Nesfréttir - 01.08.2020, Blaðsíða 13
Nesfrétt ir 13
ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
www.husavidgerdir.is/hafa-samband
info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070
Finndu okkur á
Fegrun og lenging líftíma
steyptra mannvirkja er
okkar áhugamál. Við
höfum náð góðum árangri
í margs konar múr- og
steypuviðgerðum,
múrfiltun, steiningu og
múrklæðningum. Hafðu samband
Við skoðum og gerum tilboð!
Fermingar 29. ágúst
og 12. september
Fermingar vorsins 2020
áttu að fara fram í apríl
mánuði. Að því gat ekki
orðið vegna veirunnar
eins og flestir vita. Nokkur
fermingarbörn voru fermd
í guðsþjónustum í júní, eitt
í einu. Einn piltur fermdist
9. ágúst í guðsþjónustu.
Framundan eru fermingar
29. ágúst og 12. september.
Þá hafa fermingarbörnin
beðið eftir stóra degin-
um í fjóra til fimm mánuði. Um þær mundir verður eitt ár liðið frá því að
þau komu í fyrsta fermingarfræðslutímann. Þessar fermingar verða án
altarisgöngu. En fermingarbörnin verða að koma síðar í altarisgöngu þegar
það verður leyft. Engum hefði dottið í hug fyrir einu ári að fermingum
vorsins 2020 yrði frestað um marga mánuði. Og svo eru það fermingarfötin
sem foreldrar voru búnir að kaupa fyrir fyrirhugaðar fermingar í
apríl. Í sumum tilfellum eru þau orðin of lítil samanber málsháttinn:
,,Barnið vex en brókin ekki.“
Fermingarbörn vorsins 2021 geta skráð sig rafrænt inn á
seltjarnarneskirkja.is. Er það nýjung hjá söfnuðinum og til mikilla bóta.
Fermingarfræðslan verður á laugardögum í vetur í kirkjunni.
Vetrarstarf safnaðarins
Vetrarstarf safnaðarins fer af stað sunnudaginn 6. september
kl. 11 með guðsþjónustu og sunnudagaskóla. Guðsþjónustur og messur
eru alla sunnudaga kl. 11 og samfélag á eftir. Starfið verður fjölbreytt að
vanda í vetur. Til að mynda verður á mánudögum kl. 14-16 kvennakaffi í
safnaðarheimilinu, sem er nýjung. Á föstudagsmorgnum kl. 9.30 verður
morgunkaffi og með því. Allir eru velkomnir til þess að spjalla og hitta
skemmtilegt fólk. Morgunkaffið mun kosta kr. 250. Þessi liður er einnig nýjung
í starfinu. Í vetur verður barna- og unglingastarf ásamt foreldramorgnum sem
verður auglýst síðar. Kyrrðarstundir verða á miðvikudögum og kaffikarlar
tvisvar sinnum í viku. Billjard tvisvar sinnum í viku í safnaðarheimilinu.
Stund fyrir eldri bæjarbúa einu sinni í mánuði. Fræðslumorgnar fara
af stað í október. Munum að einkunnarorð Seltjarnarneskirkju eru:
,,Seltjarnarneskirkja okkar annað heimili.“