Morgunblaðið - 02.06.2020, Side 13

Morgunblaðið - 02.06.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020 Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVARSEMÞÚERT SAMSTARFSAÐILI Öryggiskerfi 15:04 100% Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ekkert lát virðist vera á reiði meðal Bandaríkjamanna vegna morðsins á George Floyd, en rúm vika er nú lið- in frá því að hann lést í samskiptum sínum við lögregluna í Minneapolis. Voru fjölmenn mótmæli víða um Bandaríkin alla helgina og eru að minnsta kosti þrír látnir eftir þau. Lenti mótmælendum og lögregl- unni ítrekað saman, og beitti óeirða- lögregla sums staðar táragasi, pip- arúða og gúmmíkúlum til þess að dreifa þeim mannfjölda sem kominn var saman. Þá hefur þjóðvarðlið ver- ið kallað út í fimmtán ríkjum og út- göngubann sett á í um fjörutíu borg- um, þar af öllum helstu stórborgum Bandaríkjanna nema New York. Muriel Bowser, borgarstjóri Washington, hefur fyrirskipað út- göngubann í borginni milli kl. 23 og 6 á morgnana, en mótmælt var alla helgina í návígi við Hvíta húsið, emb- ættisbústað Bandaríkjaforseta. Svo rammt kvað að mótmælunum á föstudaginn að lífverðir forsetans ákváðu að færa Donald Trump Bandaríkjaforseta niður í byrgi Hvíta hússins um dágóða stund. Mótmælin í Washington-borg hafa einkum verið í Lafayette-lystigarð- inum í nágrenni Hvíta hússins, og ákvað lögreglan að dreifa mannfjöld- anum þar með táragasi á sunnudags- kvöldið, eftir að sumir mótmælenda höfðu kveikt varðelda og valdið skemmdarverkum. Trump hefur verið iðinn við að tjá sig um mótmælin á samfélagsmiðl- inum Twitter, þar sem hann hefur hvatt lögreglu og þjóðvarðlið til þess að taka hart á þeim mótmælendum sem fari yfir strikið. Þá hefur Trump lýst því yfir að hann hyggist útnefna samtökin Antifa, sem hafa látið mik- ið til sín taka í óeirðum í nafni bar- áttu gegn fasisma, sem innlend hryðjuverkasamtök. Færður í annað fangelsi Mótmælin voru einna mest í „tví- buraborgunum“, Minneapolis og St. Paul, þar sem Floyd var myrtur. Tom Walz, ríkisstjóri Minnesota, hefur kallað út allt þjóðvarðlið rík- isins, og er það í fyrsta sinn í sögu Minnesota sem gripið er til þess ráðs. Bílstjóri olíuflutningabifreiðar var handtekinn í Minneapolis á sunnu- daginn. Svo virtist sem hann hygðist keyra bifreiðina inn í hóp mótmæl- enda en ekki var útilokað að um mis- gáning hefði verið að ræða. Ekki urðu slys á fólki, en mótmælendur rifu bílstjórann úr sæti sínu og lömdu til hans. Áverkar hans voru ekki sagðir alvarlegir. Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem myrti Floyd með því að halda hné sínu á hálsi hans í níu mínútur, var dreginn fyrir dómara í gær, en hann hefur verið ákærður fyrir þriðja stigs morð. Staðarblöð í Minneapolis-St. Paul greindu frá því um helgina að kvart- að hefði verið sautján sinnum áður undan framferði Chauvins sem lög- reglumanns, en einungis tvær þeirra kvartana leitt til áminningar. Eigin- kona Chauvins hefur sótt um skilnað vegna málsins, og sendi hún samúðarkveðjur sínar til fjölskyldu Floyd í sérstakri yfirlýsingu. Chauvin er nú í varðhaldi, en ákveðið var að færa hann úr fangelsi borgarinnar þar sem óttast var um öryggi hans. Þrír félagar hans, sem stóðu hjá meðan Floyd lést, hafa ver- ið reknir úr lögreglunni en eru ekki ákærðir að svo komnu máli. Dóttirin handtekin Í New York-borg voru einnig hörð mótmæli og voru 790 manns hand- teknir af lögreglunni fyrir þátt sinn í þeim. Þar á meðal var Chiara de Blasio, en hún er dóttir Bill de Blas- io, borgarstjóra New York. Skrif- stofa borgarstjórans vildi ekki tjá sig um handtökuna, en Chiöru var sleppt samdægurs. Kallað hefur verið eftir afsögn de Blasios eftir að hann varði framgang lögreglunnar í New York-borg, en myndbandi var dreift á netinu um helgina þar sem lögreglubíll sást keyra í gegnum hóp mótmælenda. De Blasio hefur kallað eftir rann- sókn á atvikinu, sem og öðrum ásök- unum um lögregluofbeldi, en jafn- framt gagnrýnt óeirðaseggi sem hafa nýtt sér mótmælin til þess að stunda rán og gripdeildir. Mótmælin dreifast víðar Reiðialdan vegna Floyd hefur einnig náð til ríkja utan Bandaríkj- anna, en haldnar voru mótmæla- göngur um helgina í nokkrum borg- um, meðal annars í Lundúnum og í Kaupmannahöfn. Þá var einnig mótmælt í borgun- um Auckland, Christchurch og Well- ington á Nýja-Sjálandi og í Montreal í Kanada, en mótmælin þar leystust upp í óeirðir um kvöldið. Þá beitti lögreglan í Rio de Janeiro táragasi til að dreifa mótmælendum í fá- tækrahverfum borgarinnar. Táragasi beitt við Hvíta húsið AFP Óeirðir Miklar róstur voru í höfuðborginni Washington á sunnudag og leysti lögregla mótmælin upp með táragasi.  Mótmælendum og lögreglu lenti saman alla helgina  Útgöngubann sett á í um fjörutíu borgum  Mótmæli einnig utan Bandaríkjanna, m.a. í Lundúnum, Kaupmannahöfn og á Nýja-Sjálandi AFP New York Fjöldi manns þusti út á götur New York-borgar til þess að mót- mæla og voru um 790 manns handteknir fyrir að koma saman ólöglega. Bandarísku geimfararnir Bob Behnken og Doug Hurley komust heilu og höldnu um borð í alþjóð- legu geimstöðina á sunnudags- kvöldið, en þeim var skotið á loft á laugardagskvöldið um klukkan sjö að íslenskum tíma. Geimferð þeirra hefur vakið mikla athygli, en þetta var fyrsta mannaða geimfarið sem Banda- ríkjamenn senda á sporbaug um jörðu í níu ár. Þá var þetta í fyrsta sinn sem eldflaug einkafyrirtækis tók þátt í slíkri geimferð, en SpaceX, fyrirtæki Elons Musk, á allan veg og vanda að geimferjunni Crew Dragon, sem flutti þá Behnken og Hurley út í geim. Musk gat ekki leynt tilfinningum sínum á laugardaginn, en hann sagði að átján ára þrotlaus vinna lægi að baki eldflaugaskoti laugardagsins. Tekið var á móti þeim Behnken og Hurley með virktum um borð í geimstöðinni, en þar eru fyrir Bandaríkjamaðurinn Chris Cassidy og Rússarnir Anatolí Ívanishín og Ívan Vagner. Ferðalagið tók nítján klukku- stundir, en eldflaugin ferðaðist á hraða sem nam allt að 28.000 km/ klst. AFP Af stað Geimskotið á laugardaginn þótti heppnast með afbrigðum vel. Komnir heilu og höldnu um borð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.