Skessuhorn - 23.08.2020, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 20206
Einnota drykkjar-
vöruumbúðir
LANDIÐ: Umhverfis- og auð-
lindaráðuneytið óskar nú eftir
umsögnum um drög að frum-
varpi til breytinga á lögum um
ráðstafanir gegn umhverfis-
mengun af völdum einnota um-
búða fyrir drykkjarvörur. Það
hefur verið til kynningar í sam-
ráðsgátt stjórnvalda og er at-
hugasemdafrestur til 3. október.
Með frumvarpinu er ætlunin að
fylgja eftir hluta þeirra tillagna
sem fram koma í skýrslu starfs-
hóps um drykkjavöruumbúðir
frá júlí 2018, auk þess sem lagð-
ar eru til breytingar á skilagjaldi
og umsýsluþóknun. Meðal til-
lagna er að markmiðsákvæði
sé bætt við lögin, að skilakerfið
nái til fleiri aðila en verið hefur
og heimild ráðherra til að setja
ákvæði um söfnunarmarkmið
og stærð umbúða í reglugerð.
-mm
Atvinnuleysi
er 9,4%
LANDIÐ: Heildaratvinnuleysi
í ágústmánuði var 9,4%, að því
er fram kemur á vef Vinnumála-
stofnunar. Almennt atvinnu-
leysi var 8,5%, sem er nokk-
ur aukning frá fyrri mánuð-
um, en atvinnuleysi var 7,9% í
júlí, 7,5% í júní og 7,4% í maí.
Vinnumálastofnun spáir því að
almennt atvinnuleysi aukist lítið
eitt í september, en meira þeg-
ar lengra er komið fram á haust-
ið. Atvinnuleysi tengt minnk-
uðu starfshlutfalli var óbreytt í
ágúst frá júlí, eða 0,9%, en það
hefur lækkað hratt frá því í maí-
mánuðu síðastliðnum. Alls voru
17.788 einstaklingar atvinnu-
lausir í lok ágústmánaðar og
3.843 í minnkuðu starfshlut-
falli. Samtals gera þetta 21.271
manns. -kgk
Birta tölur
að nýju
VESTURLAND: Mikill erill
hefur verið hjá lögreglu und-
anfarna viku vegna uppgangs
Covid-19 faraldursins. eins og
kunnugt er hafa smit greinst á
nokkrum stöðum í landshlutan-
um og víða um Vesturland hef-
ur fólk þurft að sæta sóttkví og
einangrun vegna faraldursins.
Vegna þessa hyggst Lögregl-
an á Vesturlandi ætla að fara að
birta tölur með yfirliti yfir smit í
landshlutanum að nýju, eins og
gert var þegar faraldurinn stóð
sem hæst síðasta vor. Þá liggur
fyrir að öllum lögreglustöðvum
landshlutans verði lokað vegna
faraldursins, eins og gert var í
vor. -kgk
Dekk sprengt
SNÆFELLSBÆR: Lögreglu
var tilkynnt um skemmdarverk
laugardaginn 12. september síð-
astliðinn. einhver óprúttinn að-
ili hafði farið og stungið á fjög-
ur dekk bíls sem stóð á bifreiða-
stæði við Hraðfrystihús Hellis-
sands. Verið er að skoða mynd-
ir úr öryggismyndavélakerfi og
rannsaka málið, að sögn lög-
reglu. -kgk
Mótmæla að
starf héraðsdýra-
læknis sé lagt
niður
BORGARBYGGÐ: Á fundi
í umhverfis- og landbúnað-
arnefnd Borgarbyggðar síð-
astliðinn fimmtudag var lögð
fram tilkynning frá Matvæla-
stofnun um fækkun umdæma
héraðsdýralækna. Matvæla-
stofnun tilkynnti það ein-
hliða í byrjun síðustu viku,
og án samráðs við hlutaðeig-
andi sveitarfélög, að embætt-
um héraðdýralækna verður
fækkað um eitt, úr sex í fimm.
Vesturumdæmi er skipt upp
og raun lagt niður, þannig að
Snæfellsnes og Borgarfjörður
tilheyra nú S-Vesturumdæmi
og Dalir og Vestfirðir tileyra
N-Vesturumdæmi. Þarna er
því um að ræða beina fækkun
opinberra starfa á Vesturlandi.
„Umhverfis- og landbúnað-
arnefnd lýsir furðu sinni á að
ekki hafi verið haft samráð við
sveitarfélög vegna ákvörðunar
um fækkun héraðsdýralækna.
Þá hvetur nefndin Matvæla-
stofnun til að endurskoða þá
ákvörðun að umdæmisskrif-
stofa S-Vestursvæðis sé á höf-
uðborgarsvæðinu,“ segir í
bókun frá fundi nefndarinnar.
