Skessuhorn


Skessuhorn - 21.10.2020, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 21.10.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 21. oKtóBER 202026 Pennagrein Þegar stíga skal stór skref er sjálf- sagt að gæta varúðar. Varúðin má þó aldrei ná öllum völdum því þá eru allar líkur á því að stóru skref- in verði aldrei stigin. Ef einhverj- ir þekkja það á eigin skinni eru það Skagamenn. Fyrir því er löng saga og ekki er hún baráttulaus. Þegar barist var fyrir því að Akra- nes yrði löggildur verslunarstaður olli það talsverðum deilum á Al- þingi. Þar féllu miður falleg orð og verst lét trúlega Pétur Péturs- son biskup sem þá var konungkjör- inn þingmaður. Þá orti hann þessa vísu: Kaupstaður á Skipaskaga, skötnum verður helzt til baga, eftir sér þann dilk mun draga: Drykkjurúta og letimaga. Sem betur fer urðu Pétur og skoðanabræður hans undir á þingi og Akranes hlaut löggildingu sem verslunarstaður eftir áratuga bar- áttu árið 1864. Þann árangur má að stórum hluta þakka harðfylgi þing- manna Borgfirðinga; Hannesar Stephensen og Arnljóts ólafsson- ar, svo einhverjir séu nefndir. Þeir báru hag umbjóðenda sinna fyrir brjósti, börðust fyrir honum sem og hag annarra landsmanna. Í þann tíð þótti það ekki ljóður á ráði nokk- urs þingmanns. Sagan hefur sannað að Hannes og Arnljótur höfðu rétt fyrir sér. Framfaraskrefum fylgir fólksfjölgun Fjölgun íbúa á Akranesi hefur æ síð- an að mestu verið jákvæð. Á köflum hefur fjölgunin þó verið í stórum skrefum, ef ekki stökkum. Þar ræð- ur mestu áhrif stórstígra framfara- skrefa sem stigin hafa verið í at- vinnu- og samgöngumálum á Akra- nesi og nágrenni. Má þar nefna djörfungar margra útgerðarmanna í upphafi 20. aldar, stofnunar skipa- smíðastöðvar Þorgeirs & Ellerts árið 1928, byggingu Sementsverk- smiðjunnar árið 1958, bygging- ar Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga árið 1977, bygging- ar Norðuráls sem hófst árið 1998 og opnunar Hvalfjarðarganga það sama ár. Í kjölfar stórra framfaraskrefa hefur streymt fólk til Akraness til þess að setjast hér að. Ekki drykkju- rútar og letimagar eins og Pétur biskup spáði heldur harðduglegt fólk sem viljað hefur leggja hönd á plóg og öðlast um leið öruggt skjól í framsæknu samfélagi. Breytt umræðuhefð Á allra síðustu árum hefur umræðu- hefð landsmanna tekið nokkrum breytingum. Ekki aðeins er hún orð- in óvægnari heldur líka ónærgætnari á margan hátt. Þá hefur einnig færst mjög í vöxt að tíðarandi nútímans er notaður sem dómstóll yfir fortíð- inni. Kveðnir eru upp dómar, með nútímaþekkingu og skoðunum, yfir forfeðrum okkar sem ekki höfðu yfir að ráða þekkingu dagsins í dag. Dómendur nútímans kveða upp dóma frá sjónarhorni síns allsnægt- arborðs yfir mönnum sem reyndu af fremsta megni að skapa sér og sín- um lifibrauð frá degi til dags. oft- ast einungis með berar hendur og djörfung að vopni. Annað hefur líka breyst mjög til hins verra í opin- berri umræðu. Það eru sú skoðun að stjórnmálamenn geti aldrei tekið það sem kallað er faglegar ákvarð- anir. Einkum ef þeir eru af lands- byggðinni. Þá heita öll þeirra bar- áttumál og ákvarðanir byggða- eða kjördæmapot. Uppbygging á höf- uðborgarsvæðinu virðist hins veg- ar aldrei af pólitískum rótum runn- in heldur aðeins faglegum. Því er þetta rifjað upp hér að á dögunum birtist grein í Skessu- horni þar sem kveðinn er upp slíkur dómur yfir allri baráttu fyrir bygg- ingu Sementsverksmiðjunnar á sín- um tíma og ef ég skil greinina rétt nokkrum kynslóðum af stjórnmála- og embættismönnum á Akranesi og víðar. Greinin ber með sér alla ókosti nútímadómenda yfir fortíð- inni sem nefndir eru hér að framan. Þegar grannt er skoðað er greinin byggð á bakkalárritgerð sama höf- undar við hugvísindasvið Háskóla Íslands. Ritverkin tvö bera sterk merki áðurnefndra ósiða í nútímaumræðu. Þar eru öll verk þeirra er voru í fylk- ingarbrjósti heimamanna er börð- ust fyrir byggingu verksmiðjunnar á Akranesi gerð tortryggileg. Ekki síst ef þar áttu