Skessuhorn - 21.10.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 21. oKtóBER 202026
Pennagrein
Þegar stíga skal stór skref er sjálf-
sagt að gæta varúðar. Varúðin má
þó aldrei ná öllum völdum því þá
eru allar líkur á því að stóru skref-
in verði aldrei stigin. Ef einhverj-
ir þekkja það á eigin skinni eru það
Skagamenn. Fyrir því er löng saga
og ekki er hún baráttulaus.
Þegar barist var fyrir því að Akra-
nes yrði löggildur verslunarstaður
olli það talsverðum deilum á Al-
þingi. Þar féllu miður falleg orð
og verst lét trúlega Pétur Péturs-
son biskup sem þá var konungkjör-
inn þingmaður. Þá orti hann þessa
vísu:
Kaupstaður á Skipaskaga,
skötnum verður helzt til baga,
eftir sér þann dilk mun draga:
Drykkjurúta og letimaga.
Sem betur fer urðu Pétur og
skoðanabræður hans undir á þingi
og Akranes hlaut löggildingu sem
verslunarstaður eftir áratuga bar-
áttu árið 1864. Þann árangur má að
stórum hluta þakka harðfylgi þing-
manna Borgfirðinga; Hannesar
Stephensen og Arnljóts ólafsson-
ar, svo einhverjir séu nefndir. Þeir
báru hag umbjóðenda sinna fyrir
brjósti, börðust fyrir honum sem og
hag annarra landsmanna. Í þann tíð
þótti það ekki ljóður á ráði nokk-
urs þingmanns. Sagan hefur sannað
að Hannes og Arnljótur höfðu rétt
fyrir sér.
Framfaraskrefum fylgir
fólksfjölgun
Fjölgun íbúa á Akranesi hefur æ síð-
an að mestu verið jákvæð. Á köflum
hefur fjölgunin þó verið í stórum
skrefum, ef ekki stökkum. Þar ræð-
ur mestu áhrif stórstígra framfara-
skrefa sem stigin hafa verið í at-
vinnu- og samgöngumálum á Akra-
nesi og nágrenni. Má þar nefna
djörfungar margra útgerðarmanna
í upphafi 20. aldar, stofnunar skipa-
smíðastöðvar Þorgeirs & Ellerts
árið 1928, byggingu Sementsverk-
smiðjunnar árið 1958, bygging-
ar Íslenska járnblendifélagsins á
Grundartanga árið 1977, bygging-
ar Norðuráls sem hófst árið 1998
og opnunar Hvalfjarðarganga það
sama ár.
Í kjölfar stórra framfaraskrefa
hefur streymt fólk til Akraness til
þess að setjast hér að. Ekki drykkju-
rútar og letimagar eins og Pétur
biskup spáði heldur harðduglegt
fólk sem viljað hefur leggja hönd á
plóg og öðlast um leið öruggt skjól
í framsæknu samfélagi.
Breytt umræðuhefð
Á allra síðustu árum hefur umræðu-
hefð landsmanna tekið nokkrum
breytingum. Ekki aðeins er hún orð-
in óvægnari heldur líka ónærgætnari
á margan hátt. Þá hefur einnig færst
mjög í vöxt að tíðarandi nútímans
er notaður sem dómstóll yfir fortíð-
inni. Kveðnir eru upp dómar, með
nútímaþekkingu og skoðunum, yfir
forfeðrum okkar sem ekki höfðu
yfir að ráða þekkingu dagsins í dag.
Dómendur nútímans kveða upp
dóma frá sjónarhorni síns allsnægt-
arborðs yfir mönnum sem reyndu af
fremsta megni að skapa sér og sín-
um lifibrauð frá degi til dags. oft-
ast einungis með berar hendur og
djörfung að vopni. Annað hefur líka
breyst mjög til hins verra í opin-
berri umræðu. Það eru sú skoðun
að stjórnmálamenn geti aldrei tekið
það sem kallað er faglegar ákvarð-
anir. Einkum ef þeir eru af lands-
byggðinni. Þá heita öll þeirra bar-
áttumál og ákvarðanir byggða- eða
kjördæmapot. Uppbygging á höf-
uðborgarsvæðinu virðist hins veg-
ar aldrei af pólitískum rótum runn-
in heldur aðeins faglegum.
