Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2020, Síða 25

Skessuhorn - 30.08.2020, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 2020 25 Pstiill - Geir Konráð Theódórsson Fyrir löngu síðan var ég eitt sinn að húkka mér far frá Borgarnesi til Ak- ureyrar. Á þessum tíma var ég náms- maður í Menntaskólanum á Ak- ureyri og bjó þar á heimavistinni. Mér fannst mikið til mín koma eftir fyrstu annirnar þarna í þessari fornu menntastofnun. Eftir einn heim- spekiáfanga var ég orðinn svo upp- fullur af menntasnobbi að ég keypti mér frakka og trefil í von um að hafa alvöru gáfumannaútlit. Í frakkan- um stóð ég við gömlu Hyrnuna og raulaði menntaskólasönginn á með- an ég fylgdist með líklegum aðilum til að gefa mér far alla leiðina norð- ur. Það var svo að einn aðili benti á annan og á endanum hitti ég á vöru- bílstjóra sem var við það að leggja af stað. Hann var til í félagsskap og bauð mér að hoppa upp í bílinn. Karlinn var vinalegur en ég man að hann var alveg dæmigerður í því sem ég taldi vera vörubílstjóraútlit. Hann var í köflóttri skyrtu með nokkrum sinnepsblettum og með úfið hár, ögn skeggjaður og með ágætis bumbu. Þegar við leggjum af stað tókum við smá spjall um hverra manna ég væri, veðrið og þetta vanalega íslenska hjal, en svo dó spjallið út. Hann skrúfaði niður smá rifu á gluggann, dró upp Marlboro sígarettupakka en hik- aði svo, spurði hvort mér væri ekki sama þó hann reykti pínu og ég auð- vitað sagði að það væri allt í lagi. Eft- ir allan forvarnaráróðurinn í grunn- og menntaskóla fannst mér reyking- ar vera greinilegt merki um mann- löst og ég dró upp skólabók og ætlaði mér að nota ferðina til lesturs frek- ar en að reyna að spjalla meira við þennan annars ágæta reykingamann. Ég las um tíma á meðan bílstjórinn reykti út um rúðuna og eftir ágætis þögn spyr bílstjórinn hvað ég sé nú annars að lesa þarna. Ég setti nef- ið ögn upp í loftið og svaraði með monti að ég væri að lesa Siðfræði Nikómakkosar eftir Aristóteles. Það kom hljóð á bílstjórann og svo smá hósti og að lokum þetta humm og já- jájá sem Íslendingar eiga til með að segja. „Ég hef aldrei verið sérstaklega hrifinn af grísku heimspekingunum, plató er svo sem ágætur og þessir grísku lögðu grunn að mörgu góðu - en ef þú vilt lesa góða gamla speki mæli ég með Hugleiðingunum eftir Markús Árelíus Antonínus Ágústus keisara Rómaveldis.“ Ég starði á bíl- stjórann og hann hélt áfram að tala. „Já, gamla spekin er svo sem ágæt en maður má ekki vera alveg bundinn af Evrópu. til dæmis Bókin um veg- inn eftir Lao-tse, hana ættu allir að lesa. Svo tekur heimspekin náttúru- lega mikið stökk þegar við förum að nálgast okkur í tíma. passaði þig samt á Nietzsche og Foucault, heillandi speki til að byrja með en gerir líkleg- ast engum gott. Fyrir skýra og góða hugsun mæli ég með að ungir menn fari beint í að lesa Karl popper.“ Ég varð alveg orðlaus. Hvernig gat það verið að þessi pattaralegi, reykj- andi vörubílstjóri væri svona vel að sér í heimspeki. Hann hljómaði eins og hann vissi meira en sjálfur heim- spekikennarinn í menntaskólanum. Upphófst mikið samtal og ég kemst að því að þessi maður er ekki bara búinn að fara í gegnum allar helstu heimspekibækur mannkynssögunn- ar, heldur virtist hann vera búinn að fara í gegnum allar bækur sem mér datt í hug. Við ræddum Króka-Refs sögu, Íslandsklukkuna og Greifann af Monte Cristo, og þegar kom að þessari frönsku bók kom bílstjórinn mér aftur á óvart. „Já, hún er svo sem ágætlega þýdd en ég frétti að margar franskar bækur væru betri á frummálinu þannig að ég gerði mitt besta og lærði frönsku - núna hef ég enn meira gaman af bókunum hans Alexandre Dumas, að ég tali nú ekki um Voltaire. Húmorinn hans er enn betri á frummálinu. Síðan þá hef ég reynt að læra fleiri tungumál til að njóta bóka betur, það hefur gengið nokkuð vel en árans rússneskan er pínu erfið.“ Eftir því sem leið á aksturinn fór þetta að skýrast. Vörubílstjórinn sagði mér að hann hefði algjöra óbeit á almennu útvarpsefni, honum þótti þetta mestmegnis vera innantómt blaður og leiðindar garg og glamur. Hann var giftur konu sem hafði að- gang að Blindrabókasafninu og einn daginn stakk hún upp á því að hann tæki með sér hljóðbók í bílinn. Ára- tugum síðar var hann enn að aka og hlusta á bækur. Fyrst voru það kass- ettur, svo geisladiskar og þegar ég var þarna með honum í bílnum var hann með svona Mp3 spilarar tengd- an við bílagræjurnar. Hann var bú- inn með flest af því sem stóð til boða á Blindrabókasafninu og hafði því keypt sér einhverskonar tungumála- kennslupakka á hljóðformi og æft sig fyrst á ensku og svo öðrum