Skessuhorn


Skessuhorn - 21.10.2020, Side 12

Skessuhorn - 21.10.2020, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 21. oKtóBER 202012 Það er í mörg horn að líta hjá bygg- ingafyrirtækinu Eiríki J Ingólfssyni ehf. í Borgarnesi. Verkefni fyrirtæk- isins eru víða um héraðið en einn- ig á Suðurlandi þar sem til stend- ur að byggja hátæknisumarbústað fyrir hreyfihamlaða, þar sem not- endur hússins geta farið um það og stýrt ýmsum búnaði með appi í sím- unum sínum. Undanfarin ár hef- ur stærsta verkefni EJI ehf. þó ver- ið stækkun og breytingar á Grunn- skóla Borgarness en nú líður að lok- um þess verkefnis, einungis lóða- frágangur eftir. Þá er sömuleið- is verið að ljúka byggingu nýs leik- skóla á Kleppjárnsreykjum og þar er einungis lóðavinnu ólokið. En þrátt fyrir að þessum stóru verkefn- um sé að ljúka er næg vinna fram- undan, að sögn Eiríks J Ingólfsson- ar byggingameistara. Þrátt fyrir að vera fæddur á tíma danskra yfirráða á fyrri hluta lýðveldisársins er eng- an bilbug á Eiríki að finna. „Ég ætla að vinna við fyrirtækið mitt áfram meðan mér finnst það skemmti- legt og heilsan er góð.“ Blaðamaður Skessuhorns hitti að máli Eirík og aðstoðarmann hans ottó ólafsson byggingaiðnfræðing á verkstæðinu við Sólbakka í Borgarnesi. Spurt er m.a. um verkefnin framundan. Sóleyjarklettur að fara í byggingu „Nú erum við að mestu búin með stóru verkefnin sem hafa verið í gangi, það er skólana hér í Borg- arnesi og leikskólann á Kleppjárns- reykjum. Engu að síður er mik- ið framundan. Verkefnastaðan er þannig að við getum hæglega hald- ið öllum þeim þrjátíu starfsmönn- um sem hér eru út næsta ár án þess að neitt bætist við,“ segir Eiríkur. Nú er lokið hönnun á fyrsta áfanga í nýrri íbúðabyggð sem reisa á hér í Borgarnesi við nýju götuna Sóleyj- arklett. „Þetta er verkefni sem al- farið er á forræði þriggja fyrirtækja, þ.e. okkar hjá EJI ehf, Steypu- stöðvarinnar og Borgarverks. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir að byggja sex fjölbýlishús með sam- tals 30 íbúðum. Þetta verða tveggja hæða hús með fimm íbúðum í hverju. Fjórar íbúðirnar verða 85 fermetrar auk geymslu en ein verð- ur minni, eða 48 fm. Framkvæmdir við þennan fyrsta áfanga hefjast nú í vetur og er stefnan að vera komn- ir með sökkla að fyrsta húsinu fyrir áramót og reising á því verði í síð- asta lagi í mars á næsta ári. Fram- vinda verkefnisins ræðst svo af við- tökum á markaðinum og sölu íbúð- anna. Í seinni áfanganum við Sól- eyjarklett er svo gert ráð fyrir par- húsum og einbýlishúsum, allt að sextíu íbúðum á svæðinu. Ekki er hins vegar búið að ljúka endanlegu skipulagi fyrir þann áfanga og því varhugavert að úttala sig um það. Það byggingasvæði er ofan við höf- uðstöðvar kaupfélagsins við Egils- holt.“ Stórum verkefnum að ljúka „Þessa dagana erum við að einbeita okkur að ljúka við lóðina við nýj- an leikskóla á Kleppjárnsreykjum þannig að börnin og starfsfólkið geti flutt sem fyrst. Við erum hins vegar aðeins háð veðri því sum efn- in sem lögð eru krefjast þess að ekki sé of kalt í veðri. Á Kleppjárnsreykj- um eigum við sömuleiðis að útbúa afgirtan sparkvöll á skólalóðinni við íþróttahúsið. Samhliða þessu erum við svo að ljúka við lóðina við grunnskólann hér í Borgarnesi.