Skessuhorn - 21.10.2020, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 21. oKtóBER 2020 31
Framherjinn Gonzalo Zamor-
ano hefur kvatt lið Víkings ó., en
hann samdi við liðið öðru sinni fyr-
ir yfirstandandi leiktíð. Fótbolti.
net greinir frá. Gonzalo hefur spil-
að vel með ólafsvíkingum á árinu,
skorað 14 mörk í 22 leikjum í deild
og bikar.
Útséð er að Víkingur mun leika
áfram í næstefstu deild á næsta ári,
en liðið situr í 9. sæti 1. deildar með
19 stig eftir 20 leiki. Þá ríkir óvissa
um það hvort mótið verður klárað
vegna Covid-19 faraldursins.
Fótbolti.net greinir frá því að
Gonzalo vilji leika áfram á Íslandi,
en hefur hug á að spila í efstu deild.
Hann lék með ÍA í Pepsi Max deild-
inni síðastliðið sumar en fann ekki
fjölina sína og skoraði ekkert mark
í 20 leikjum en í flestum þeirra kom
hann inn á sem varamaður. Í kjöl-
farið samdi hann aftur við ólafsvík-
inga og er þeirrar skoðunar að hann
hafi leikið sinn besta leik hérlendis
á liðnu sumri.
kgk
Stjórn og mótanefnd Körfuknatt-
leikssambands Íslands hafa ákveð-
ið að fresta öllum leikjum til og
með 3. nóvember næstkomandi. Er
það gert í ljósi þess að sóttvarnar-
aðgerðir yfirvalda hafa verið fram-
lengdar. Enn fremur eru aðgerðir
á höfuðborgarsvæðinu harðari en
utan þess. Enn fremur hefur verið
mælst til þess að ekki sé ferðast til
og frá borginni nema brýna nauð-
syn beri til. „Áfram verður fylgst
með þróun mála, en vonir standa til
að hægt verði að aflétta æfingatak-
mörkunum á höfuðborgarsvæðinu
fljótlega,“ segir í tilkynningu KKÍ.
Alls hefur 298 deildar- og bikar-
leikjum verið frestað í körfunni frá
7. október til og með 3. nóvember.
Stóra verkefni mótanefndar verður
að koma þeim leikjum fyrir svo vel
sé. „Leikir í Domino’s og 1. deildum
hafa forgang við endurskipulagnin-
gu mótahalds, en sömuleiðis á eft-
ir að skoða frekar hvað gert verður
með deildarleiki í neðri deildum og
yngri flokkum. Gert er ráð fyrir því
að leikið verði upp að jólahátíðin-
ni, allt til 23. desember, og að leikið
verður í Domino’s deildunum milli
jóla- og nýárs,“ segir í tilkynningu
KKÍ. Þá á jafnframt eftir að ákveða
hvað gert verður með þá um það
bil 400 leiki í fjölliða- og fjölval-
lamótum sem frestað hefur verið.
talsvert verk er því fyrir hendi við
endurskipulagningu mótahalds, en
enn er ekki ljóst hvenær það getur
hafist að nýju eða með hvaða hætti.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Lokahóf yngri flokka Knattspyrnu-
félags ÍA var haldið með óhefð-
bundnu sniði þetta árið. Þeim iðk-
endum sem hlutu viðurkenningu
var boðið að koma í hátíðarsal ÍA
og taka við þeim, en að öðrum
kosti voru engin hátíðarhöld eins
og venja hefur verið.
Leikmenn ársins í 5. flokki karla
eru þeir Birkir Samúelsson, Bjarki
Berg Reynisson og Hlynur Jóns
Heide Sigfússon og þær Elín Anna
Viktorsdóttir, Elín Birna Ármanns-
dóttir og Sunna Rún Sigurðardótt-
ir eru leikmenn ársins í 5. flokki
kvenna.
Í 4. flokki karla fékk Daníel Ingi
Jóhannesson viðurkenningu sem
besti leikmaðurinn, tómas týr
tómasson sem efnilegasti leikmað-
urinn og Sveinn Mikael ottósson
fyrir mestar framfarir. Í 4. flokki
kvenna var Birna Rún Þórólfsdóttir
valin besti leikmaðurinn, Kolfinna
Eir Jónsdóttir efnilegust og Andr-
ea ósk Pétursdóttir þótti hafa sýnt
mestar framfarir.
Gabríel Þór Þórðarson var val-
in besti leikmaður 3. flokks karla,
Logi Már Hjaltested sá efnileg-
asti og Ellert Már Hannesson fékk
virðurenningu fyrir mestar framfar-
ir. Lilja Björk Unnarsdóttir var val-
in besti leikmaður 3. flokks kvenna,
Marey Edda Helgadóttir efnileg-
asti leikmaðurinn og Friðmey Ás-
grímsdóttir þótti hafa sýnt mestar
framfarir.
Donnabikarinn kom að þessu
sinni í hlut ólafs Hauks Arilíusson-
ar og Stínubikarinn hlaut Dagbjört
Líf Guðmundsdóttir. kgk
Körfunni
frestað áfram
Ólafur Haukur Arilíusson og Dagbjört Líf Guðmundsdóttir með Donnabikarinn og
Stínubikarinn. Ljósm. KFÍA.
Viðurkenningar veittar í yngri
flokkum ÍA
Gonzalo Zamorano fagnar marki í leik
með Víkingi Ó. á liðnu sumri.
Ljósm. úr safni/ af.
Gonzalo farinn frá Víkingi
Stjórn KSÍ fundaði á mánudaginn
og í gær um stöðu Íslandsmóta í
knattspyrnu og bikarkeppni karla
og kvenna vegna takmarkana og
banns við æfingum og keppni sam-
kvæmt bráða-
birgðaákvæði
r e g l u g e r ð -
ar heilbrigð-
isráðuneyt-
is. Á fundin-
um síðdeg-
is í gær var
svo ákveð-
ið að mót-
um meist-
a r a f l o k k a
verði haldið
áfram í öllum
deildum að
því tilskyldu
að takmarkanir á æfingum og
keppni verði afnumdar eigi síð-
ar en 3. nóvember. Þá var ákveðið
að keppni skuli hætt í öllum yngri
flokkum og í eldri flokkum (40+
og 50+). Niðurröðun leikja með
nýjum leikdögum verður gefin út
á morgun.
„Stjórn KSÍ hefur áður ályktað
um að lei-
ta verði all-
ra leiða til að
ljúka mótum í
meistaraflok-
ki samkvæmt
m ó t a s k r á
auk þess sem
stjórn ÍtF
hefur ályktað
á sama veg.
Þó er ljóst
að þau áform
eru háð óvis-
su og í þeirri
von að úr því
ástandi rætist sem nú blasir við.
Með hliðsjón af því og þróun mála
næstu daga mun stjórn KSÍ taka
ákvörðun um Mjólkurbikarkepp-
ni karla og kvenna. Standi reglur
yfirvalda ekki í vegi fyrir því að
unnt verði að hefja keppni að nýju
í byrjun nóvember munu KSÍ og
aðildarfélögin vinna samkvæmt
öllum reglum sem settar verða af
heilbrigðisyfirvöldum og kapp-
kosta um að fylgja áfram ítrustu
sóttvarnarúrræðum,“ segir í til-
kynningu.
mm
Keppni verður haldið áfram í
deildakeppni meistaraflokka