Skessuhorn - 23.08.2020, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 202022
Hver er þinn helsti kostur?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Eiríkur Jónsson
„Ég er bara ágætur held ég.“
Jakob Ólason
„Ég er góður bílstjóri.“
Hildur Hjaltadóttir
„Stundvísi.“
Katrín Ósk Bjarkadóttir
„Ég er listræn.“
Jytta Juul
„Ég er góður kokkur.“
Skallagrímur hefur leik í Dom-
ino‘s deild kvenna í körfuknattleik
í kvöld, miðvikudaginn 23. októ-
ber, þegar liðið mætir Haukum í
Hafnarfirði. Skallagrímskonur áttu
góðu gengi að fagna í körfunni síð-
asta vetur. Liðið varð bikarmeistari
í fyrsta sinn í sögu félagsins í febrú-
ar og sat í 4. sæti deildarinnar þegar
tímabilið var blásið af í mars.
Það er útlit fyrir að Skallagríms-
konur mæti með afar sterkt lið til
leiks þegar deildin hefst í kvöld.
er stefnan sett á Íslandsmeistara-
titilinn? „Markmiðið er að kom-
ast í úrslitakeppnina og svo ætlum
við að taka stöðuna í framhaldi af
því,“ segir Guðrún Ósk Ámunda-
dóttir, þjálfari Skallagríms, í sam-
tali við Skessuhorn á föstudag. „en
við erum með sterkt lið og auðvitað
erum við allar í þessu til að vinna og
ná árangri,“ segir hún.
Ánægð með hópinn
Guðrún segir að aðstandendur
liðsins hafi snemma farið að huga
að því að setja saman liðið. Vinna
við það hófst strax í maí og hún er
ánægð með hvernig til tókst. „Sum-
arið fór í þetta og ég held að okk-
ur hafi tekist vel að fullmanna lið-
ið. Ég er mjög ánægð með hópinn.
Þetta eru flottar stelpur, mikil gleði
í hópnum og við erum spennt-
ar fyrir tímabilinu,“ segir hún. Frá
því síðasta vor hefur framherjinn
Sanja Orozovic gengið til liðs við
Skallagrím, en hún lék áður með
KR og var ein af bestu leikmönn-
um deildarinnar í sinni stöðu síð-
astliðinn vetur. Landsliðskonan
embla Kristínardóttir gekk til liðs
við Borgnesinga síðastliðið vor og
í sumar var samið við miðherjann
Nikitu Telesford. Þá hafa samn-
ingar verið endurnýjaðir við kjarna
leikmanna sem spilað hafa með lið-
inu undanfarin ár. Leikstjórnand-
inn Keira Robinson verður áfram í
herbúðum Skallagríms, en hún var
einn besti leikmaður Íslandsmóts-
ins síðastliðinn vetur. Þá var ný-
verið greint frá því að Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir og Maja Michalska
myndu taka slaginn með Skalla-
grími á komandi keppnistímabili,
en þær hafa leikið stórt hlutverk í
liðinu undanfarin ár.
Sterk vörn
og góður andi
Þjálfarinn segir undirbúning Skalla-
grímsliðsins hafa gengið vel, þrátt
fyrir að stutt sé síðan körfuknatt-
leikslið landsins máttu hefja æfing-
ar vegna sóttvarnaráðstafana. Þess
utan byrjar tímabilið í ár örlítið fyrr
en venjulega, eða rúmri viku fyrr.
en það á jafnt við um öll lið deild-
arinnar. „Þetta er auðvitað minni
undirbúningur en maður hefði vilj-
að fá. en þá þarf maður bara að nýta
vel þann tíma sem maður fær og við
verðum alveg klárar í slaginn þegar
mótið byrjar,“ segir Guðrún.
Spurð hvort stuðningsmenn
megi eiga von á einherjum breyt-
ingum í leik liðsins segir Guðrún
svo ekki vera. „Við fórum langt
á varnarleiknum í fyrra og mark-
miðið er að vera með sömu ákefð
í vörninni í vetur. Liðsheldin var
sömuleiðis virkilega sterk í fyrra og
kom okkur mjög langt. Við munum
áfram leggja áherslu á að hafa góð-
an liðsanda, hafa gaman af þessu og
njóta þess að spila körfubolta,“ seg-
ir Guðrún Ósk Ámundadóttir að
endingu. kgk
Keppni í Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik hefst í kvöld, mið-
vikudaginn 23. október. Í opnun-
arleiknum mæta Snæfellskonur liði
Fjölnis á útivelli kl. 18:30, en aðrir
leikir hefjast þremur korterum síð-
ar.
