Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2020, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 30.08.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 202010 Ríkisstjórnin kynnti í gær aðgerða- pakka sem ætlað er að koma til móts við aðila vinnumarkaðarins svo lífskjarasamningarnir frá apríl 2019 haldi. Samtök atvinnulífsins hugðust boða til atkvæðagreiðslu um uppsögn samninganna í byrj- un þessarar viku þannig að niður- staða lægi fyrir í síðasta lagi fyr- ir 1. okóber, en fulltrúar launþega vildu að þeir héldu, enda hafa skil- yrði sem heyrðu undir stjórnvöld öll verið uppfyllt. SA taldi hins veg- ar um forsendubrest að ræða sem rekja má til margvíslegra áhrifa af Covid-19 faraldursins. Aðgerðir ríkissjóðs, sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti í gær, eru: Framlenging „Allir vinna“ átaksins, lækkun tryggingagjalds út 2021, fjárstuðningur vegna tekjufalls, skattaívilnanir til fjárfestinga með áherslu á græna umbreytingu, veru- leg hækkun til nýsköpunar og mat- vælaframleiðslu, úrbætur á skipu- lags- og byggingamálum, umbætur á lífeyriskerfinu og á vinnumarkaði auk nokkurra frumvarpa sem styðja við Lífskjarasamninginn. „Í kjöl- far samtals við aðila vinnumarkað- arins á almennum vinnumarkaði síðustu daga, kynnir ríkisstjórnin átta aðgerða pakka sem ætlað er að stuðla að félagslegum og efnahags- legum stöðugleika í tengslum við Lífskjarasamninginn. Þar á með- al eru aðgerðir sem kynntar verða í tengslum við framlagningu fjár- lagafrumvarps og fjármálaáætlunar í lok vikunnar,“ sagði í tilkynningu. Heildarútgjöld ríkisins metin 25 milljarðar Eftirfarandi yfirlýsing var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í gærmorgun auk aðgerðanna átta: „Heimsfar- aldurinn sem nú geisar hefur haft víðtæk áhrif á efnahagslífið og af- komu heimila og fyrirtækja og þar með á stöðu á vinnumarkaði. Við- ræður hafa farið fram milli aðila á vinnumarkaði á grundvelli Lífs- kjarasamningsins um forsendur fyr- ir áframhaldandi gildi samningsins. Ríkisstjórnin hefur frá upp- hafi faraldursins kynnt, og Alþingi lögfest, margháttaðar aðgerðir og ráðstafanir til að verja fyrirtæki og launafólk fyrir neikvæðum af- leiðingum hans. Lögð hefur verið áhersla á að stjórnvöld séu sveigj- anleg og í færum til að bregðast við breytilegum horfum eftir því sem nýjar aðstæður koma upp og far- aldrinum vindur fram. Ríkisstjórn- in mun síðar í vikunni leggja fyrir Alþingi frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2021 og tillögu til þingsálykt- unar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára þar sem gerð verður ít- arlega grein fyrir því hvernig hún hyggst mæta þessum krefjandi að- stæðum. Í þeirri stefnumörkun sem þar verður kynnt er að finna fjöl- mörg atriði sem ætlað er að styðja við atvinnustarfsemi í gegnum far- aldurinn, stöðugleika á vinnumark- aði og viðspyrnu að faraldrinum loknum. Ríkisstjórnin hefur síðustu daga átt samtöl við Samtök atvinnulífs- ins og Alþýðusamband Íslands um mat þeirra á forsendum Lífskjara- samningsins og horfur á vinnu- markaði á næstunni. Í framhaldi af þeim samtölum hefur ríkisstjórnin ákveðið að beita sér fyrir átta að- gerðum til að stuðla að stöðugleika í félagslegu og efnahagslegu tilliti, auk þeirra aðgerða sem kynntar verða í tengslum við framlagningu fjárlagafrumvarps og fjármálaáætl- unar. Ríkisstjórnin metur að heildarút- gjöld vegna aðgerðanna geti num- ið allt að 25 milljörðum króna. Sú fjárhæð er þó umtalsverðri óvissu háð, ekki síst vegna þess að umfang grænna fjárfestinga með skattaí- vilnun sem ætlað er að efla nýsköp- un og samkeppnishæfni atvinnu- lífsins