Skessuhorn - 23.08.2020, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 20202
Covid-19 smitum fer fjölgandi á
Vesturlandi eins og á landinu öllu og
því er mikilvægt að við hugum vel
að persónulegu hreinlæti. Þvoum og
sprittum hendur og höldum okkur
heima ef við finnum flensueinkenni.
Á morgun er útlit fyrir norðlæga
átt 8-13 m/s og dálitlar skúrir eða
él verða fyrir norðan, en víða létt-
skýjað á sunnanverðu landinu. Læg-
ir síðdegis og styttir að mestu upp
um kvöldið. Hiti 1-8 stig yfir daginn
og mildast syðst á landinu. Á föstu-
dag verður hæg breytileg átt og
víða bjartviðri. Hiti 2-8 stig en um og
undir frostmarki fyrir norðan. Vax-
andi suðaustanátt og þykknar upp
á Suður- og Vesturlandi seinni part-
inn. Á laugardag er spáð ákveðinni
suðlægri átt og rigningu, en yfirleitt
verður þurrt norðaustanlands. Hiti
4-9 stig. Á sunnudag er útlit fyrir suð-
læga átt og skúri á Suður- og Vestur-
landi en bjart norðanlands. Hiti 5-10
stig. Á mánudag er útlit fyrir norð-
læga átt með rigningu um landið
austanvert, en léttskýjað suðvestan-
lands og fer heldur kólnandi.
Í síðustu viku voru lesendur á vef
Skessuhorns spurðir hvað íslensk
kjötsúpa sé. Niðurstaðan var mjög
afgerandi en að mati 86% svarenda
er hún herramannsmatur. 8% sögðu
íslensku kjötsúpuna vera þokkalegt
fæði, 4% sögðu hana með öllu óæta
og 1% sögðu hana uppfyllingarfæði
í neyð.
Í næstu viku er spurt:
Hvar kaupir þú mest inn
af matvöru?
Skallagrímur sigraði Val í leik um tit-
ilinn Meistarar meistaranna í körfu-
knattleik kvenna um síðustu helgi.
Skallagrímskonur eru Vestlendingar
vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Stal „löggubíl“ og
ók á brott
GRUNDARFJ: Haft var sam-
band við Lögregluna á Vestur-
landi að morgni mánudags og
tilkynnt um innbrot í Grunn-
skóla Grundarfjarðar. Lögregla
kannaði málið og við eftir-
grennslan hennar kom í ljós að
sami aðili hafði farið inn í læsta
aðstöðu kvikmyndafyrirtæk-
is, sem nú er við tökur á sjón-
varpsþáttaröð í Grundarfirði og
tekið þar bíllykla ófrjálsri hendi.
Lyklarnir voru að bíl sem gegn-
ir hlutverki lögreglubíls í sjón-
varpsþáttunum. Hann er í eigu
Lögregluminjasafnsins og lít-
ur út eins og alvöru lögreglu-
bíll. Þennan „löggubíl“ tók
maðurinn og ók af stað sem
leið lá að Borgarnesi. Að sögn
lögreglu sneri hann við þar en
ekki er vitað hvort hann ætl-
aði sér að fara lengra. Um er
að ræða ungan einstakling sem
ekki hefur öðlast ökuréttindi, að
sögn lögreglu. Kæra liggur fyrir
vegna þessa athæfis en málið er
til rannsóknar. -kgk
Kallað inn í
bakvarðasveitina
LANDIÐ: Yfirvöld hafa óskað
eftir liðsinni heilbrigðisstarfs-
fólks í bakvarðasveit heilbrigðis-
þjónustunnar. Leitað er að fólki
sem hefur aðstæður og er reiðu-
búið að koma tímabundið til
starfa í heilbrigðisþjónustunni
með skömmum fyrirvara, hvort
heldur í fullt starf, hlutastarf
eða í tímavinnu, eftir því sem
aðstæður leyfa. Bakvarðasveit
heilbrigðisþjónustunnar var sett
á fót í upphafi COVID-19 far-
aldursins í vor þegar ljóst var að
mikilvægar heilbrigðisstofnan-
ir gætu lent í mönnunarvanda
vegna veikindafjarvista starfs-
fólks eða fjarvista vegna sóttkví-
ar. Þetta fyrirkomulag gaf góða
raun og gerði heilbrigðisstofn-
unum kleift að manna í stöð-
ur með hraði þegar á þurfti að
halda. Í ljósi þess hvernig far-
aldurinn hefur þróast síðustu
daga er bakvarðasveitin nú end-
urvakin og er nú óskað eftir
heilbrigðisstarfsfólki á skrá sem
er reiðubúið að hlaupa í skarðið
ef á reynir. -mm
Smit í
Stykkishólmi
STYKKISH: Nýtt Covid-19
smit greindist í Stykkishólmi
fyrir helgi. Viðkomandi ein-
staklingur er kominn í einangr-
un vegna sjúkdómsins, að því er
fram kemur á vef Stykkishólms-
bæjar. eftir að smit greindist var
hafist handa við að rekja ferðir
þess smitaða og haft samband
við þá sem höfðu verið í nánum
samskiptum við hann og eftir
atvikum metið hvort þeir þurfi
að sæta sóttkví. Á vef Stykkis-
hólmsbæjar segir að í ljósi þessa
sé rétt að minna bæjarbúa sem
aðra á að fylgja leiðbeiningum
um persónubundnar sóttvarnir.
