Nesfréttir - 01.08.2020, Síða 15
Nesfrétt ir 15
Þú getur keypt
næstum hvað
sem er fyrir
Aukakrónur
Viðskiptavinir Landsbankans safna
Aukakrónum þegar þeir versla hjá
meira en 250 samstarfsaðilum um
allt land og geta notað þær til að
kaupa næstum hvað sem er.
Fjölbreytt dansár
framundan
Dansskólinn Óskandi á
Eiðis torgi, Seltjarnarnesi,
verður með skemmtilega og
fjölbreytta dagskrá í haust
fyrir allan aldur; fornám
í klassískum ballett frá 3
ára, grunnnám í listdansi,
skapandi dans, jóga, sirkus,
nútíma listdans fyrir börn og
fullorðna, fullorðinsballett, dansnámskeið
fyrir 55+ og dansnámskeið fyrir eldri borgara.
Óskandi er að byrja annað ár sitt en margir
þekkja vel húsnæðið undir Hagkaupum á
Eiðistorgi þar sem Ballettskóli Guðbjargar
Björgvins var til fjölda ára. „Við erum mjög
spennt fyrir komandi hausti og hlökkum
mikið til að byrja aftur að dansa saman. Það
er fátt sem jafnast á við það að fylgjast með
nemendum sínum þroskast og vaxa, bæði þeim
ungu og eldri.“ segir Guðrún skólastjóri.
Hlutverk skólans er að bjóða upp á jákvætt, faglegt og uppbyggilegt
skólaumhverfi, með viðeigandi og gagnlegri námskrá miðað við aldur og
þroska. Sérstaða skólans er að skólinn býður upp á fjölbreyttar námsleiðir
sem höfða til breiðs aldurshóps, frá unga aldri til efri ára. Nemendur læra
best þegar þeir eru í umhverfi sem þeim líður vel í, fá verkefni við hæfi og
upplifa árangur.
Sameiginleg
sumarnámskeið
Á vordögum var ákveðið að samtvinna sumarnámskeið Seltjarnar
nesbæjar og Gróttu í sumar og gekk samstarfið vonum framar.
Þátttakendur á námskeiðunum sækja gjarnan blöndu af námskeiðum
Gróttu og Seltjarnarnesbæjar, með sameiginlegri verkefnastjórn styttust því
boðleiðir og upplýsingaflæði jókst til muna. Verkefnastjórn námskeiðanna
í sumar var í höndum Jónu Ránar Pétursdóttur, sem er einnig nýr
forstöðumaður Selsins, og Laufeyjar Helenu Gísladóttur, sem er einnig nýr
verkefnastjóri handknattleiksdeildar Gróttu.
Smíðavöllurinn er alltaf vinsæll á sumarnámskeiðunum.