Snæfellsliðið vitist ekki finna al-
mennilega taktinn á síðasta keppn-
istímabili og sat í 6. sæti deildarinn-
ar þegar keppni í Íslandsmótinu var
hætt vegna Covid-19 í mars. Lengst
af tímabilinu höfðu Snæfellskonur
siglt nokkuð lygnan sjó um miðja
deildina. Þeim hafði ekki tekist að
blanda sér í baráttuna um sæti í úr-
slitakeppninni áður en mótið var
blásið af en voru heldur aldrei í
neinni alvöru fallbaráttu.
Haiden snýr aftur
Leikstjórnandinn Haiden Palmer
snýr aftur í Hólminn, en hún varð
Íslands- og bikarmeistari með Snæ-
felli vorið 2016, setti stigamet í úr-
slitakeppninni og var einhver allra
besti leikmaður deildarinnar þann
veturinn. Þá hefur bakvörðurinn Iva
Georgieva samið við Stykkishólms-
liðið fyrir komandi leiktíð og mið-
herjinn emese Vida, sem átti gott
tímabil með Snæfelli í fyrra, mun
leika með liðinu í vetur.
en stærstu breytingar á Snæfells-
liðinu fyrir komandi tímabil eru án
efa þær að systurnar Gunnhildur og
Berglind Gunnarsdætur munu ekki
leika með liðinu eins og þær hafa
gert fjölmörg undanfarin ár. Gunn-
hildur lagði körfuboltaskóna á hill-
una í vor og Berglind systir hennar
er frá keppni eftir að hafa slasast al-
varlega í rútuslysi í upphafi árs.
Þéttur og góður hópur
Halldór Steingrímsson er nýr þjálf-
ari liðsins. Aðspurður segir hann að
Snæfellsliðið vilji spila hraðan en ag-
aðan leik í vetur, hreyfa boltann vel
og ljúka hverri sókn með góðu skoti.
Honum líst vel á komandi keppnis-
tímabil. „Ég vissi áður en ég kom
hingað að ég yrði með ungt lið í
höndunum og fámennan æfingahóp.
Núna erum við akkúrat átta á æfing-
um, Haiden Palmer verður níundi
maðurinn og við erum að skoða að
fá jafnvel tíunda leikmanninn til að
ná að vera með tíu manna æfinga-
hóp,“ segir Halldór. en þrátt fyr-
ir að hópurinn sé kannski fámenn-
ari en gengur og gerist segir þjálf-
arinn hann einstaklega samheldinn.
„Þetta er mjög þéttur og góður og
skemmtilegur hópur,“ segir hann.
„Núna eru þær líka allar í Hólm-
inum, sem hefur ekki gerst í langan
tíma að mér skilst,“ bætir hann við,
en Snæfellsliðið hefur mörg und-
anfarin ár þurft að skipta hópnum í
tvennt; hluti hans hefur æft í Stykk-
ishólmi og annar hluti á höfuðborg-
arsvæðinu. „Það er mjög jákvætt að
það séu allir að æfa saman,“ segir
þjálfarinn og telur að það muni skila
sér inni á vellinum.
Ætla í úrslitakeppnina
Aðspurður segir hann undirbúning-
inn hafa gengið ágætlega það sem af
er. Þó sé stutt síðan emese og Iva
komu til liðs við hópinn og Haiden
var enn væntanleg þegar blaðamað-
ur ræddi við hann á fimmtudag-
inn síðasta. Hann er þó fullviss um
að liðið verði tilbúið í slaginn þeg-
ar mótið hefst. „Við erum ekki al-
veg komin þangað sem við viljum
vera en við náum því fyrir mótið
og verðum klár í fyrsta leik,“ seg-
ir Halldór. en hvert er markmið
Snæfells í Domino‘s deildinni í ár?
„Markmiðið er að fara í úrslita-
keppnina og við ætlum að gefa allt
í það verkefni,“ segir þjálfarinnn að
endingu. kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
„Erum allar í þessu til að vinna og ná árangri“
- segir Guðrún Ósk Ámundadóttir, þjálfari Skallagríms
Keira Robinson setur niður stökkskot í bikarúrslitum síðasta vetur.
Ljósm. úr safni/ kgk.
Guðrún Ósk Ámundadóttir, þjálfari
Skallagríms.
Ljósm. úr safni/ Skallagrímur.
„Markmiðið er að fara í úrslitakeppnina“
- segir Halldór Steingrímsson, þjálfari Snæfells
Haiden Palmer lætur vaða á körfuna í leik með Snæfelli
veturinn 2015-2106. Hún snýr aftur í Hólminn í vetur.
Úr leik Snæfells og Skallagríms síðasta vetur. Anna Soffía
Lárusdóttir á mikilli siglingu með boltann.