Því er þetta rifjað upp hér að á
dögunum birtist grein í Skessu-
horni þar sem kveðinn er upp slíkur
dómur yfir allri baráttu fyrir bygg-
ingu Sementsverksmiðjunnar á sín-
um tíma og ef ég skil greinina rétt
nokkrum kynslóðum af stjórnmála-
og embættismönnum á Akranesi
og víðar. Greinin ber með sér alla
ókosti nútímadómenda yfir fortíð-
inni sem nefndir eru hér að framan.
Þegar grannt er skoðað er greinin
byggð á bakkalárritgerð sama höf-
undar við hugvísindasvið Háskóla
Íslands.
Ritverkin tvö bera sterk merki
áðurnefndra ósiða í nútímaumræðu.
Þar eru öll verk þeirra er voru í fylk-
ingarbrjósti heimamanna er börð-
ust fyrir byggingu verksmiðjunnar á
Akranesi gerð tortryggileg. Ekki síst
ef þar áttu í hlut Sjálfstæðismenn
eða Framsóknarmenn. Sérstak-
lega slæma útreið fá þeir þingmenn
Borgfirðinga Pétur ottesen og
Bjarni Ásgeirsson sem börðust fyr-
ir framförum á sínum heimaslóðum
um áratuga skeið líkt og Hannes og
Arnljótur fyrr. Mestum hæðum nær
þó tortryggni höfundar þegar hann
sannar á þá að hafa unnið saman að
málinu! Annar Sjálfstæðismaður og
hinn Framsóknarmaður.
Svo kemur að menntahroka og
fordómum höfundar þegar hann
ræðir um skipan Sigurðar Símon-
arsonar múrarameistara í fjögurra
manna nefnd skipaða af ráðherra
til þess að gera tillögu að staðsetn-
ingu sementsverksmiðjunnar. Síðar
tók Sigurður svo sæti í fyrstu stjórn
verksmiðjunnar. Hvað gat múrara-
meistari lagt til málanna sem auk
þess var sveitarstjórnarmaður og
sjálfstæðismaður „enda hefur hann
líklega haft mjög takmarkaða þekk-
ingu á viðfangsefninu,“ eins og seg-
ir svo smekklega í bakkalárritgerð-
inni. Er hægt að leggjast lægra í
dómum yfir mönnum?
Var sementsverksmiðjan
skyndiákvörðun?
Áform um byggingu sementsverk-
smiðju á Íslandi var ekki pólitískt
deilumál. Þvert á móti naut málið
víðtæks pólitísks stuðnings í öllum
flokkum.
Af lestri Skessuhornsgreinar-
innar má ráða að staðsetning sem-
entsverksmiðjunnar á Akranesi hafi
verið skyndiákvörðun. Ekkert er
jafn fjarri sanni. Allt frá árinu 1936
hafði Akranes komið til greina þeg-
ar staðarval var rætt. Bæjarstjórn
Akraness skipaði nefnd er vinna
skyldi að því að kostir Akraness
yrðu kannaðir betur og þeim komið
á framfæri. Í þeirri nefnd sátu áður-
nefndur Sigurður Símonarson sem
var formaður. Aðrir nefndarmenn
voru Einar Helgason trésmíða-
meistari og Hans Jörgensen kenn-
ari. Verksmiðjan þurfti að rísa nærri
hráefnisöflun, nærri sjó, nærri höfn
og nærri byggð sem tryggt gæti
starfseminni vinnufúsar hendur. Allt
þetta hafði Akranes að bjóða. Ekki
síst þurfti til hennar mikla orku.
Hún var til staðar eftir byggingu
Andakílsárvirkjunar, sem líka var
eitt af baráttumálum hér um slóð-
ir, ekki síst Péturs ottesen. Skaga-
menn, ásamt þingmönnum sínum,
unnu sína heimavinnu og verk-
smiðjan reis. Þeir fiska sem róa.