tungumál- um á meðan hann keyrði um landið. Þegar hann var orðinn ágætlega fær í enskunni keypti hann sér aðgang að Audible hljóðbókasafninu í gegnum netið og gat þannig hlustað á enda- laust af erlendum bókum í bland við það nýja sem datt inn á Blindrabóka- safninu. Fyrst var hann með valkvíða yfir öllum þessum bókum en tók svo upp það ágæta ráð að lesa fyrst þær bækur sem staðist hafa 100 ár af gagnrýni, þá þarf ekkert að hafa áhyggjur af tískunni. Svo var hann með annað ráð ef hann átti erfitt með að klára einhverja fræðibók. Lausnin var að verðlauna sjálfan sig með því að brjóta 100 ára regluna og hlusta á stundum innan- tómar en samt skemmtilegar skáld- sögur fyrir hverja fræðandi bók sem hann kláraði. Ég varð bara að spyrja manninn; af hverju í ósköpunum var svona vel lesinn og klár maður að vinna við að keyra vörubíl? Hann hló og sagði að þetta væri draumavinnan hans. Hann hossaði sér glettilega í stólnum sín- um og benti út um gluggann. Hann sagði að akkúrat hérna væri hann með þægilega skrifstofu og með betra útsýni en flestir bankastjórar - og á hverjum degi hefði hann frið til þess að hlusta á bók eða æfa nýtt tungumál. Þetta var alveg svakalega góð ferð norður á Akureyri og þegar ég kvaddi þennan speking þjóðvegarins var ég búinn að fylla margar síður í stílabókinni minni með ráðlegging- um um bækur, tungumálakennslu og kennslusíður á internetinu. Ég lærði meira á einni ferð með vörubílstjór- anum en ég hafði gert á mörgum önnum með treflaklæddum kennur- um. Þessi ferð lækkaði vel í mér rost- ann og menntasnobbið - og það var mér dýrmæt lexía að átta mig á því að alls ekki skal dæma bókina af káp- unni, sama hve groddaraleg vöru- bílstjórakápan gæti verið við fyrstu sýn. Geir Konráð Theódórsson Þórarinn Helgason hamskeri á Akranesi opnaði síðastliðinn laugardag sýningu á uppstopp- uðum fuglum og fiskum í Gall- eríi Bjarna Þórs við Kirkjubraut á Akranesi. Á sýningunni má með- al annars sjá fiska, fugla, rauðref og bjarndýrs feld, en dýr þessi eru öll amerísk að uppruna og stopp- uð upp þegar Þórarinn var í námi í Ameríku 1997. Þórarinn varð sjötugur fyrr á þessu ári og hættur almennri þátttöku á vinnumarkaði. Fyrstu ár ævinnar bjó hann í Reykjavík en flutti sem barn með foreldr- um sínum til Æðeyjar í Ísafjarð- ardjúpi þar sem hann ólst upp. Í eyjunni er fjölskrúðugt fuglalíf og verpa þar a.m.k. 27 tegundir að staðaldri. „Ég held ég geti sagt að áhuginn á hamskurði hafa kvikn- að snemma og megi rekja til um- hverfisins sem ég elst upp í. Það var svo fyrir tilstuðlan Finns Guð- mundssonar að ég komst til náms í hamskurði hjá the Royal Scott- ish Museum í Edinborg. Það var haustið 1969 og stóð námið í tvo vetur. Árið 1973 vann ég á Nátt- úrufræðistofnun Íslands en þá um áramótin flutti ég svo á Akranes með fjölskylduna og höfum við búið hér síðan.“ Þórarinn segist oft hafa haft hamskurðinn með til hliðar við aðra vinnu. Hann var lengi há- seti á Akraborginni eða allt þar til göngin voru opnuð og sigling- ar lögðust því af. „Á þeim tíma- punkti þurfti ég að leita hóf- anna að einhverju nýju að gera og innritaði mig til upprifjunar- náms í hamskurði í pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Ég var á þeim námstíma búsettur í fámennum bæ sem heitir Stoystown en skól- inn var Northern School of tax- idermy. Þetta námskeið stóð í þrjá mánuði og var ég að vinna við uppstoppun á fiskum, fuglum og spendýrum. Einnig var kennd sút- un og sitthvað fleira. Ég útskrifast þaðan með diploma í hamskurði að uppfylltum þeim gæðakröfum sem skólinn setti.“ Fiskarnir og dýrin sem hann sýnir eru frá þeim tíma sem hann var við nám í Bandaríkjunum. Þar má því finna framandi skepnur eins og rauðref, geddur, brúnandarpar og fasana en einnig meira kunn- uglega fiska á borð við bleikju og regnbogasilung. Þórarinn segir að íslensku dýrin sem hann hefur stoppað upp í gegnum tíðina hafi oftast verið unnin fyrir viðskipta- vini og því eigi hann færri slík ein- tök til að hafa á sýningunni. „Ég er þarna einnig með haus af birni og haminn af honum, eða „Rug,“ eins og það er kallað. Í náminu reyndi ég að passa að vera ekki að stoppa upp of stór dýr þar sem ég vissi að ég ætti eftir að flytja þau heim. Því valdi ég að stoppa upp rauðref og fugla meðal annars.“ Sýning Þórarins í Galler- íi Bjarna Þórs er sölusýning og verður hún opin á opnunartíma gallerísins fram í nóvember. mm Fiskar af ýmsum gerðum. Sýnir uppstoppuð dýr og fiska í Galleríi Bjarna Þórs Þórarinn með bjarndýrshaminn. Fasanapar. Rauðrefur. Að dæma bókamanninn af vörubílstjórakápunni

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.