í hlut Sjálfstæðismenn eða Framsóknarmenn. Sérstak- lega slæma útreið fá þeir þingmenn Borgfirðinga Pétur ottesen og Bjarni Ásgeirsson sem börðust fyr- ir framförum á sínum heimaslóðum um áratuga skeið líkt og Hannes og Arnljótur fyrr. Mestum hæðum nær þó tortryggni höfundar þegar hann sannar á þá að hafa unnið saman að málinu! Annar Sjálfstæðismaður og hinn Framsóknarmaður. Svo kemur að menntahroka og fordómum höfundar þegar hann ræðir um skipan Sigurðar Símon- arsonar múrarameistara í fjögurra manna nefnd skipaða af ráðherra til þess að gera tillögu að staðsetn- ingu sementsverksmiðjunnar. Síðar tók Sigurður svo sæti í fyrstu stjórn verksmiðjunnar. Hvað gat múrara- meistari lagt til málanna sem auk þess var sveitarstjórnarmaður og sjálfstæðismaður „enda hefur hann líklega haft mjög takmarkaða þekk- ingu á viðfangsefninu,“ eins og seg- ir svo smekklega í bakkalárritgerð- inni. Er hægt að leggjast lægra í dómum yfir mönnum? Var sementsverksmiðjan skyndiákvörðun? Áform um byggingu sementsverk- smiðju á Íslandi var ekki pólitískt deilumál. Þvert á móti naut málið víðtæks pólitísks stuðnings í öllum flokkum. Af lestri Skessuhornsgreinar- innar má ráða að staðsetning sem- entsverksmiðjunnar á Akranesi hafi verið skyndiákvörðun. Ekkert er jafn fjarri sanni. Allt frá árinu 1936 hafði Akranes komið til greina þeg- ar staðarval var rætt. Bæjarstjórn Akraness skipaði nefnd er vinna skyldi að því að kostir Akraness yrðu kannaðir betur og þeim komið á framfæri. Í þeirri nefnd sátu áður- nefndur Sigurður Símonarson sem var formaður. Aðrir nefndarmenn voru Einar Helgason trésmíða- meistari og Hans Jörgensen kenn- ari. Verksmiðjan þurfti að rísa nærri hráefnisöflun, nærri sjó, nærri höfn og nærri byggð sem tryggt gæti starfseminni vinnufúsar hendur. Allt þetta hafði Akranes að bjóða. Ekki síst þurfti til hennar mikla orku. Hún var til staðar eftir byggingu Andakílsárvirkjunar, sem líka var eitt af baráttumálum hér um slóð- ir, ekki síst Péturs ottesen. Skaga- menn, ásamt þingmönnum sínum, unnu sína heimavinnu og verk- smiðjan reis. Þeir fiska sem róa. Gísli Jónsson þingmaður Barð- strendinga og síðar Vestfirðinga barðist mjög fyrir því að sements- verksmiðjunni yrði valinn staður á Vestfjörðum. Síðar sagði hann þegar hann ræddi um Pétur otte- sen: „Hann vann að því af mik- illi framsýni að Sementverksmiðj- an var staðsett á Akranesi. Henni hafði í raun verið ætlaður staður í Önundarfirði, þegar Pétur otte- sen færði að því sterk rök, að miklu hagkvæmara væri að staðsetja hana á Akranesi og sækja sandinn í Faxa- flóa. Ég hygg, að það hafi verið mjög vel ráðið.“ Þarf frekari vitn- anna við? Bæjarfulltrúar klækjabragða? Sementsverksmiðjan reis og var um áratugaskeið einn af burðarásum í atvinnulífi á Akranesi og nærsveit- um auk þess að tryggja landsmönn- um aðgang að framleiðsluvörunni, sementi. Líkt og önnur mannanna verk hafði verksmiðjan áhrif á sitt nán- asta umhverfi. Ekki einungis með atvinnu og umsvifum heldur einn- ig vegna umfangsins. Henni þurfti að velja stað. Sú staðsetning var ákvörðun kjörinna fulltrúa í bæjar- stjórn Akraness á þeim tíma. Stóru orðin eru ekki spör- uð í Skessuhornsgreininni um þá ákvörðun. Pólitísk klækjabrögð, traðkað á íbúum, virðingarleysi, byggingu þröngvað inná bæjarbúa, hræðileg umhverfisspjöll svo eitt- hvað sé nefnt. Í framhjáhlaupi nefnir höfundur þó að hann vilji samt ekki gera lítið úr þeim áhrifum sem verk- smiðjan hafði á atvinnulíf. Sagn- fræðingurinn vill sumsé bæði halda og sleppa. Svo er það hápunkturinn. Versta af öllu því versta. Alþingi og bæjarstjórn Akraness tóku póli- tíska ákvörðun í málinu! og hverj- ir voru nú bæjarfulltrúar á árunum 1946-1954 þegar flestar ákvarðanir í þessu máli voru teknar? Fyrir Al- þýðuflokk voru það Hálfdán Sveins- son, Sveinn Guðmundsson og Guð- mundur Sveinsson. Fyrir Sósíal- istaflokk voru það Skúli Skúlason, Halldór Backmann og Hans Jörg- ensen sem gekk i Alþýðuflokkinn á tímabilinu. Fyrir Framsóknar- flokkinn