Skessuhorn - 21.10.2020, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 21. oKtóBER 20208
Lækka verð í
Krambúðum
LANDIÐ: „Það er fagnað-
arefni að geta lækkað vöru-
verð á tímum sem þessum,
þegar gengi krónurnar hefur
lækkað um 11% frá því í júlí
með tilheyrandi verðhækk-
unum á innfluttum vörum,“
segir Gunnar Egill Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs Samkaupa í frétta-
tilkynningu. „Við erum í
samstarfi við stærstu versl-
anakeðju Danmerkur og
með sameiginlegum inn-
kaupakrafti okkar og þeirra
og með auknu vöruúrvali
náum við að flytja inn vör-
urnar með mun hagkvæmari
hætti en ella - viðskiptavin-
um okkar til hagsbóta,“ segir
Gunnar Egill. „Vöruflokk-
arnir eru yfir 600 talsins en
um er að ræða vörumerk-
in X-tra, Coop og Ängla-
mark, sem eru gæðavörur
en mun ódýrari en sambæri-
legar merkjavörur. Í lang-
flestum tilvikum er verð-
ið á þessum vörum í Kram-
búðinni og Kjörbúðinni það
sama og í lágvöruverðsversl-
uninni Nettó. Samkaup reka
ríflega 60 verslanir víðsveg-
ar um landið. Þær spanna
allt frá lágvöruverðsversl-
unum til þægindaverslana.
Helstu verslanamerki Sam-
kaupa eru Nettó, Kjörbúðin,
Krambúðin, Háskólabúðin,
Iceland og Samkaup Strax.“
-mm
Útihurð
skemmd
GRUNDARFJ: tilkynnt
var um innbrot í sumarbú-
stað í Grundarfirði að kvöldi
síðasta fimmtudags. Rann-
sóknarlögregla var á leið á
staðinn var tilkynningin aft-
urkölluð og málið eftirleiðis
bókað sem eignaspjöll. til-
kynnandi hafði komið að
sumarbústaðnum og séð að
útihurð hafði verið skemmd.
Ekkert hafði hins vegar verið
tekið úr bústaðnum og engin
merki um að farið hefði ver-
ið inn í húsið . -kgk
Undir áhrifum
HVALFJSV: Lögregla
stöðvaði för ökumanns um
Akrafjallsveg síðastliðinn
föstudag, vegna gruns um
akstur undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Strokpróf sem
framkvæmt var á staðnum
gaf jákvæða svörun á neyslu
fíkniefna. Var maðurinn
handtekinn og kallaður til
hjúkrunarfræðingur til að
taka blóðsýni. -kgk
Féll á hlaupahjóli
AKRANES: Kona féll á raf-
magnshlaupahjóli á Akraesi
laugardaginn 17. október síð-
astliðinn, skömmu eftir mið-
nætti. Féll hún af hjólinu þegar
hún var að reyna að komast upp
á gangstétt. Hlaut hún áverka á
olnboga og er talið að hún hafi
brotnað, að sögn lögreglu. Fór
hún á spítala og fékk læknisað-
stoð. -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
10.-16. október
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 5 bátar.
Heildarlöndun: 5.656 kg.
Mestur afli: Ísak AK-67: 1.953
kg í tveimur róðrum.
Arnarstapi: 2 bátar.
Heildarlöndun: 858 kg.
Mestur afli: Gestur SH-187:
626 kg í tveimur róðrum.
Grundarfjörður: 7 bátar.
Heildarlöndun: 255.976 kg.
Mestur afli: Hringur SH-153:
88.172 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 15 bátar.
Heildarlöndun: 109.582 kg.
Mestur afli: Egill SH-195:
16.020 kg í tveimur róðrum.
Rif: 8 bátar.
Heildarlöndun: 66.680 kg.
Mestur afli: Hamar SH-224:
31.965 kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 1 bátur.
