Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2020, Qupperneq 16

Skessuhorn - 30.08.2020, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 202016 Sól Jónsdóttir heimasæta á bænum Bergi, rétt utan við Grundarfjörð, hefur alist upp stóran hluta ævi sinnar í nánu samneyti við kindina tótu. Sól er fædd árið 2009 og fyrstu mánuði ævi sinnar svaf hún í barnavagni inni í fjárhúsunum á meðan foreldrarnir sinntu bústörf- unum. „Stundum þegar hún vakn- aði var hún að hjala við rollurn- ar þegar við komum,“ segir móð- ir Sólar í samtali við Skessuhorn. Sól var svo þriggja ára þegar að heimalningurinn tóta varð hluti af hennar lífi. Horfðu saman á teiknimyndirnar Lambið varð viðskila við móður sína á sínu fyrsta ári vorið 2012. Sól gaf henni nafnið tóta og urðu þær bestu vinkonur upp frá því. Anna Dóra Markúsdóttir, móðir Sólar, segir að þær hafi verið mik- ið saman fyrsta árið. „Lambið elti hana út um allt og var nánast alltaf við útidyrahurðina hjá okkur þeg- ar Sól var inni. Ég hafði ekki und- an að hreinsa lambaskít frá útidyra- hurðinni,“ rifjar Anna Dóra upp og brosir. „tóta fékk meira að segja að koma með mér upp í stofu að horfa á teiknimyndir í sófanum,“ segir Sól, en móðir hennar skýtur því inní að þá hafi hún klárlega ekki verið heima. Eitt sinn fékk tóta að fara með í leikskólann í Grundar- firði og vakti þá mikla lukku á með- al krakkanna. Góð í ræktunarstarfið Núna er tóta orðin fullorðin kind og hefur getið af sér marga afkom- endur. „Lömbin hennar tótu fara aldrei í sláturhúsið,“ segir Sól rogg- in, en á bænum núna eru fimm ær undan henni og tveir lambhrútar, sem þegar hafa verið seldir norður í Húnavatnssýslu, en tóta er ein- staklega góð kind og góð til und- aneldis. „Hún hefur auk þess allt- af verið afskaplega barngóð og ljúf og við höfum eiginlega aldrei vit- að annað eins,“ segir Anna Dóra en þau hafa oft haft heimalning á bæn- um en engan þó eins og tótu. Lifir meðan heilsan er góð Sól og tóta voru oft í göngutúrum saman þegar þær voru yngri. „Við gengum um og borðuðum hunda- súrur saman,“ segir Sól. „Hún krafs- ar alltaf í hliðið þegar hún heyrir í Sól en það gerir hún aldrei þeg- ar hún heyrir í einhverum öðrum, enda veit hún að hún á von á ein- hverju góðgæti eða að fá að kom- ast úr stíunni þegar Sól mætir til að vitja hennar,“ segir Anna Dóra. „tóta er orðin svolítið gömul núna og líklega eru hrútarnir sem hún eignaðist í vor síðustu lömbin sem hún eignast,“ segir Sól þegar hún talar um þessa vinkonu sína. Kind- in mjólkar einstaklega vel og eru lambhrútarnir undan henni stórir og stæðilegir, vel yfir meðalþyngd. „Ég er búin að vera dugleg að gefa henni fóðurbæti og grasköggla en það er uppáhaldið hennar,“ segir Sól og líklega skýrir það hversu vel hún mjólkar enn þótt orðin sé þetta gömul. Aðspurð út í afkvæmi tótu þá þylur Sól upp nöfnin á þeim án þess að hika, enda hefur hún nefnt öll lömbin undan tótu sjálf. Frétta- ritari greip að fyrsta lambið hét Jas- mín eftir prinsessunni úr Aladdin teiknimyndunum. Kindin tóta fær að lifa á með- an hún er heil heilsu þó að líklega sé hún hætt að eignast afkvæmi og ljóst er að hún á góða að á bænum sem eiga eftir að hugsa vel um hana í ellinni. tfk Sól er hérna vinstra megin, stolt með Tótu í leikskólanum. Tóta heimalningur er einn af fjölskyldunni Einstakt samband heimasætunnar og ærinnar Tótu á Bergi við Grundarfjörð Hópknús, ekki ósvipað og hjá Stubbunum. Sól heimsækir hér Tótu sína úti í haga og lambhrútarnir knúsa þær einnig. Tóta í heimsókn á leikskólanum Sólvöllum haustið 2012. Sól Jónsdóttir með fallega kind. Sól heimsækir Tótu úti í haga þar sem hún er með lambhrútunum sínum. Sól þriggja ára með Tótu árið 2012.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.