Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2020, Síða 16

Skessuhorn - 23.08.2020, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 202016 Þessa dagana er sanddæluskip- ið Dísa að dýpka í Ólafsvíkurhöfn. Björn Arnaldsson hafnarstjóri seg- ir í samtali við Sksesuhorn að dælt verði 50 þúsund rúmmetrum úr innsiglingunni í höfnina og innan hafnar auk þess sem dæla á tíu þús- und rúmmetrum í uppfyllinguna við Norðurgarð. Þegar þessu verki lýkur mun Dísa halda til Rifs en þar er áætlað að dæla upp 80 þús- und rúmmetrum einnig úr inn- siglingaleiðinni og innan hafnar. Björn segir að þessar framkvæmd- ir munu kosta um 130 til 140 millj- ónir króna. af „Það voru misgóðar heimtur hjá okkur á Hellisandi,“ sagði Þorvarð- ur Jóhann Guðbjartsson fjárbóndi í samtali við Skessuhorn. „Það var einn fjárbóndinn sem fékk að vísu ekki nema eina kind af þeim 60 sem hann á og nokkrir náðu aðeins helmingi af því sem þeir eiga, en um helmingur okkar frístundabænd- anna fékk góðar heimtur,“ sagði Þorvarður. Ólafur Helgi Ólafsson, fjárbóndi í Ólafsvík. Hann sagði að heimtur hafi verið þokkalegar og hann vantaði einungis 17 kind- ur af fjalli, en átti von á því að þær næðust fljótlega. Veður til smala- mennsku um liðna helgi var ekkert sérstakt, en þó var smalað. Meðfylgjandi myndir voru tekn- ar í réttinni í Ólafsvík. Þar gekk á með kalsarigningu og því var fátt fólk í réttinni að þessu sinni. af Undanfarna fjóra mánuði hefur frumkvöðullinn eva Michelsen, ásamt góðu teymi, unnið hörðum höndum að því að standsetja hús- næði í Kópavogi og gera það klárt fyrir eldstæðið, deilieldhús fyrir matarfrumkvöðla, smáframleiðend- ur og áhugasama matgæðinga. eld- stæðið er nú komið með starfsleyfi og fyrstu framleiðendur að hefja þar starfsemi. „Við erum afskaplega ánægð með viðtökurnar sem við höfum fengið og streyma inn alls- konar fyrirspurnir í tengslum við aðstöðuna og hvað sé hægt að gera þar,“ segir eva. Icelandic Startups tilkynnti á dögunum að valin hefðu verið tíu sprotafyrirtæki úr hópi 70 umsókna til þátttöku í tíu vikna viðskipta- hraðli fyrir nýjar lausnir í landbún- aði, haftengdum iðnaði og smá- sölu sem hefur göngu sína í byrjun næstu viku. Stór hluti þeirra lausna byggir á framleiðslu og vinnslu matvæla og hefur Matarauður Ís- lands veitt eldstæðinu styrk til að taka á móti hópnum án endurgjalds meðan á hraðlinum stendur. „Við erum afskaplega stolt og þakklát að geta unnið með frumkvöðlun- um sem taka þátt í viðskiptahrað- linum,“ bætir eva við. „Markmiðið með hraðlinum er að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrir- tækja með því að veita þeim fag- lega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra. Að- gangur að eldstæðinu er því kær- komin og mikilvæg viðbót við verk- efnið,“ segir Salóme Guðmunds- dóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups, sem hefur umsjón með hraðlinum í samstarfi við Íslenska sjávarklasann með stuðningi Nettó, Matarauðs Íslands og Landbúnað- arklasans. Um þessar mundir er verið að vinna úr öllum þeim umsóknum sem eldstæðinu hafa borist. Til stendur að hafa opið hús þegar að- stæður leyfa þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að kynna sér að- stöðuna og það sem eldstæðið hef- ur upp á að bjóða. Nánari upplýs- ingar eru að finna á www.eldstæðið. is og samfélagsmiðlum. mm Þemadagar í átthagafræði á mið- og unglingastigi í Grunn- skóla Snæfellsbæjar voru dagana 9. og 10. september. Ýmis verk- efni tengd námsskrá skólans í átt- hagafræði voru unnin þessa daga og lögð áhersla á upplifun og úti- veru. Nemendur í 6. og 7. bekk fóru t.d. í fjöruferð á Fróðárrif þar sem þeir tíndu rusl úr fjörunni og af fjörukambinum. Þeir unnu saman í litlum hópum og héldu skrá yfir það sem fannst og þar var ýmislegt sem vakti athygli. Þótti þeim athyglis- vert hvað fannst mikið af skófatn- aði, allt frá heilum skóm yfir í staka hæla og sóla. Nemendur voru mjög áhugasamir um verkefnið og lögðu mikið á sig við að losa netadræsur og bera sjórekið timbur langar leið- ir. Alls tíndu nemendur 230 kg úr fjörunni. þa Í fjöruhreinsun í átthagafræðináminu Feed the Viking - Þátttakendur í hraðlinum árið 2019. Eldstæðið opnar dyr fyrir matarfrumkvöðla Sanddæling í gangi utan við innsiglinguna í Ólafsvíkurhöfn. Dýpktunarframkvæmdir í höfnum Snæfellsbæjar Hér er Dísa að dæla sandi í uppfyllinguna í Ólafsvíkurhöfn. Áætluð verklok eru fyrir áramót. Misjafnar heimtur hjá frístundabændum

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.