Heildarlöndun: 3.562 kg.
Mestur afli: Fjóla SH-7: 3.562
kg í þremur róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH-153 - GRU:
68.172 kg. 14. október.
2. Runólfur SH-135 - GRU:
66.136 kg. 12. október.
3. Sigurborg SH-12 - GRU:
32.383 kg. 12. október.
4. Farsæll SH-30 - GRU:
53.919 kg. 13. október.
5. Hamar SH-224 - RIF:
26.871 kg. 12. október.
-kgk
Flosi H. Sigurðsson hefur ver-
ið ráðinn sviðsstjóri stjórnsýslu-
og þjónustusviðs Borgarbyggð-
ar. Sveitarstjórn samþykkti ráðn-
inguna á fundi sínum í dag.
Flosi lauk BA gráðu í lögfræði
árið 2008 og MA gráðu í lögfræði
2010. Sama ár öðlaðist hann rétt-
indi til að flytja mál fyrir héraðs-
dómi og árið 2018 hlaut hann rétt-
indi til að flytja mál fyrir Landsrétti.
„Flosi hefur undanfarin ár unnið
sem framkvæmdastjóri og lögmað-
ur hjá oPUS lögmönnum, auk þess
er hann einnig einn af eigendum
stofunnar. Sérsvið hans hafa verið
forsjármál, fjárskipti, skiptastjórn
og stjórnsýslumál. Þar áður var
hann framkvæmdastjóri Greiðslu
ehf. samhliða því að sinna stunda-
kennslu við Háskóla Íslands,“ segir
í tilkynningu frá Borgarbyggð.
18 umsóknir bárust um starf
sviðsstjóra en einn umsækjandi dró
umsókn sína til baka.
mm
„Sterkur grunur er um riðuveiki
á Stóru-Ökrum 1 (Brekkukoti)
í Akrahreppi í Skagafirði. Mat-
vælastofnun hefur sett bann á
allan flutning líffjár (sauð- og
geitfjár) innan tröllaskagahólfs
til bráðabirgða þar til greining
hefur verið staðfest.“ Í tilkynn-
ingu frá Matvælastofnun fyr-
ir helgi kom fram að bóndinn
hafi haft samband við starfandi
dýralækni sem tilkynnti hér-
aðsdýralækni um kind með ein-
kenni riðuveiki. Héraðsdýra-
læknir skoðaði kindina sem síð-
an var aflífuð, sýni tekin og send
til tilraunastöðvar Háskóla Ís-
lands að Keldum. Bráðabirgða-
niðurstöður liggja fyrir og benda
sterklega til að um riðuveiki sé
að ræða. Von var á staðfestingu
þeirra rannsókna í þessari viku.
Búið er í tröllaskagahólfi og á
svæði þar sem ekki hefur greinst
riða síðan árið 2000. Á búinu er
nú um 500 fullorðið fé auk um
300 lamba. „Á meðan beðið er
eftir staðfestingu vinnur héraðs-
dýralæknir að undirbúningi að-
gerða og öflun faraldsfræðilegra
upplýsinga.“
mm
Ný reglugerð Svandísar Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra um sótt-
varnarráðstafanir tók gildi í gær,
þriðjudaginn 20. október og gild-
ir til 10. nóvember. Allar reglurnar
miða að því að gætt sé að því að fólk
haldi fjarlægð sín á milli, komi ekki
saman í stórum hópum og deili ekki
sameiginlegum snertiflötum nema
þeir séu sótthreinsaðir á milli ein-
staklinga. Í reglugerðinni er meðal
annars kveðið á um tveggja metra
nálægðarmörk og grímuskyldu þar
sem ekki er hægt að virða tveggja
metra regluna, m.a. í verslunum. Á
þetta við um landið allt. Almennar
samkomutakmarkanir miðast áfram
við 20 manna hámarksfjölda. Þó er
50 manns heimilt að sækja útfarir.