er óvíst. Þá liggur útfærsla á fjárstuðningi við rekstraraðila sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna faraldursins ekki fyrir. Aðgerðirnar eru: „Allir vinna“ framlengt Ríkisstjórnin hefur ákveðið að full endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu undir átakinu „Allir vinna“ verði framlengt út árið 2021. Áætl- aður kostnaður við endurgreiðsluna nemur um átta milljörðum króna. Tímabundin lækkun tryggingagjalds Ríkisstjórnin hefur ákveðið, í því skyni að milda áhrif af þeim launa- hækkunum sem samið var um í Lífskjarasamningnum og koma til framkvæmda um næstu áramót, að lækka tryggingagjald tímabundið í eitt ár, eða til loka ársins 2021. Mun lækkun tryggingagjalds jafngilda því að gjaldið verði ekki tekið af kjara- samningsbundnum launahækkun- um sem koma til framkvæmda um komandi áramót. Kostnaður við lækkun tryggingagjaldsins nemur um fjórum milljörðum króna. Fjárstuðningur við rekstraraðila sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli Þegar hafa verið lögfest marghátt- uð úrræði til stuðnings atvinnu- starfsemi. Má þar nefna hluta- starfaleið, greiðslu launa í uppsagn- arfresti, lokunarstyrki, viðbótar- og stuðningslán, greiðsluskjól og rík- isábyrgðir. Fjármálafyrirtæki hafa jafnframt fengið stóraukið svigrúm til að standa við bakið á rekstrarað- ilum. Mikilvægt er að þessi úrræði komist að fullu til framkvæmda. Stjórnvöld hafa að undanförnu og í kjölfar hertra sóttvarnaráð- stafana hugað sérstaklega að stöðu þeirra rekstraraðila sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna far- aldursins með það fyrir augum að tryggja eins og nokkur er kostur að fyrir hendi sé sú geta sem nauðsyn- leg er til að stuðla að kröftugri við- spyrnu þegar úr rætist. Verður horft til þess að veita beina styrki til fyr- irtækja sem hafa orðið fyrir tekju- hruni vegna COVID-19 faraldurs- ins. Með slíkum styrkjum er horft Átta aðgerðir til að styðja við lífskjarasamningana til þess að hægt sé að viðhalda nauð- synlegri lágmarksstarfsemi á með- an áhrifa faraldursins gætir og með því eru viðskiptasambönd varðveitt og viðbúnaður tryggður. Gert er ráð fyrir að styrkir geti numið um 6 milljörðum króna. Miðað er við að áætlanir þar að lútandi verði undir- búnar á næstu vikum og lagðar fyrir Alþingi eigi síðar en við framlagn- ingu frumvarps til fjáraukalaga. Skattaívilnanir til fjárfestinga Unnið er að útfærslu á skattaleg- um aðgerðum sem hafa það að markmiði að hvetja og styðja fyr- irtæki til fjárfestinga sem ætlað er að efla nýsköpun og samkeppnis- hæfni atvinnulífsins. Er þar horft til þess að flýta afskriftum á ný- fjárfestingu, með áherslu á græna umbreytingu og loftslagsmark- mið, sem gerir fyrirtækjum kleift að ráðast í slíkar fjárfestingar mun fyrr en ella. Jafnframt verða skoð- aðar leiðir til að hvetja til þátttöku almennings í atvinnulífinu með kaupum á hlutabréfum. Aukin áhersla á nýsköpun og matvæla- framleiðslu Í tengslum við gerð fjárlagafrum- varpsins hefur ríkisstjórnin ákveð- ið að framlög til nýsköpunarmála verði stóraukin milli ára eða sem nemur liðlega fimm milljörðum króna samanborið við yfirstand- andi ár og tíu milljörðum króna í samanburði við árin þar á und- an. Hér má nefna stofnun Kríu, fjárfestingarsjóðs sem er ætlað að stuðla að uppbyggingu, vexti og aukinni samkeppnishæfni at- vinnulífsins. Auk þess hafa íviln- anir til fyrirtækja vegna rann- sókna og þróunarstarfs verið ríf- lega þrefaldaðar frá árinu 2017. Þá hafa framlög til nýsköpunar í matvælaframleiðslu aukist um- talsvert, m.a. með stofnun Mat- vælasjóðs. Ríkisstjórnin mun í því samhengi kanna sérstaklega hag- kvæmni og