Morgunblaðið - 02.06.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn
í dag, 2. júní kl. 16:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá fundarins
• Venjuleg ársfundarstörf, dagskrárliðir skv. grein 6.6
í samþykktum sjóðsins.
• Kynning tryggingastærðfræðings, tryggingafræðileg staða
LV og áhrif hækkandi lífaldurs.
• Önnur mál.
Sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 30. apríl 2020
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Ársfundur 2020
Lífeyrissjóður
verzlunarmanna
—
live.is
Helga Guðmundsdóttir frá Bol-
ungarvík varð 103 ára 17. maí,
skömmu eftir að hún jafnaði sig á
COVID-19, elst Íslendinga sem
hafa fengið sjúkdóminn. Á meðan
ástandið var enn viðkvæmt á
hjúkrunarheimilinu Bergi, þar sem
hún býr, og á landinu almennt,
þótti ekki henta að fagna afmæl-
inu með miklu pompi og prakt og
blómvöndur frá forsætisráðherra
var látinn duga. Þetta stendur til
bóta: Helga ætlar að bregða sér af
bæ um næstu helgi, sem sé hjúkr-
unarheimilinu, og skreppa á gamla
heimili sitt á Hlíðarvegi í Bol-
ungarvík, þar sem hún býður fjöl-
skyldunni að fagna með sér 103
ára afmælinu.
Að sögn Agnesar Veroniku
Hauksdóttur, barnabarns Helgu
sem einnig hjúkraði henni sem
sjúkraliði í faraldrinum, er Helga
orðin eldhress eftir veikindin og
spennt fyrir afmælisveislunni. Hún
er alveg með á nótunum, heklar
og er spennt að geta hitt vinkonu
sína á hjúkrunarheimilinu þegar
einangrunarráðstöfunum er smátt
og smátt aflétt.
Ætlar á heimili sitt Helga Guðmundsdóttir og Agnes Veronika spjalla saman.
Fagnar 103 árunum
heima á Hlíðarvegi
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Börn sem hafa nú þegar hafið með-
ferð vegna skarðs í vör eða klofins
góms og fengið meðferð sína niður-
greidda af Sjúkratryggingum Ís-
lands (SÍ) sjá nú fram á að fá ekki
meðferð sína niðurgreidda fyrr en
tannlæknadeild Háskóla Íslands hef-
ur tök á að meta að meðferðin sé
nauðsynleg og tímabær. Er þetta
vegna nýrrar reglugerðarbreytingar
heilbrigðisráðherra.
Móðir ellefu ára drengs sem hefur
verið í meðferð vegna skarðs í vör
síðan 2015 segir illmögulegt að kom-
ast í slíkt mat, þrátt fyrir að breyt-
ingin hafi tekið gildi 1. janúar síðast-
liðinn, enda virðast þau sem það eiga
að framkvæma ekki hafa fengið næg-
ar upplýsingar frá SÍ. Á meðan þurfa
foreldrar að greiða læknis- og ferða-
kostnað úr eigin vasa, en fjölskyldan
er búsett á Ísafirði.
Með reglugerðarbreytingunni
voru börn sem fæðast með skarð í
mjúkum góm tekin inn í greiðslu-
kerfi SÍ. Áður höfðu SÍ einungis tek-
ið þátt í greiðslu meðferðar barna
með skarð í hörðum góm.
Móðirin, Sif Huld Albertsdóttir,
segir reglugerðarbreytinguna í
sjálfu sér góða hvað það varðar en
vegna breytingarinnar þarf að gera
hlé á meðferð þeirra barna sem nú
þegar eru komin inn í kerfi Sjúkra-
trygginga Íslands og bíða eftir sér-
stöku mati frá tannlæknadeild Há-
skóla Íslands. Sif Huld hefur sent
heilbrigðisráðherra bréf og beðið um
rökstuðning fyrir þessu.
„Þetta veldur því að meðferðin
frestast hjá þeim börnum sem eru
byrjuð í meðferð. Þetta eru ekki lífs-
nauðsynlegar meðferðir en þær
þurfa þó að eiga sér stað á meðan
börnin eru að stækka,“ segir Sif
Huld, en ef meðferðir eru ekki fram-
kvæmdar snemma getur það orðið til
þess að börn þurfi að fara í stærri að-
gerðir síðar á lífsleiðinni.
„Það sem mér finnst þurfa að
breyta er að börn sem nú þegar hafa
hafið meðferð geti haldið meðferð
sinni áfram. Ég tel að reglugerðin
ætti að einblína á þau börn sem eru
að bíða eftir að fá staðfestingu á því
hvort þau fái meðferð og ný börn
sem eru að koma inn í meðferð, þar
að leiðandi myndast minni bið, þar
sem þessi börn [sem eru nú þegar í
meðferð] hafa fengið samþykki
sjúkratrygginga áður en reglugerð-
arbreytingin átti sér stað.“
150.000 í stað 50.000
Sonur Sifjar Huldar, Hermann Al-
exander Hákonarson, á tíma hjá
kjálkaskurðlækni næstkomandi mið-
vikudag og þar verður ákveðið hvort
hann þurfi að fara í aðgerð á fimmtu-
dag. Hann hefur ekki komist að í
mati hjá tannlæknadeildinni, þrátt
fyrir beiðnir Sifjar Huldar, og því er
óljóst hvort tíminn, aðgerðin og
ferðakostnaður verði niðurgreiddur.
