Skessuhorn - 30.08.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 202010
Ríkisstjórnin kynnti í gær aðgerða-
pakka sem ætlað er að koma til
móts við aðila vinnumarkaðarins
svo lífskjarasamningarnir frá apríl
2019 haldi. Samtök atvinnulífsins
hugðust boða til atkvæðagreiðslu
um uppsögn samninganna í byrj-
un þessarar viku þannig að niður-
staða lægi fyrir í síðasta lagi fyr-
ir 1. okóber, en fulltrúar launþega
vildu að þeir héldu, enda hafa skil-
yrði sem heyrðu undir stjórnvöld
öll verið uppfyllt. SA taldi hins veg-
ar um forsendubrest að ræða sem
rekja má til margvíslegra áhrifa af
Covid-19 faraldursins. Aðgerðir
ríkissjóðs, sem Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra kynnti í gær, eru:
Framlenging „Allir vinna“ átaksins,
lækkun tryggingagjalds út 2021,
fjárstuðningur vegna tekjufalls,
skattaívilnanir til fjárfestinga með
áherslu á græna umbreytingu, veru-
leg hækkun til nýsköpunar og mat-
vælaframleiðslu, úrbætur á skipu-
lags- og byggingamálum, umbætur
á lífeyriskerfinu og á vinnumarkaði
auk nokkurra frumvarpa sem styðja
við Lífskjarasamninginn. „Í kjöl-
far samtals við aðila vinnumarkað-
arins á almennum vinnumarkaði
síðustu daga, kynnir ríkisstjórnin
átta aðgerða pakka sem ætlað er að
stuðla að félagslegum og efnahags-
legum stöðugleika í tengslum við
Lífskjarasamninginn. Þar á með-
al eru aðgerðir sem kynntar verða
í tengslum við framlagningu fjár-
lagafrumvarps og fjármálaáætlunar
í lok vikunnar,“ sagði í tilkynningu.
Heildarútgjöld ríkisins
metin 25 milljarðar
Eftirfarandi yfirlýsing var samþykkt
á fundi ríkisstjórnar í gærmorgun
auk aðgerðanna átta: „Heimsfar-
aldurinn sem nú geisar hefur haft
víðtæk áhrif á efnahagslífið og af-
komu heimila og fyrirtækja og þar
með á stöðu á vinnumarkaði. Við-
ræður hafa farið fram milli aðila á
vinnumarkaði á grundvelli Lífs-
kjarasamningsins um forsendur fyr-
ir áframhaldandi gildi samningsins.
Ríkisstjórnin hefur frá upp-
hafi faraldursins kynnt, og Alþingi
lögfest, margháttaðar aðgerðir og
ráðstafanir til að verja fyrirtæki
og launafólk fyrir neikvæðum af-
leiðingum hans. Lögð hefur verið
áhersla á að stjórnvöld séu sveigj-
anleg og í færum til að bregðast við
breytilegum horfum eftir því sem
nýjar aðstæður koma upp og far-
aldrinum vindur fram. Ríkisstjórn-
in mun síðar í vikunni leggja fyrir
Alþingi frumvarp til fjárlaga fyrir
árið 2021 og tillögu til þingsálykt-
unar um fjármálaáætlun til næstu
fimm ára þar sem gerð verður ít-
arlega grein fyrir því hvernig hún
hyggst mæta þessum krefjandi að-
stæðum. Í þeirri stefnumörkun sem
þar verður kynnt er að finna fjöl-
mörg atriði sem ætlað er að styðja
við atvinnustarfsemi í gegnum far-
aldurinn, stöðugleika á vinnumark-
aði og viðspyrnu að faraldrinum
loknum.
Ríkisstjórnin hefur síðustu daga
átt samtöl við Samtök atvinnulífs-
ins og Alþýðusamband Íslands um
mat þeirra á forsendum Lífskjara-
samningsins og horfur á vinnu-
markaði á næstunni. Í framhaldi af
þeim samtölum hefur ríkisstjórnin
ákveðið að beita sér fyrir átta að-
gerðum til að stuðla að stöðugleika
í félagslegu og efnahagslegu tilliti,
auk þeirra aðgerða sem kynntar
verða í tengslum við framlagningu
fjárlagafrumvarps og fjármálaáætl-
unar.
Ríkisstjórnin metur að heildarút-
gjöld vegna aðgerðanna geti num-
ið allt að 25 milljörðum króna. Sú
fjárhæð er þó umtalsverðri óvissu
háð, ekki síst vegna þess að umfang
grænna fjárfestinga með skattaí-
vilnun sem ætlað er að efla nýsköp-
un og samkeppnishæfni atvinnu-
lífsins er óvíst. Þá liggur útfærsla á
fjárstuðningi við rekstraraðila sem
orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli
vegna faraldursins ekki fyrir.