skilvirkni í matvæla- framleiðslu. Úrbætur á skipulags- og byggingamálum Ríkisstjórnin mun hrinda í fram- kvæmd úrbótum í skipulags- og byggingamálum, m.a. með hliðsjón af niðurstöðum átakshóps í hús- næðismálum og ráðgefandi vinnu OECD fyrir stjórnvöld um sam- keppnishindranir á mörkuðum. Umbætur á lífeyriskerf- inu og á vinnumarkaði Í framhaldi af því sem fram kem- ur í yfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar sem gefin var út í tengslum við Lífskjarasamninginn og samtölum við heildarsamtök á vinnumark- aði mun áður kynnt frumvarp um lögfestingu iðgjalds, jafnræði sjóð- félaga með tilliti til almannatrygg- inga og heimildir til ráðstöfunar tilgreindrar séreignar í tengslum við öflun húsnæðis verða lagt fram á haustþingi. Ríkisstjórnin mun í framhaldi af því hafa forystu um að stefnumörkun í lífeyrismál- um í nánu samstarfi við heildar- samtök á vinnumarkaði og Lands- samband lífeyrissjóða. Stefnt er að því að afrakstur þess samráðs verði grænbók um lífeyrismál sem kynnt verði vorið 2021. Jafnframt muni ríkisstjórnin hafa forystu um gerð grænbókar um framtíðarumhverfi kjarasamninga og vinnumarkaðs- mála í nánu samstarfi við heildar- samtök á vinnumarkaði. Stefnt er að því að grænbókin um vinnu- markað verði sömuleiðis kynnt vorið 2021. Frumvörp sem styðja Lífskjarasamninginn lögð fram Í samræmi við yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar sem gefin var út í tengslum við Lífskjarasamninginn verða frumvarp til starfskjaralaga, frumvarp til húsaleigulaga, frum- varp til laga um breytingar á gjald- þrotaskiptum (kennitöluflakk) og frumvarp um breytingar á lögum um vexti og verðtryggingu lögð fram á haustþingi.“ mm Alþýðusamband Íslands og aðild- arfélög þess telja ekki tilefni til að segja upp kjarasamningum á þess- um tímapunkti. Í tilkynningu frá ASÍ segir að lífskjarasamningarn- ir sem undirritaðir voru 4. apríl 2019 hvíli á þremur forsend- um, þ.e. að kaupmáttur hafi auk- ist á samningstímanum, að vextir hafi lækkað fram að endurskoð- un samningsins og að stjórnvöld hafi staðið við gefin fyrirheit sam- kvæmt yfirlýsingum ríkisstjórnar- innar sem gefnar voru í tengslum við samningana. Það sem af er samningstíman- um hefur kaupmáttur launa auk- ist um 4,8% og að mati forystu ASÍ hefur því forsenda um auk- inn kaupmátt launa staðist. Stýri- vextir hafa lækkað úr 4,5% í 1%, eða um 3 prósentustig, það sem af er samningstímanum og forsenda um lækkun vaxta hefur því sömu- leiðis staðist. Loks segir í saman- tekt ASÍ að tímasett loforð stjórn- valda hafi staðist utan ákvæðis um bann við 40 ára verðtryggð- um lánum. „Frumvarp sem tekur á því máli verður hins vegar lagt fram á komandi haustþingi og er það mat ASÍ að framlagning þess á næstu vikum feli í sér efndir á þeim lið yfirlýsingar ríkisstjórnar- innar frá apríl 2019,“ segir í til- kynningu ASÍ. „Verkalýðshreyfingin hefur boðið frið á vinnumarkaði og fyr- irsjáanleika. Með því sýnum við ábyrgð á erfiðum tímum. Eitt vafaatriði stóð út af en það er verðtryggingamálin, en við höf- um fullvissu fyrir því að frumvarp verði lagt fram á haustþingi. Því teljum við ekki tilefni til að lýsa yfir forsendubresti vegna þess,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ. mm ASÍ telur að forsendur lífskjarasamninga hafi staðist Katrín Jakobsdóttir kynnti aðgerðir ríkisstjórnarinnar framan við ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í gærmorgun. Ljósmynd er skjáskot af fréttavef Ríkissjónvarpsins. Samtök atvinnulífsins hurfu í gær frá atkvæðagreiðslu um uppsögn lífskjara- samninganna nú um mánaðamótin.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.