Þá eru íbúar sem hafa einkenni
Covid-19 hvattir til að hringja
á heilsugæslu sem metur hvort
þörf sé á sýnatöku. „ekki er tal-
in þörf á hertari aðgerðum í
Stykkishólmi að svo stöddu og
fólk beðið að fylgja áfram fyrir-
mælum landlæknis,“ segir á vef
bæjarins.
-kgk
Veðurhorfur
Tilraunaverkefni um heimaslátr-
un sauðfjár er farið af stað og taka
samtals 35 býli, víðsvegar um land-
ið, þátt í verkefninu. Markmið þess
er að leita leiða til þess að auðvelda
bændum að slátra sauðfé heima til
markaðssetningar þannig að upp-
fyllt séu skilyrði regluverks um mat-
vælaöryggi og gætt sé að dýravelferð
og dýraheilbrigði. Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið hefur fal-
ið Hólmfríði Sveinsdóttur, doktor
í lífvísindum og næringarfræðingi,
að stýra verkefninu fyrir hönd ráðu-
neytisins.
Síðustu misserin hefur verið unn-
ið ötullega að undirbúningi í sam-
ráði við Matvælastofnun, landssam-
tök sauðfjárbænda og þátttakendur.
Í sumar undirrituðu landbúnaðar-
ráðherra og formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda, samkomulag um til-
raunaverkefni um heimaslátrun.
Fyrirkomulag verkefnisins er með
þeim hætti að þátttakendur munu
sjálfir framkvæma heimaslátrun á
bæjum en heilbrigðisskoðun verður
framkvæmd af dýralæknum Mat-
vælastofnunar með tvenns konar
hætti. Annars vegar með heimsókn
dýralæknis á 19 bæi og hins vegar
í gegnum fjarfundarbúnað í beinu
streymi á 16 bæjum. Þátttakendur
munu jafnframt mæla sýrustig og
taka sýni fyrir örverumælingar í því
skyni að mæla gæði kjötsins. Afurð-
ir úr verkefninu verða ekki seldar á
markaði. Samkvæmt samningnum
fjármagnar ráðuneytið sýnatökur
og rannsóknir á örverumælingum.
mm/ Ljósm. Stjórnarráðið/Golli.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveð-
ið að taka þátt í samkomulagi sem
Norðmenn hafa gert um þátttöku
í samstarfi ríkja um að tryggja öll-
um þjóðum aðgang að bóluefni við
COVID-19 (COVAX). Noregur
og Ísland leggja í sameiningu fé til
verkefnisins sem gerir kleift að fjár-
magna kaup á allt að tveimur millj-
ónum bóluefnaskammta fyrir lág-
tekjuþjóðir. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Fjöldi þjóða hefur tekið höndum
saman um samstarf í þágu COVAX
(Friends of the COVAX Facility)
og gefið út sameiginlega tilkynn-
ingu þar að lútandi. Þar kemur
fram að þjóðirnar styðji eindregið
fjölþjóðasamstarf vegna bóluefnis
við COVID-19 og það markmið að
tryggja aðgang að öruggu og skil-
virku bóluefni fyrir alla. Singapúr
og Sviss leiða samstarfið en þátt-
tökulönd auk þeirra eru öll ríki
evrópusambandsins, Ástralía, Bret-
land, Ísland, Ísrael, Japan, Sádi-Ar-
abía, Nýja Sjáland, Noregur, Katar,
Suður-Kórea og Sameinuðu arab-
ísku furstadæmin.
