír borinn við rammann til að undirbúa að koma eftirmynd altaristöflunnar fyrir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.