Skessuhorn


Skessuhorn - 21.10.2020, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 21.10.2020, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 21. oKtóBER 2020 17 Breytt útlit Fyrir nokkrum árum var fastur liður í Skessuhorni þáttur sem nefndist Breytt útlit. Þar fékk fólk förðun og hárgreiðslu og myndir af viðkomandi teknar fyrir og eftir. Í samráði við Önnu Siggu, förðunarmeistara og hárgreiðslukonu á Mozart við Skagabraut á Akra- nesi, verður nú þessi liður endurvakinn. Ekki þó birt reglulega, en af og til. Anna Sigga sér áfram um breytinguna á fólkinu; jafnt förðun sem hár. Nú er gestur hennar í stól- num Kinga María Kotwica. Hún gifti sig 1. október síðastliðinn og langaði í breytingu fyrir stóra daginn. „Kinga vissi að mikil greiðsla væri ekki fyrir sig og fórnaði því hárinu sem hún hafði verið að safna. Val- di að fara í stutta „bob“ klippingu og lét dekkja hárið aðeins. Hún vildi hafa hárið léttblásið með smá lyf- tingu og förðunin átti að vera sem náttúrulegust á brúðkaupsdeginum,“ lýsir Anna Sigga. mm Að aflokinni klippingu, greiðslu og förðun hjá Önnu Siggu. Kinga María er fyrsti gesturinn Kinga María bíður þess sem verða vill. Félagsmenn í Neista, félagi slökkvi- liðsmanna í Borgarbyggð, steyptu síðdegis á fimmtudaginn plötu undir væntanlega þvottastöð sína. Á plan- inu verður komið upp saunatunnu, pottum og útisturtu. Þar munu slökkviliðsmenn eignast aðstöðu til að hreinsa af sér sót og reykjarlykt eftir löng og ströng útköll. Planið er steypt meðfram norðurhlið slökkvi- stöðvarinnar við Sólbakka í Borgar- nesi. Verður hurðargat gert þannig að innangengt verði í slökkvistöð- ina. Eins og fram hefur komið í frétt- um Skessuhorns er um einkafram- tak slökkviliðsmanna að ræða, en þeir hófu söfnun fyrir saunatunnu fyrr á þessu ári og fengu afar góðar viðtökur úr samfélaginu. Nú styttist því í að hægt verði að koma búnað- inum á staðinn og slökkviliðsmenn komið tandurhreinir og ilmandi heim til sín eftir slökkvistörf. mm Nemendur í 2. bekk At í Grunn- skóla Snæfellsbæjar kunnu vel að meta heita kakóið sitt sem hitað var yfir eldi í útikennslustofu skól- ans á Hellissandi. Kakóið fengu þau þegar þau höfðu lokið við að leysa verkefni í útikennslu í mynd- mennt og heimilisfræði. Var ferð- in samvinnuverkefni milli mynd- mennta- og heimilisfræðikennar- anna þeirra Ingu Harðardóttur og Sóleyjar Jónsdóttur. Bjuggu þau til mandölur úr steinum og með því að teikna í mölina ásamt því að fræðast um form í náttúrunni. Kakóið fengu þau svo á meðan þau veltu fyrir sér hvað annað væri hægt að elda úti og komu nokkr- ar hugmyndir upp þó svo að syk- urpúðar væri sú vinsælasta með- al barnanna, en allir vissu að það væri ekkert mál að hita þá. Áður en haldið var aftur til baka var farið í feluleik enda veðrið gott. þa Veltu fyrir sér hvað elda mætti úti Steyptu plan undir útiþvottastöðina SK ES SU H O R N 2 02 0 Hunda- og kattaeigendur athugið Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina og er ormahreinsun hunda og katta innifalin í leyfisgjaldi. Hundahreinsun verður frá kl. 13.00-20.00 mánudaginn 26. október Kattahreinsun verður frá kl. 13.00-20.00 þriðjudaginn 27. október Staðsetning: Þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin) Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. greiða þarf með peningum) Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári, • verð kr. 3.000 Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 4.500• Ófrjósemissprauta í hunda og ketti, verð kr. 3.000-7.000 • fer eftir þyngd Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 4.000• Seinni hreinsun laugardaginn 7. nóvember. Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230. Vinsamlegast athugið! Vegna hertra sóttvarnaraðgerða verður grímuskylda og biðjum við fólk að virða 2 metra fjarlægðarmörk. Passað verður upp á fjöldatakmarkanir. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.