Aðgerðirnar eru:
„Allir vinna“ framlengt
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að full
endurgreiðsla virðisaukaskatts af
vinnu undir átakinu „Allir vinna“
verði framlengt út árið 2021. Áætl-
aður kostnaður við endurgreiðsluna
nemur um átta milljörðum króna.
Tímabundin lækkun
tryggingagjalds
Ríkisstjórnin hefur ákveðið, í því
skyni að milda áhrif af þeim launa-
hækkunum sem samið var um í
Lífskjarasamningnum og koma til
framkvæmda um næstu áramót, að
lækka tryggingagjald tímabundið í
eitt ár, eða til loka ársins 2021. Mun
lækkun tryggingagjalds jafngilda því
að gjaldið verði ekki tekið af kjara-
samningsbundnum launahækkun-
um sem koma til framkvæmda um
komandi áramót. Kostnaður við
lækkun tryggingagjaldsins nemur
um fjórum milljörðum króna.
Fjárstuðningur við
rekstraraðila sem orðið
hafa fyrir verulegu
tekjufalli
Þegar hafa verið lögfest marghátt-
uð úrræði til stuðnings atvinnu-
starfsemi. Má þar nefna hluta-
starfaleið, greiðslu launa í uppsagn-
arfresti, lokunarstyrki, viðbótar- og
stuðningslán, greiðsluskjól og rík-
isábyrgðir. Fjármálafyrirtæki hafa
jafnframt fengið stóraukið svigrúm
til að standa við bakið á rekstrarað-
ilum. Mikilvægt er að þessi úrræði
komist að fullu til framkvæmda.
Stjórnvöld hafa að undanförnu
og í kjölfar hertra sóttvarnaráð-
stafana hugað sérstaklega að stöðu
þeirra rekstraraðila sem orðið hafa
fyrir verulegu tekjufalli vegna far-
aldursins með það fyrir augum að
tryggja eins og nokkur er kostur að
fyrir hendi sé sú geta sem nauðsyn-
leg er til að stuðla að kröftugri við-
spyrnu þegar úr rætist. Verður horft
til þess að veita beina styrki til fyr-
irtækja sem hafa orðið fyrir tekju-
hruni vegna COVID-19 faraldurs-
ins. Með slíkum styrkjum er horft
Átta aðgerðir til að styðja við lífskjarasamningana
til þess að hægt sé að viðhalda nauð-
synlegri lágmarksstarfsemi á með-
an áhrifa faraldursins gætir og með
því eru viðskiptasambönd varðveitt
og viðbúnaður tryggður. Gert er
ráð fyrir að styrkir geti numið um 6
milljörðum króna. Miðað er við að
áætlanir þar að lútandi verði undir-
búnar á næstu vikum og lagðar fyrir
Alþingi eigi síðar en við framlagn-
ingu frumvarps til fjáraukalaga.
Skattaívilnanir
til fjárfestinga
Unnið er að útfærslu á skattaleg-
um aðgerðum sem hafa það að
markmiði að hvetja og styðja fyr-
irtæki til fjárfestinga sem ætlað er
að efla nýsköpun og samkeppnis-
hæfni atvinnulífsins. Er þar horft
til þess að flýta afskriftum á ný-
fjárfestingu, með áherslu á græna
umbreytingu og loftslagsmark-
mið, sem gerir fyrirtækjum kleift
að ráðast í slíkar fjárfestingar mun
fyrr en ella. Jafnframt verða skoð-
aðar leiðir til að hvetja til þátttöku
almennings í atvinnulífinu með
kaupum á hlutabréfum.
Aukin áhersla á
nýsköpun og matvæla-
framleiðslu
Í tengslum við gerð fjárlagafrum-
varpsins hefur ríkisstjórnin ákveð-
ið að framlög til nýsköpunarmála
verði stóraukin milli ára eða sem
nemur liðlega fimm milljörðum
króna samanborið við yfirstand-
andi ár og tíu milljörðum króna
í samanburði við árin þar á und-
an. Hér má nefna stofnun Kríu,
fjárfestingarsjóðs sem er ætlað
að stuðla að uppbyggingu, vexti
og aukinni samkeppnishæfni at-
vinnulífsins. Auk þess hafa íviln-
anir til fyrirtækja vegna rann-
sókna og þróunarstarfs verið ríf-
lega þrefaldaðar frá árinu 2017.
Þá hafa framlög til nýsköpunar
í matvælaframleiðslu aukist um-
talsvert, m.a. með stofnun Mat-
vælasjóðs. Ríkisstjórnin mun í því
samhengi kanna sérstaklega hag-
kvæmni og skilvirkni í matvæla-
framleiðslu.