Þar sem fjölskyldan býr á Ísafirði
er staðan enn snúnari fyrir hana en
þær í Reykjavík.
„Það sem er að gera okkur erfiðast
fyrir er þessi ferðakostnaður sem við
fáum ekki niðurgreiddan heldur. Í
staðinn fyrir að það kosti okkur
50.000 að fara til tannlæknis mun það
kosta 150.000,“ segir Sif Huld.
Hún telur að skýra þurfi verklag
frekar í reglugerðinni og að meira
þurfi að gera fyrir börn sem búi á
landsbyggðinni og þurfa að sækja
sér læknisaðstoð í Reykjavík.
„Það krefst mikils skipulags bæði
fjárhagslega og fjölskyldulega séð að
fylgja börnunum sínum til læknis í
Reykjavík, þar sem við þurfum að
borga ferðakostnaðinn úr eigin vasa
áður en við fáum hann endur-
greiddan. Við missum alltaf heilan
dag úr vinnu ásamt því að þurfa að
greiða fyrir dvalarkostnað sjálf, þar
sem ekki eiga allir heimangengt í
gistingu hjá vinum og ættingjum, en
við erum þó svo heppin að baklandið
hans Hermanns er stórt.“
Ný reglugerð hindrun
fyrir börn með skarð
Eru þegar í meðferð en þurfa nýtt mat til að halda áfram
Ljósmynd/Aðsend
Mæðginin Sif segir að ein hindrun fyrir börn með skarð í vör og/eða gómi
hafi verið fjarlægð með reglugerðinni en önnur svo komið í staðinn.
Kári Emil Helgason, hönnuður hjá
Audible í New York, hefur lítið farið
út úr húsi síðustu 90 daga eða svo.
Hann býr í East Village á Manhattan
í New York, þar sem harðvítug átök
hafa geisað síðustu nætur vegna
mótmæla stórs hóps, þar sem krafist
er jafnréttis fyrir svarta Bandaríkja-
menn. Mótmælin eru að mestu frið-
samleg en færðust í vöxt á næturnar
í síðustu viku, þegar farið var að
kveikja í lögreglubílum og fremja
ýmis önnur skemmdarverk. Í gær-
kvöld var tilkynnt um útgöngubann í
borginni vegna ástandsins, en New
York er nýkomin undan útgöngu-
banni vegna kórónuveirunnar.
Kári átti erindi í neðanjarðarlest-
ina á fimmtudaginn og föstudaginn,
þar sem var mjög fámennt vegna
faraldursins. „Það er mjög skrýtið að
labba á götunni og ég hef það til
dæmis á tilfinningunni að heimilis-
laust fólk hafi það mun verra þessa
dagana en áður og það er einnig
meira áberandi. Þeir sem voru í
slæmri stöðu áður eiga nú enn erf-
iðara með að redda sér til dæmis
fæðu,“ segir Kári. Ástandið, sem var
slæmt fyrir kórónuveirufaraldurinn,
sé í mörgu tillit orðið enn verra núna.
Eins og Kári
bendir á eru um-
bætur í banda-
rísku lögreglunni,
sem eru ein sú
krafa sem mest
ber á meðal mót-
mælenda, mjög
flókið úrlausnar-
efni. „Ef þú ert
með marga ras-
ista í röðum lög-
reglunnar en veist ekki hverjir þeir
eru og hvað þeir gera í frítíma sínum
er flókið að útfæra hvernig er hægt
að bola þeim aðilum út. Sumir segja
að það sé bara ekki hægt og margir í
Black Lives Matter-hreyfingunni
tala fyrir eins konar samfélagsör-
yggisþjónustu, sem væri þá stýrt
beint af borgurum og öryggi þeirra
væri þá þannig tryggt. Aðrir tala
fyrir því að það þurfi einfaldlega að
minnka fjármagnið sem rennur til
lögreglu og endurskipuleggja hana
með því að brjóta hana upp í mis-
munandi einingar. Flestir mótmæl-
endur styðja í það minnsta einhvers
konar endurskoðun á því hvernig
staðið er að lögreglumálum hérna,“
segir Kári. snorrim@mbl.is
AFP
Undir mótmælunum Langvarandi óhefðbundið ástand ríkir í New York.
Lítið farið út úr
húsi í 90 daga
Fyrst kórónuveira, nú mótmæli
Kári Emil
Helgason