Gísli Jónsson þingmaður Barð-
strendinga og síðar Vestfirðinga
barðist mjög fyrir því að sements-
verksmiðjunni yrði valinn staður
á Vestfjörðum. Síðar sagði hann
þegar hann ræddi um Pétur otte-
sen: „Hann vann að því af mik-
illi framsýni að Sementverksmiðj-
an var staðsett á Akranesi. Henni
hafði í raun verið ætlaður staður í
Önundarfirði, þegar Pétur otte-
sen færði að því sterk rök, að miklu
hagkvæmara væri að staðsetja hana
á Akranesi og sækja sandinn í Faxa-
flóa. Ég hygg, að það hafi verið
mjög vel ráðið.“ Þarf frekari vitn-
anna við?
Bæjarfulltrúar
klækjabragða?
Sementsverksmiðjan reis og var um
áratugaskeið einn af burðarásum í
atvinnulífi á Akranesi og nærsveit-
um auk þess að tryggja landsmönn-
um aðgang að framleiðsluvörunni,
sementi.
Líkt og önnur mannanna verk
hafði verksmiðjan áhrif á sitt nán-
asta umhverfi. Ekki einungis með
atvinnu og umsvifum heldur einn-
ig vegna umfangsins. Henni þurfti
að velja stað. Sú staðsetning var
ákvörðun kjörinna fulltrúa í bæjar-
stjórn Akraness á þeim tíma.
Stóru orðin eru ekki spör-
uð í Skessuhornsgreininni um þá
ákvörðun. Pólitísk klækjabrögð,
traðkað á íbúum, virðingarleysi,
byggingu þröngvað inná bæjarbúa,
hræðileg umhverfisspjöll svo eitt-
hvað sé nefnt. Í framhjáhlaupi nefnir
höfundur þó að hann vilji samt ekki
gera lítið úr þeim áhrifum sem verk-
smiðjan hafði á atvinnulíf. Sagn-
fræðingurinn vill sumsé bæði halda
og sleppa. Svo er það hápunkturinn.
Versta af öllu því versta. Alþingi
og bæjarstjórn Akraness tóku póli-
tíska ákvörðun í málinu! og hverj-
ir voru nú bæjarfulltrúar á árunum
1946-1954 þegar flestar ákvarðanir
í þessu máli voru teknar? Fyrir Al-
þýðuflokk voru það Hálfdán Sveins-
son, Sveinn Guðmundsson og Guð-
mundur Sveinsson. Fyrir Sósíal-
istaflokk voru það Skúli Skúlason,
Halldór Backmann og Hans Jörg-
ensen sem gekk i Alþýðuflokkinn
á tímabilinu. Fyrir Framsóknar-
flokkinn var það Ásgeir Guðmunds-
son og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
voru þeir ólafur B Björnsson, Jón
Árnason, Þorgeir Jósefsson, Einar
Helgason, oddur Hallbjarnarson,
Guðmundur Guðjónsson og Stur-
laugur Böðvarsson. Ekki voru bæj-
arbúar óánægðari með flesta þeirra
en svo að þeir voru endurkjörnir
kosningar eftir kosningar.
Dómur rithöfundarins
Í greininni er dreginn fram rit-
höfundur til þess að hámarka eft-
irá dóma og hæst/lægst rís sá dóm-
ur og staðfestir um leið notkun nú-
tímagleraugnanna og hrokans yfir
fortíðinni þegar rætt er um Langa-
sandinn; „eina baðströndin sem
risið hefur undir nafni á Íslandi var
á Akranesi, ég segi var, vegna þess
að sú baðströnd var eyðilögð áður
en það komst almennt í tísku að
sleikja sólskinið og fara í sjóböð.“
Svo mörg voru þau orð rithöfund-
arins.
orð sem þessi dæma sig að sjálf-
sögðu sjálf. Vissulega fór hluti af
Langasandi undir athafnasvæði
Sementsverksmiðjunnar. Lang-
isandur, þó fagur sé, er alls ekki
eina baðströndin á Íslandi. Ennþá
sækja Skagamenn og gestir þeirra
samt Langasand til þess að sleikja
sólskinið og það sem meira er þeir
fara þar í sjóböð allan ársins hring.
