Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2020, Side 14

Skessuhorn - 23.08.2020, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 202014 Covid-19 faraldurinn hefur sett mark sitt á flesta ef ekki alla kima mannlífsins það sem af er ári, þar með talin viðskipti og þjónustu. Skessuhorn tók hús á örfáum versl- unareigendum á Akranesi og spurði þá hvernig reksturinn hefði gengið það sem af er ári, í ljósi faraldursins og þeirra takmarkana sem lands- mönnum hafa verið settar vegna hans. Hans og Gréta „Það hefur bara gengið vel. Reynd- ar kom niðursveifla þegar Co- vid stóð sem hæst í vor, en þá kom vefverslunin rosalega sterk inn hjá mér,“ segir Hrefna Björnsdóttir, eigandi Hans og Grétu, í samtali við Skessuhorn. „Maður fann al- veg að það minnkaði í búðinni og jókst í vefversluninni í vor og mikið af fólki að biðja um heimsending- ar hérna á Akranesi,“ segir Hrefna sem sendir frítt innanbæjar. „en svo breyttist það aftur í átt til fyrra horfs þegar fólk fór að fara út aftur, þá dró úr vefversluninni en heim- sóknum í búðina fjölgaði að nýju,“ segir hún. Aðspurð segist Hrefna merkja þær breytingar á árinu að fólk versli meira í heimabyggð. Þannig kveðst hún til að mynda hafa orðið þess vör að yngri foreldrar séu farnir að beina viðskiptum sínum til hennar í ríkara mæli en áður. en hún hef- ur líka sjálf verið að gera breyting- ar á versluninni, breyta vöruúrval- inu, bæta það og auka, undanfarin tvö og hálft ár. „Núna er ég orðin sterkari í íþrótta- og sundvörum fyrir bæði börn og fullorðna. Það er helst það sem hefur breyst hjá mér undanfarið,“ segir hún, en Hans og Gréta var alfarið barnavöruverslun í upphafi. Síðan þá hefur Hrefna smám saman aukið vöruúrvalið og breikkað aldurshópinn. „Núna hafa viðskiptin vaxið í fullorðinsvörun- um, eftir því sem fólk heyrir meira af því að ég er að sinna þeim hópi líka. Ég er komin með eitthvað fyr- ir alla fjölskylduna,“ segir Hrefna Björnsdótir að endingu. Gallerý Snotra „Reksturinn hefur gengið mjög vel,“ segir Sigurlína Júlíusdótt- ir, eigandi Gallerýs Snotru, í sam- tali við Skessuhorn. „Þetta hafa verið uppgangstímar í svona búð,“ bætir hún við létt í bragði. Gallerý Snotra er hannyrðavöruverslun og segir Sigurlína marga hafa lagt leið sína þangað undanfarna mánuði til að kaupa prjóna og garn, lopa og tvinna og hvers kyns hannyrða- vörur. Fólk hafi haft góðan tíma til að sinna þessu áhugamáli sínu. Já, nema kannski helst hún sjálf. Hún hefur ekki haft mikið rúm til að sinna sínu handverki, enda hef- ur Snotru verið haldið opinni svo aðrir geti sótt sér allt sem þarf til hannyrða. Aðspurð segist Sigurlína ekki merkja neina sérstaka breytingu í vöruvali hjá sínum kúnnahópi. Við- skiptavinir sæki í sömu vörur og venjulega, en í meira mæli. „Það er bara almennt meira að gera,“ segir Sigurlína í Snotru að endingu. Verslunin Bjarg Verslunin Bjarg á Akranesi er versl- un með föt og snyrtivörur. Ásta Gísladóttir, annar eigenda Bjargs, segir reksturinn hafa verið mjög kaflaskiptan það sem af er ári. „Það gekk ekki vel í mars og apríl, þessa vormánuði. Svo var bara gott ástand í sumar og síðan breyttist það aftur í ágúst eftir að íslenski ferðamaður- inn hætti að vera á ferðinni og Co- vid kom aftur, þá minnkuðu við- skiptin,“ segir Ásta. Hún merkir þannig bein tengsl milli ástandsins af völdum faraldursins, og þeirra aðgerða sem honum hafa fylgt, og verslunarinnar í búðinni. „Það er alveg beint samband þar á milli, finnst okkur hér,“ segir hún. Þeg- ar ástandið var sem verst, samko- mubann og fleira, var fólk vita- skuld minna á ferðinni og flestöll- um veislum og viðburðum var sleg- ið á frest eða hreinlega aflýst. „en sumarið var fínt, mikið betra en við áttum von á og betra en mörg önn- ur sumur. Það var svo mikið af ís- lenskum ferðamönnum sem voru duglegir að versla. Fólk var að gera sér dagamun með því að skreppa á Skagann, fara í Guðlaugu, á kaffi- hús eða matsölustaði og brjóta upp daginn,“ segir hún en bætir því við að nú í september sé staðan orðin mjög sambærileg og verið hefur á sama tíma undanfarin ár. Framund- an er hins vegar mikilvægur tími fyrir verslanir og hún vonast auðvi- tað til þess eins og aðrir að takist að koma böndum á þessa þriðju bylgju faraldursins svo daglegt líf hér inn- anlands geti færst til eðlilegra horfs á ný. „Núna eru framundan árshá- tíðir og jólahlaðborð. Vonandi verður hægt að halda þessa við- burði. Þeir eru líka mikilvægir fyr- ir okkur, þetta hefur áhrif svo víða,“ segir Ásta í Bjargi að endingu. kgk/ Ljósm. kgk. „Þetta hefur áhrif svo víða“ - rætt við verslunareigendur á Akranesi um áhrif Covid-19 Hrefna Björnsdóttir, eigandi Hans og Grétu. Barnaföt á rekka í Hans og Grétu. Íþróttaskór í Hans og Grétu. Sigurlína Júlíusdóttir, eigandi Gallerýs Snotru. Garn í úrvali í Snotru. Ljósm. Gallerý Snotra. Hjónin Ásta Gísladóttir og Örlygur Stefánsson eru eigendur Verslunarinnar Bjargs. Ljósm. úr safni/bþb Hattar fyrir herrana í Bjargi. Kápur á rekka í Bjargi.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.