Utan höfuðborgarsvæðisins verður
allt að 50 manns heimilt að koma
saman á æfingum og keppnum á
vegum ÍSÍ, en sú heimild gildir ekki
fyrir höfuðborgarsvæðið. Áfram
verður óheimilt að hafa áhorfend-
ur á íþróttaviðburðum. Sund- og
baðstöðum á höfuðborgarsvæðinu
skal loka fyrir almenningi á höf-
uðborgarsvæðinu, en laugarnar
mega vera opnar á landsbyggðinni
að uppfylltum skilyrðum. Þá verð-
ur áfram óheimilt að nýta sér þjón-
ustu til að mynda hárgreiðslustofa
og nuddstofa, en slíkt verður heim-
ilt á landsbyggðinni.
Á vef heilbrigðisráðuneytisins er
vakin sérstök athygli á útfærslu á
nálægðartakmörkunum í íþróttum
og bráðabirgðaákvæði sem kveður
á um strangari takmarkanir á höf-
uðborgarsvæðinu en gilda á lands-
vísu. Líkamsræktarstöðvum um
allt land verður þannig heimilt að
hafa opið, að uppfylltum ströngum
skilyrðum. Ráðuneytið minnir á að
öll blöndun milli hópa er óheimil,
hvort sem er í tengslum við salerni,
búningsklefa, inn- og útganga o.fl.
Íþróttir og keppni utan
höfuðborgarsvæðisins
Þrátt fyrir tveggja metra nálægðar-
mörk eru snertingar heimilar milli
íþróttafólks á æfingum og í keppn-
um á vegum ÍSÍ, en virða skal tveggja
metra regluna í búningsklefum og
öðrum svæðum utan kepni og æf-
inga. Þrátt fyrir 20 manna fjöldatak-
mörk er allt að 50 manns heimilt að
koma saman á æfingum og keppn-
um á vegum ÍSÍ. óheimilt er að hafa
áhorfendur á íþróttaviðburðum.
Heimilt er með skilyrðum að
standa fyrir og stunda íþróttir og
heilsurækt ef um er að ræða skipu-
lagða hópatíma þar sem allir þátt-
takendur eru skráðir. Við þær að-
stæður ber að virða tveggja metra
regluna, þátttakendur mega ekki
deila búnaði á meðan tíma stendur
og allur búnaður skal sótthreinsað-
ur á milli tíma. óheimilt verður að
nota búnað sem er gólf-, loft- eða
veggfastur, svo sem á heilsuræktar-
stöðvum.
Höfuðborgarsvæðið
Heimilt er með skilyrðum að stunda
íþróttir og heilsurækt í skipulögð-
um hópatímum þar sem allir þátt-
takendur eru skráðir. Við þær að-
stæður ber að virða tveggja metra
regluna, þátttakendur mega ekki
deila búnaði í tíma og allur búnað-
ur skal sótthreinsaður á milli tíma.
Sameiginleg notkun búnaðar sem er
gólf-, loft- eða veggfastur, svo sem á
heilsuræktarstöðvum, er óheimil.
Heimildir fyrir íþróttastarfi, æf-
ingum og keppnum á vegum ÍSÍ,
gilda ekki á höfuðborgarsvæðinu.
Íþrótta-, æskulýðs- og tóm-
stundastarf barna á leik- og grunn-
skólaaldri er óheimilt, þar með talið
skólasund, sem krefst frekari snert-
ingar og blöndunar hópa en í skóla-
starfi. kgk
Lítillega hert á sóttvarnaraðgerðum
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Ljósm. Stjórnarráðið.
Flosi H. Sigurðsson.
Flosi ráðinn sviðsstjóri hjá Borgarbyggð
Grunur um nýtt riðutilfelli í Skagafirði
Grunur er um nýtt tilfelli riðu í Skagafirði.
Ljósm. tengist fréttinni ekki með beinum hætti.