“ Eiríkur segir að staðfest verk- efni gefi fyrirheit um að þetta og allt næsta ár verði gott hjá fyrirtæk- inu. telur hann upp fjölda húsa sem til stendur að byggja, meðal annars 150 fm hús, þrjú orlofshús í Svigna- skarði og viðhald nokkurra eldri húsa víða um héraðið og í Borgar- nesi. „Verkefnastaðan er því góð, eins og við viljum hafa hana,“ segir Eiríkur. Stöðug vinna í glugga- og hurðasmíði Samhliða byggingu húsa rekur EJI glugga- og hurðasmiðju og stýrir Ingólfur sonur Eiríks þeirri vinnu á verkstæðinu og hefur tvo með sér. „Við höfum mikið verið að taka að okkur sérsmíði og komumst upp með að fá sérsmíðaverkefni án út- boðs. oft er fólk að biðja um ákveð- in efni og þá er útilokað að gefa föst verðtilboð. Við tökum hins vegar ekki þátt í stórum útboðum um smíði glugga og hurða. okkar byggingaverkefnum fylgir oft mik- il glugga- og hurðasmíði þann- ig að verkefnastaðan á verkstæðinu er stöðug og góð. Við höfum ver- ið að bæta tækjakostinn og smíðum nú mikið af timburgluggum með ál- listum sem markaðurinn hefur kall- að eftir.“ Fjölskyldan kemur öll að fyrirtækinu trésmiðja EJI ehf. er í rauninni hreinræktað fjölskyldufyrirtæki og taka börn Eiríks virkan þátt í starf- seminni. „Eins og fyrr stýrir Ing- ólfur sonur minn gluggaframleiðsl- unni, Anna Margrét dóttir mín og Haffi tengdasonur þrífa nýju hús- in og afhenda kaupendum, Hjalti Ragnar sonur minn er endurskoð- andi og sér um fjármálin og sjálfur er ég mikið í samskiptum við verk- kaupa og gerð útboða. Mín hægri hönd á skrifstofunni er svo ottó ólafsson byggingaiðnfræðingur og húsasmiður sem sér um ýmis tækni- mál og skrifstofustörf. Sjálfum finnst mér þetta ennþá skemmtilegt og sé ekki ástæðu til að hætta meðan þetta er gaman og vel gengur. Við erum hins vegar búnir að gantast með það, ég og tveir góðir sem hafa verið lengi hjá mér; Davíð, Siggi og óskar, að þegar þeir komast á eft- irlaun þá fyrst megi ég hætta. En grínlaust þá er styrkur okkar fyrir- tækis að hafa afburða góða starfs- menn sem geta sýnt sveigjanleika, eru til dæmis ekki endilega alltaf að líta á klukkuna. Hjá mér hafa marg- ir verið að störfum í fjöldamörg ár og ætli ég sé ekki búinn að skrifa upp á 24-26 sveinspróf frá því ég kom í Borgarnes 1969.“ Úr húsgögnum í húsbyggingar Sjálfur menntaði Eiríkur sig ungur maður í húsgagnasmíði og gerðist verkstjóri hjá Neshúsgögnum við Borgarbraut 57 í Borgarnesi. „Svo var ég hjá Jóhanni Waage og læri þar húsasmíði, rak ásamt fimm öðr- um eftir það Byggingafélagið Borg en vorum þrír undir það síðasta. Ég stofnaði svo EJI ehf. fyrir tuttugu árum og hef komið að fjölmörgum byggingum í gegnum tíðina. okkur hefur gengið vel að afla verkefna og eru til dæmis stéttarfélögin stór við- skiptavinur hjá okkur. Þau eru orð- in býsna mörg orlofshúsin sem við höfum afhent. Þrátt fyrir þetta ár- ferði í þjóðfélaginu er verkefnastað- an samt mjög góð. Strákarnir hjá mér eru að gantast með að nú þurfi ég að fara í langt sumarfrí þannig að ná megi verkefnastöðunni niður um nokkra mánuði,“ segir Eiríkur að endingu. mmFramhlið væntanlegs húss við Sóleyjarklett. Verkefnastaðan sjaldan verið betri hjá Eiríki J Ingólfssyni ehf. Framundan er bygging fyrsta áfanga Sóleyjarkletts í Borgarnesi Eiríur J Ingólfsson og Ottó Ólafsson hjá EJI ehf. Ingólfur Eiríksson og Eiríkur Ágúst Brynjarsson starfa í gluggasmiðjunni. Á myndina vantar Stefán Haraldsson sem er þriðji maður í smiðjunni. Þó komnir séu á áttræðisaldur eru þeir báðir á fullu í atvinnurekstri. Júlíus Jónsson bifreiðastjóri, sem kom við þegar blaðamaður var á ferðinni, og Eiríkur J Ingólfsson húsasmíðameistari. Teikning sem sýnir fyrsta áfanga væntanlegra framkvæmda við Sóleyjarklett í Borgarnesi. Bakhlið húss sem reisa á við Sóleyjarklett.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.