Þátttaka Íslands og Noregs er
liður í samstarfi evrópuþjóða þar
sem aðildarríki eSB og eeS leggja
sitt af mörkum til að uppfylla það
mikilvæga markmið að öllum þjóð-
um heims verði tryggður aðgangur
að bóluefni, óháð efnahag. Framlag
Íslands og Noregs til verkefnisins
hljóðar upp á sjö milljónir Banda-
ríkjadala, jafnvirði 967 milljóna
króna, sem jafngildir tveimur millj-
ónum skammta af bóluefni. Þar af
standa íslensk stjórnvöld straum af
fjármögnun á 100.000 bóluefnis-
skömmtum. mm
Kórónuveirufaraldurinn hefur sótt
í sig veðrið undanfarið og farið er
að ræða um þriðju bylgju hans,
eins og kunnugt er. Sóttvarnalækn-
ir telur þó enn sem komið er ekki
ástæðu til að herða sóttvarnarað-
gerðir frekar. Heilbrigðisráðherra
staðfesti tillögur hans í gær, þriðju-
daginn 22. september, og verða að-
gerðir því óbreyttar út þessa viku. Í
gær voru ellefu manns í einangrun
á Vesturlandi og 196 í sóttkví. Þá
höfðu alls 234 smit greinst á lands-
vísu frá og með þriðjudeginum í
vikunni á undan.
Tvö smit komu upp á því tímabili
í tengslum við líkamsræktarstöðina
á Jaðarsbökkum á Akranesi. Var ná-
lægt 170 manns gert að sæta sóttkví
vegna þessa og líkamsræktarsalnum
lokað. Í gær var stór skimunardagur
í tengslum við smitin á Akranesi, en
einnig hefur verið boðað til skim-
unar á föstudagin vegna þeirra.
Smit greindist í Stykkishólmi
fyrir helgina og viðkomandi ein-
staklingur þurfti að fara í einangr-
un. Þá kom upp smit í Reykhóla-
hreppi, en það greindist hjá gest-
komandi einstaklingi sem þegar var
í sóttkví og því er ekki talin hætta
á útbreiðslu smits, að því er fram
kemur á Reykhólavefnum. Nokkrir
einstaklingar eru í sóttkví í hreppn-
um. Reykhólaskóla var lokað síð-
astliðinn mánudag, að ákvörðun
skólastjóra til að gæta fyllsta örygg-
is en skólinn opnaður að nýju í gær,
þriðjudag. Þá má sjá á heimasíðu
Grunnskólans í Borgarnesi að þeim
tilmælum er beint til foreldra að
sækja ekki börn sín inn í skólann né
í frístund. ef nauðsynlegt er að for-
eldrar komi inn í húsnæði skólans
eru þeir beðnir að ganga með grím-
ur. Gestakomur eru ekki leyfðar.
Fjarkennsla er í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði þessa
vikuna, vegna smitsins sem greind-
ist í Stykkishólmi. Staðan verður
endurmetin eftir helgi. Allt bók-
nám við Fjölbrautaskóla Vestur-
lands er sömuleiðis í fjarkennslu
í þessari viku. Verknám er kennt
á staðnum með grímuskyldu og
íþróttir eru kenndar undir beru
lofti. Mötuneytið er opið fyrir þá
sem eru í skólanum og nemendur
heimavistar. Grímuskylda er jafn-
framt á heimavistinni.
Tekin var upp grímuskylda til
óákveðins tíma í Menntaskóla
Borgarfjarðar og tóku nemendur
vel í þá ákvörðun, að því er fram
kemur á Facebook-síðu skólans.
Staðkennsla heldur þannig áfram
í MB að óbreyttu, en stjórnendur
eru undir það búnir að hverfa til
fjarkennslu ef þörf krefur.
Hjúkrunar- og dvalarheimili
landshlutans hafa eitt af öðru upp-
fært heimsóknarreglur sínar og eru
þær nú verulega takmarkaðar mið-
að við vikurnar á undan. er að-
standendum íbúa bent á að kynna
sér þær reglur sem gilda á hverjum
stað áður en ástvinir eru heimsótt-
ir.
Grímuskylda hefur verið tekin
upp á Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands og þurfa allir sem leita eftir
þjónustu á starfsstöðvum stofnun-
arinnar í landshlutanum að bera
grímu. Gildir það jafnt fyrir þá sem
eiga bókaða tíma á heilsugæslum,
hjá sérfræðingum eða í rannsóknir
og meðferðir.
kgk
Nemendur og starfsmenn Menntaskóla Borgarfjarðar bera grímur innandyra
þessa dagana. Í öðrum framhaldsskólum í landshlutanum eru bóknámsnemendur
í fjarnámi þessa vikuna. Ljósm. MB.
Veiran sækir í sig veðrið
Skimað fyrir Covid-19 á Akranesi síðastliðið vor. Ljósm. úr safni/ kgk.
Fjármagna saman kaup á bóluefni
35 býli taka þátt í tilraunaverk-
efni um heimaslátrun sauðfjár