Langisandur er ennþá náttúruperla
og hann og nágrenni hans sækja nú
fleiri gestir en nokkru sinni fyrr.
Það verður án efa um langan ald-
ur.
Hvernig væri hið
óspjallaða Akranes?
Bygging Sementsverksmiðjunn-
ar var mikið framfaraskref. Það
var uppbyggingin á Grundartanga
líka að ekki sé minnst á Hvalfjarð-
argöng. Uppbyggingin á Grundar-
tanga og göngin undir Hvalfjörð
urðu samt sem áður uppspretta
mikilla deilna.
Værum við betur komin með
Grenjarnar ósnertar ef þar hefði
aldrei verið rekstur? Væri Breið-
in eftirsóknarverður staður hefði
henni ekki verið spillt með sjó-
vörnum? Sjávarútvegur á Akra-
nesi í dag er því miður ekki svipur
hjá sjón. Veitir það okkur rétt til að
setjast í dómarasæti yfir þeim út-
gerðarmönnum fortíðarinnar sem
kölluðu eftir og fengu með póli-
tískum ákvörðunum mikil hafn-
armannvirki sem kostuðu miklar
breytingar á umhverfinu. Voru þeir
umhverfisböðlar? Verður Haraldur
Böðvarsson næstur á sakamanna-
bekk sagnfræðingsins?
Eins og áður sagði fylgja bú-
setu óhjákvæmilega breytingar á
nánasta umhverfi. Nú ryður sér til
rúms sú skoðun og þykir fín að við
sem nú erum uppi eigum að skila
náttúrunni ósnortinni í hendur af-
komenda okkar.
Ég er feginn því að Haraldur
Böðvarsson, Sigurður Hallbjörns-
son, Pétur ottesen, Bjarni Ásgeirs-
son, Sigurður Símonarson, Þorgeir
Jósefsson, Þórður Ásmundsson,
Hálfdán Sveinsson, Skúli Skúlason,
Jón Árnason og önnur athafna- og
stjórnmálamenn í gegnum tíð-
ina gerðu það ekki. Hvernig væri
byggð á Akranesi í dag án þeirra
verka? Akranes er innrammað í
sjóvörnum. Þær voru ekki reist-
ar að ástæðulausu heldur til þess
að verja landið og eignir fólks og
fyrirtækja. Gera svæðið byggilegt.
Hversu stórt væri Akranes yfirhöf-
uð án þessara sjóvarna? Væri ennþá
kaupstaður á Skipaskaga?
Ég er einn þeirra þúsunda
manna af góðu bergi brotnir er
hingað hafa flutt til þess að njóta
verka genginna kynslóða. Á þeirra
ákvörðunum hefur blómleg byggð
byggst upp. Kjörnir fulltrúar bæj-
arbúa og bæjarstjóri mega því og
eiga að birtast sem oftast glaðir í
bragði vegna framfaraskrefa for-
tíðarinnar um leið og þeir ákveða
fleiri framfaraskref.
Sagnfræðin er skemmtileg fræði-
grein. Án þekkingar og reynslu
sögunnar gætum við ekki fetað
betri slóðir í framtíðinni. Þegar
fella á dóma yfir mönnum er önn-
ur fræðigrein betri. Illa ígrundaðir
pólitískir sleggjudómar lagast lítið
þó reynt sé að klæða þá í búning
sagnfræðinnar. Það sannar áður-
nefnd Skessuhornsgrein rækilega.
Berum virðingu fyrir gengnum
kynslóðum.
Lifi Langisandur.
Halldór Jónsson
Höfundur er aðfluttur
Skagamaður.
Sakamannabekkur sagnfræðingsins
Bláfáninn dreginn að húni við Langasand síðastliðið vor. LJósm úr safni/kgkFólk nýtur hér lífsins og kyrrðar í Guðlaugu við Langasand á Akranesi.