Breiðholtsblaðið - 01.01.2020, Qupperneq 15
15BreiðholtsblaðiðJANÚAR 2020
Erna Sóley Gunnarsdóttir ÍR setti nýtt Íslandsmet í kúluvarpi
innanhúss 18. janúar sl. þegar hún kastaði 16,19 metra á móti
í Houston, Texas þar sem Erna keppir fyrir Rice University.
Fyrra metið, 15,96 m, er síðan 2017 en það átti Ásdís Hjálms
dóttir Ármanni.
Lengsta kast Ernu Sóleyjar utanhúss er 16,13 metrar og var
hún því að kasta sitt lengsta kast frá upphafi. Utanhúss á Erna
þriðja besta árangur íslenskrar konu frá upphafi en síðasta
sumar vann hún það afrek að hafna í þriðja sæti á EMU20. Erna
er aðeins 19 ára gömul en er þrátt fyrir ungan aldur að stimpla
sig inn sem einn besti kúluvarpari Íslands.
Erna Sóley með Íslandsmet
Sími: 588 9705
www.skautaholl.is
Opnunartímar:
Mánud., Þriðjud. og Miðvikud.
12:00 til 15:00.
Fimmtudaga
12:00 til 15:00 og 17:00 til 19:30.
Föstudaga
13:00 til 19:00.
Laugardaga og Sunnudaga
13:00 til 18:00.
Skólar og sérhópar: Mánudag til föstudags
10:00 til 15:00.
GETRAUNANÚMER
ÍR ER 109
Fréttir
Íflróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Tölvu póst ur: ir@ir.is
Heimasíða: ir.is
Gamlárshlaup ÍR er eitt af
f jölmennustu almennings
hlaupum sem fara fram hér á
landi. Hlaupið dregur að sér
unga sem aldna. Fjöldi erlendra
ferðamanna var á meðal
þátttakenda og fer hækkandi ár
frá ári. Hafa þátttakendur frá 35
þjóðlöndum tekið þátt í hlaupinu
Auk 10 kílómetra hlaups
er einnig boðið upp á þriggja
kílómetra skemmtihlaup til að
sem flestir getið tekið þátt, jafnt
byrjendur sem börn. Því er
tilvalið fyrir fjölskyldur að taka
sig saman á þessum síðasta
degi ársins og taka þátt. Það er
skemmtileg upplifun fyrir börn
að gera sér glaðan dag með
foreldrum íklædd grímubúningum
í miðborg Reykjavíkur.
Frjálsíþróttadeild ÍR hefur
veg og vanda af hlaupinu og
ríkir jafnan mikil eftirvænting
fyr i r und i rbún ingnum og
hlaupdeginum sjálfum. Gamlárs
hlaupið á sér langa sögu sem einn
stærsti og elsti hlaupaviðburður
landsins en hlaupið hefur verið
haldið sleitulaust í 44 ár hvernig
sem hefur viðrað.
Gamlárshlaup ÍR
Glæsilegar konur í litríkum búningum á Sæbrautinni þar sem hlaupið var.
- haldið
sleitulaust
í 44 ár
ÁfRAM ÍR
ALLTAF FULLT BORÐ
AF FERSKUM FISKI
OG FISKRÉTTUM
Opið alla virka daga kl. 9 – 18:30.
Mjög góður árangur náðist í
mörgum greinum á Stórmóti ÍR
sem haldið var í 24. sinn 18. til
19. janúar. Mikið var um bæting
ar á besta árangri keppenda þó
svo að keppnistímabilið sé rétt
að hefjast en alls litu 468 bætin
gar dagsins ljós.
FH vann til flestra verðlauna á
mótinu, eða 62 talsins, Ármann
var í öðru sæti með 46 verðlaun
og ÍR í því þriðja með 42. Þátt
taka Færeyinga setur alltaf
skemmtilegan svip á mótið en
þátttaka á mótinu var almennt
góð en 600 keppendur tóku þátt
og 32 félög og héraðssambönd
sendu keppendur til leiks. Þessi
fjöldi endurspeglar áhugann á
Stórmótinu en mótið er frábær
undirbúningur fyrir innan
hússmótin sem nú fara að detta
inn hvert á fætur öðru.
Eitt mótsmet féll á fyrri degi og
var það í hástökki 13 ára stúlkna
en þar stökk Ísold Sævarsdóttir
FH 1.53m
Guðbjörg Jóna hljóp á
frábærum tíma
Hæst ber þó líklega árangur
Guðbjargar Jónu Bjarnadóttur í
200m en hún hljóp á frábærum
tíma, 24.05 sek, var sekúndu á
undan næstu konu og jafnaði sinn
besta árangur innanhúss. Glæsi
leg byrjun hjá Guðbjörgu Jónu.
Annað frábært afrek vann
Kristján Viggó Sigfinnsson úr
Ármanni þegar hann bætti 23
ára gamalt piltamet 1617 ára í
hástökki þegar hann stökk yfir
2,13 metra. Fyrra metið var 2,12
metrar og setti Einar Karl Hjar
tarson það árið 1997. Utanhúss
er piltametið einnig 2,13 metrar
en það eiga Einar Karl og Kristján
Viggó saman.
Stórmótið fór mjög vel fram
og þakkar ÍR öllum keppendum,
þjálfurum, starfsmönnum og
gestum mótsins fyrir helgina en
rúmlega 100 sjálfboðaliðar stóðu
vaktina alla helgina og sáu til þess
að mótið færi vel fram.
Frá Stórmóti ÍR.
Góður árangur á stórmóti ÍR
Gleðin var við völd hjá yngstu þátttakendunum.