var það Ásgeir Guðmunds- son og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru þeir ólafur B Björnsson, Jón Árnason, Þorgeir Jósefsson, Einar Helgason, oddur Hallbjarnarson, Guðmundur Guðjónsson og Stur- laugur Böðvarsson. Ekki voru bæj- arbúar óánægðari með flesta þeirra en svo að þeir voru endurkjörnir kosningar eftir kosningar. Dómur rithöfundarins Í greininni er dreginn fram rit- höfundur til þess að hámarka eft- irá dóma og hæst/lægst rís sá dóm- ur og staðfestir um leið notkun nú- tímagleraugnanna og hrokans yfir fortíðinni þegar rætt er um Langa- sandinn; „eina baðströndin sem risið hefur undir nafni á Íslandi var á Akranesi, ég segi var, vegna þess að sú baðströnd var eyðilögð áður en það komst almennt í tísku að sleikja sólskinið og fara í sjóböð.“ Svo mörg voru þau orð rithöfund- arins. orð sem þessi dæma sig að sjálf- sögðu sjálf. Vissulega fór hluti af Langasandi undir athafnasvæði Sementsverksmiðjunnar. Lang- isandur, þó fagur sé, er alls ekki eina baðströndin á Íslandi. Ennþá sækja Skagamenn og gestir þeirra samt Langasand til þess að sleikja sólskinið og það sem meira er þeir fara þar í sjóböð allan ársins hring. Langisandur er ennþá náttúruperla og hann og nágrenni hans sækja nú fleiri gestir en nokkru sinni fyrr. Það verður án efa um langan ald- ur. Hvernig væri hið óspjallaða Akranes? Bygging Sementsverksmiðjunn- ar var mikið framfaraskref. Það var uppbyggingin á Grundartanga líka að ekki sé minnst á Hvalfjarð- argöng. Uppbyggingin á Grundar- tanga og göngin undir Hvalfjörð urðu samt sem áður uppspretta mikilla deilna. Værum við betur komin með Grenjarnar ósnertar ef þar hefði aldrei verið rekstur? Væri Breið- in eftirsóknarverður staður hefði henni ekki verið spillt með sjó- vörnum? Sjávarútvegur á Akra- nesi í dag er því miður ekki svipur hjá sjón. Veitir það okkur rétt til að setjast í dómarasæti yfir þeim út- gerðarmönnum fortíðarinnar sem kölluðu eftir og fengu með póli- tískum ákvörðunum mikil hafn- armannvirki sem kostuðu miklar breytingar á umhverfinu. Voru þeir umhverfisböðlar? Verður Haraldur Böðvarsson næstur á sakamanna- bekk sagnfræðingsins? Eins og áður sagði fylgja bú- setu óhjákvæmilega breytingar á nánasta umhverfi. Nú ryður sér til rúms sú skoðun og þykir fín að við sem nú erum uppi eigum að skila náttúrunni ósnortinni í hendur af- komenda okkar. Ég er feginn því að Haraldur Böðvarsson, Sigurður Hallbjörns- son, Pétur ottesen, Bjarni Ásgeirs- son, Sigurður Símonarson, Þorgeir Jósefsson, Þórður Ásmundsson, Hálfdán Sveinsson, Skúli Skúlason, Jón Árnason og önnur athafna- og stjórnmálamenn í gegnum tíð- ina gerðu það ekki. Hvernig væri byggð á Akranesi í dag án þeirra verka? Akranes er innrammað í sjóvörnum. Þær voru ekki reist- ar að ástæðulausu heldur til þess að verja landið og eignir fólks og fyrirtækja. Gera svæðið byggilegt. Hversu stórt væri Akranes yfirhöf- uð án þessara sjóvarna? Væri ennþá kaupstaður á Skipaskaga? Ég er einn þeirra þúsunda manna af góðu bergi brotnir er hingað hafa flutt til þess að njóta verka genginna kynslóða. Á þeirra ákvörðunum hefur blómleg byggð byggst upp. Kjörnir fulltrúar bæj- arbúa og bæjarstjóri mega því og eiga að birtast sem oftast glaðir í bragði vegna framfaraskrefa for- tíðarinnar um leið og þeir ákveða fleiri framfaraskref. Sagnfræðin er skemmtileg fræði- grein. Án þekkingar og reynslu sögunnar gætum við ekki fetað betri slóðir í framtíðinni. Þegar fella á dóma yfir mönnum er önn- ur fræðigrein betri. Illa ígrundaðir pólitískir sleggjudómar lagast lítið þó reynt sé að klæða þá í búning sagnfræðinnar. Það sannar áður- nefnd Skessuhornsgrein rækilega. Berum virðingu fyrir gengnum kynslóðum. Lifi Langisandur. Halldór Jónsson Höfundur er aðfluttur Skagamaður. Sakamannabekkur sagnfræðingsins Bláfáninn dreginn að húni við Langasand síðastliðið vor. LJósm úr safni/kgkFólk nýtur hér lífsins og kyrrðar í Guðlaugu við Langasand á Akranesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.