Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2020, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 23.08.2020, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 2020 13 Veiðifélag Haukadalsár neðri hyggur á endurbætur og stækkun á núverandi veiðihúsi í Haukadal. Endurbætur felast í nýju eldhúsi, ásamt endurbyggingu á gólfi, veggjum og lofti. Stækkun/viðbygging; verður u.þ.b. br.40m² Áhugasamir fagmenn/verktakar hafi samband við; arkteikn slf. - sími 897 9131 - netfang gislisam@internet.is Veiðihús Haukadalsá neðri Dalabyggð ENDURBÆTUR OG STÆKKUN Núverandi Eftir stækkun SK ES SU H O R N 2 02 0 Hundaeigendur athugið Af gefnu tilefni eru hundaeigendur minntir á að lausaganga hunda er algjörlega bönnuð innan bæjarmarkanna þar með talið Langisandur, Garðalundur og Klapparholt. Virðum reglur og tökum tillit til þeirra sem af einhverjum ástæðum eru óöruggir í nálægð hunda. Einnig er mikilvægt að muna að hafa með sér poka þegar farið er með hundana í gönguferð og hirða upp eftir þá. Verum til sóma í umgengni um bæinn. Háskólinn á Bifröst hefur ákveð- ið að bjóða fólki að hefja háskóla- nám nú á haustmánuðum. Í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu opnar skól- inn fyrir möguleika á námi í seinni lotu haustannar sem hefst mánudag- inn 19. október nk. „Boðið verður upp á einingabær námskeið bæði í grunn- og meistaranámi sem nýtast í áframhaldandi nám eða símenntun. Nemendur geta skráð sig í stök nám- skeið í gegnum símenntunarmiðstöð skólans. Námskeið þessi eru kennd í grunn- og meistaranámi skólans. Nemendur geta í framhaldinu, eða um næstu áramót sótt um formlega skólavist á Bifröst óski þeir þess. Námskeiðin sem hægt er að taka nú verða þá metin inn í námsferil nem- andans ef viðkomandi hefur formlegt nám á Bifröst,“ segir í tilkynningu. Þátttakendur í þessu haustnámi þurfa að uppfylla aðgangsviðmið háskóla en hugsunin er sú að nám- skeið þessi geti verið fyrsta varðan á háskólagöngu viðkomandi á Bifröst. „Hér er sem sagt um að ræða nokk- urs konar glugga fyrir fólk til að hefja háskólanám á miðri önn. Þeir sem ekki innritast formlega í Háskólann á Bifröst fá skjal frá símenntuninni um að viðkomandi hafi lokið nám- skeiðinu.“ mm/ Ljósm. James Einar Becker. Landbúnaðarháskóli Íslands tekur þátt í stóru evrópuverkefni, Future Arctic, sem hlotið hefur 700 millj- óna króna styrk til fjögurra ára. Um er ræða stóra rannsókn á þurrlend- isvistkerfum. Markmið verkefn- isins er að skoða hvernig íslenskt graslendi og skógar bregðast við breytingum í loftslagi og loftgæð- um. Í verkefninu er rannsóknarað- staða skólans að Reykjum í Ölfusi nýtt til þjálfunar fimmtán doktors- nema í vistfræði, erfðafræði, lífeðl- isfræði, verkfræði og tæknifræði. Auk þeirra doktorsnema sem eru innritaðir í LBHÍ eru nemendur innritaðir við aðra háskóla, svo sem í Austurríki, Belgíu, Danmörku, eistlandi og á Spáni. Auk þessara háskóla koma sex einkafyrirtæki að þjálfun nemanna, svo sem dróna- fyrirtækið Svarmi ehf. „Ástæða þess að verkefnið er unnið hérlendis er sú að eftir Suð- urlandssjálftann í maí árið 2009 röskuðust jarðhitakerfi á um fjög- urra km löngu svæði á Reykjum. Berggrunnur undir áður köldum svæðum tók þá að hitna, bæði undir náttúrulegum graslendum og rækt- uðum skógum. Þetta skapaði ein- staka náttúrulega tilraun um hvað gerist í náttúrunni í kjölfar hlýn- unar. Árið 2011 hófst forverkefni á svæðinu sem fékk nafnið ForHot. Var það samstarfsverkefni LBHÍ, Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá, Náttúrufræðistofnun- ar, Háskólans á Akureyri og Há- skóla Íslands. Fyrstu niðurstöður þess verkefnis voru kynntar á ráð- stefnum erlendis og kviknaði mik- ill áhugi í kjölfarið,“ segir í tilkynn- ingu frá LbhÍ. Í dag eru þátttakendur í þessum rannsóknum á Reykjum alls 51 vís- indamaður, sjö nýdoktorar og 22 doktorsnemar og þrír meistara- nemar frá 31 stofnun og háskól- um frá 15 löndum, þar af 13 evr- ópulöndum. „Þetta er því ein allra stærsta náttúrufræðirannsókn sem er í gangi á Íslandi í dag.“ mm Býðst að hefja nám á miðri önn Viðamikil náttúrufræðirannsókn Heilbrigðisráðherra féllst í lok síð- ustu viku á tillögu sóttvarnalækn- is um að loka skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu, tíma- bundið í fjóra daga frá 18. – 21. sept- ember. Þetta er gert til að sporna við útbreiðslu COVID-19. Reglu- gerð heilbrigðisráðherra þessa efn- is hefur þegar tekið gildi. Strax um helgina þótti svo ljóst að framlengja þyrfti bannið og er það nú í gildi til 27. september. nk. Lokunin tekur til kráa og skemmtistaða í Reykjavík, Mos- fellsbæ, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Kjósarhreppi og á Sel- tjarnarnesi. Í 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 eru taldar upp og skilgreindar mismunandi tegundir veitingastaða. Í tilvikum þar sem staðir eru með rekstrarleyfi fyrir fleiri tegundum veitingastaða en krám og skemmtistöðum er áfram- haldandi starfsemi heimil hvað þær tegundir varðar. Þannig geta veit- ingastaðir sem í rekstrarleyfi eru skráðir sem veitingahús eða kaffi- hús, haldið áfram starfsemi á þeim grundvelli, en kráar- og skemmti- staðastarfsemi er óheimil. mm Krám og skemmtistöðum á höfuð- borgarsvæðinu lokað tímabundið

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.