Úrbætur á skipulags- og
byggingamálum
Ríkisstjórnin mun hrinda í fram-
kvæmd úrbótum í skipulags- og
byggingamálum, m.a. með hliðsjón
af niðurstöðum átakshóps í hús-
næðismálum og ráðgefandi vinnu
OECD fyrir stjórnvöld um sam-
keppnishindranir á mörkuðum.
Umbætur á lífeyriskerf-
inu og á vinnumarkaði
Í framhaldi af því sem fram kem-
ur í yfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar sem gefin var út í tengslum við
Lífskjarasamninginn og samtölum
við heildarsamtök á vinnumark-
aði mun áður kynnt frumvarp um
lögfestingu iðgjalds, jafnræði sjóð-
félaga með tilliti til almannatrygg-
inga og heimildir til ráðstöfunar
tilgreindrar séreignar í tengslum
við öflun húsnæðis verða lagt fram
á haustþingi. Ríkisstjórnin mun í
framhaldi af því hafa forystu um
að stefnumörkun í lífeyrismál-
um í nánu samstarfi við heildar-
samtök á vinnumarkaði og Lands-
samband lífeyrissjóða. Stefnt er að
því að afrakstur þess samráðs verði
grænbók um lífeyrismál sem kynnt
verði vorið 2021. Jafnframt muni
ríkisstjórnin hafa forystu um gerð
grænbókar um framtíðarumhverfi
kjarasamninga og vinnumarkaðs-
mála í nánu samstarfi við heildar-
samtök á vinnumarkaði. Stefnt er
að því að grænbókin um vinnu-
markað verði sömuleiðis kynnt
vorið 2021.
Frumvörp sem styðja
Lífskjarasamninginn
lögð fram
Í samræmi við yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar sem gefin var út í
tengslum við Lífskjarasamninginn
verða frumvarp til starfskjaralaga,
frumvarp til húsaleigulaga, frum-
varp til laga um breytingar á gjald-
þrotaskiptum (kennitöluflakk) og
frumvarp um breytingar á lögum
um vexti og verðtryggingu lögð
fram á haustþingi.“
mm
Alþýðusamband Íslands og aðild-
arfélög þess telja ekki tilefni til að
segja upp kjarasamningum á þess-
um tímapunkti. Í tilkynningu frá
ASÍ segir að lífskjarasamningarn-
ir sem undirritaðir voru 4. apríl
2019 hvíli á þremur forsend-
um, þ.e. að kaupmáttur hafi auk-
ist á samningstímanum, að vextir
hafi lækkað fram að endurskoð-
un samningsins og að stjórnvöld
hafi staðið við gefin fyrirheit sam-
kvæmt yfirlýsingum ríkisstjórnar-
innar sem gefnar voru í tengslum
við samningana.
Það sem af er samningstíman-
um hefur kaupmáttur launa auk-
ist um 4,8% og að mati forystu
ASÍ hefur því forsenda um auk-
inn kaupmátt launa staðist. Stýri-
vextir hafa lækkað úr 4,5% í 1%,
eða um 3 prósentustig, það sem af
er samningstímanum og forsenda
um lækkun vaxta hefur því sömu-
leiðis staðist. Loks segir í saman-
tekt ASÍ að tímasett loforð stjórn-
valda hafi staðist utan ákvæðis
um bann við 40 ára verðtryggð-
um lánum. „Frumvarp sem tekur
á því máli verður hins vegar lagt
fram á komandi haustþingi og er
það mat ASÍ að framlagning þess
á næstu vikum feli í sér efndir á
þeim lið yfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar frá apríl 2019,“ segir í til-
kynningu ASÍ.
„Verkalýðshreyfingin hefur
boðið frið á vinnumarkaði og fyr-
irsjáanleika. Með því sýnum við
ábyrgð á erfiðum tímum. Eitt
vafaatriði stóð út af en það er
verðtryggingamálin, en við höf-
um fullvissu fyrir því að frumvarp
verði lagt fram á haustþingi. Því
teljum við ekki tilefni til að lýsa
yfir forsendubresti vegna þess,“
segir Drífa Snædal, forseti ASÍ.
mm
ASÍ telur að forsendur
lífskjarasamninga hafi staðist
Katrín Jakobsdóttir kynnti aðgerðir ríkisstjórnarinnar framan við ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í gærmorgun.
Ljósmynd er skjáskot af fréttavef Ríkissjónvarpsins.
Samtök atvinnulífsins hurfu í gær frá atkvæðagreiðslu um uppsögn lífskjara-
samninganna nú um mánaðamótin.