-mm
Margir í sund
SNÆFELLSBÆR: Þrátt fyr-
ir Covid-19 og verulega færri
ferðamenn vegna faraldurs-
ins hafa fleiri gengið til laug-
ar í Sundlaug Snæfellsbæjar í
ár en undanfarin ár. Heildar-
fjöldi gesta sundlaugarinnar í
sumar var 8.122 í júní, júlí og
ágúst. Á sama tímabili í fyrra
voru gestirnir 7.911. Gesta-
fjöldinn á liðnu sumri er sá
mesti frá árinu 2017, að því
er fram kemur í bæjarblaðinu
Jökli í Ólafsvík.
-kgk
Farþegi sem lést af völdum áverka
sinna eftir árekstur á Borgarfjarð-
arbraut við Grjóteyri í septem-
ber í fyrra var með bílbeltið rang-
lega spennt. Rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa telur líkur á því farþeginn
hefði lifað slysið af hefði öryggisbelt-
ið verið spennt með réttum hætti.
Fram kemur í skýrslu nefndarinn-
ar að Nissan-jepplingi hafi verið ekið
austur Borgarfjarðarbraut að morgni
dags. Í honum voru ökumaður og
tveir farþegar í aftursæti. Rigning var
og bjart í veðri, en talsverður vind-
ur og gekk á með hviðum. Rétt aust-
an Seleyrarár ók ökumaðurinn yfir á
rangan vegarhelming í veg fyrir Hy-
undai-bifreið sem ekið var úr gagn-
stæðri átt. Við áreksturinn kastaðist
Huyndai-bifreiðin aftur um rúma tíu
metra og snerist í hálfhring. Nissan-
jepplingur snerist og rann áfram, um
það bil fimm metra.
Snörp vindhviða
Talið er að snörp vindhviða hafi
valdið því að ökumaður jepplingsins
missti hann yfir á rangan vegarhelm-
ing. Ökumenn beggja bifreiða sögðu
báðir frá kröftugri hviðu rétt áður en
áreksturinn varð. Í skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar segir að ökumaður
jepplingsins hafi haft litla reynslu af
akstri á Íslandi og þótt erfitt að aka
við þessar aðstæður. Ökumaður Hy-
undai-bifreiðarinnar hafi sömuleið-
is ekki verið reynslumikill ökumað-
ur. Þá reyndust hjólbarðar jepp-
lingsins slitnir og tjara í mynstrinu,
sem talið er getað hafa skert mögu-
leika ökumannsins á að bregðast við
snarpri vindhviðu á blautu yfirborði
vegarins.
Með beltið undir
handarkrikanum
Farþeginn sem lést sat vinstra
megin í aftursæti jepplingsins og
var með öryggisbeltið ranglega
spennt. Hafði hann sett axlarbelt-
ið undir handarkrikann og hlotið
við áreksturinn banvæna brjóst-
og kviðarholsáverka, að því er
fram kemur í skýrslunni. „Að mati
nefndarinnar eru líkur á að farþeg-
inn hefði lifað slysið af hefði ör-
yggisbeltið verið spennt með rétt-
um hætti,“ segir í skýrslu nefndar-
innar.
Hinn farþegi bílsins, sem einn-
ig sat í aftursætinu, var ekki í bíl-
belti og kastaðist fram á sætisbak-
ið fyrir framan sig. Ökumaðurinn
hlaut ekki mikla áverka. Hann var
spenntur í belti og loftpúði í stýri
blés út við áreksturinn.
Ökumaður Hyundai-bílsins
var einn á ferð. Hann var í belti
og loftpúði í stýri blés út. Hann
hlaut hins vegar mikla áverka, sem
nefndin telur að rekja megi til þess
að ökumannsrými bílsins aflagað-
ist við áreksturinn.
Belti séu rétt spennt
Í ábendingum sínum í skýrslunni
leggur nefndin áherslu á að öku-
menn og farþegar séu alltaf með
öryggisbeltin rétt spennt. Afar
mikilvægt sé að axlarbeltið liggi
yfir brjóstkassa og viðbeini. Annars
sé hætta á að álagið frá beltinu sem
myndast við árekstur lendi á kvið-
arholinu. Það geti valdið miklum
og lífshættulegum áverkum, eins
og gerðist í slysinu á Borgarfjarðar-
braut í september í fyrra.
Þá kemur einnig fram að frá 1998
hafi nefndin rannsakað ellefu bana-
slys í umferðinni þar sem vindhviða
er talin orsakaþáttur. Jafnframt er
því beint til ökumanna að mikil-
vægt sé að halda hjólbörðum bif-
reiða hreinum og þrífa þá ef tjara
safnast upp í þeim, því uppsöfnuð
tjara minnki veggrip.
kgk
Var með öryggisbeltið
undir handarkrikanum
Hlaut banvæna áverka á brjóst- og kviðarholi
Á Grjóteyri, skammt frá þeim stað þar sem slysið varð. Ljósm. mm.