Morgunblaðið - 02.06.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.06.2020, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020 Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÓSAR VIGFÚS EGGERTSSON tannlæknir, lést þriðjudaginn 26. maí. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 4. júní klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið. Magdalena M. Sigurðardóttir Sigurður Eggert Rósarsson Dóróthea Magnúsdóttir Gunnar Oddur Rósarsson Ásdís Helgadóttir Hulda Björg Rósarsdóttir Þórólfur Jónsson Ragnheiður Erla Rósarsd. Gústaf Vífilsson Gunnlaugur Jón Rósarsson Guðrún Þóra Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARTA BÁRA BJARNADÓTTIR Egilsbraut 21, Þorlákshöfn, lést mánudaginn 25. maí á Landspítalanum. Jarðarför hennar verður laugardaginn 6. júní klukkan 14 í Þorlákskirkju. Fjöskyldan þakkar hlýhug og vinsemd allra. Þórunn Jensdóttir Bjarni Már Jensson Elva Hannesdóttir Birna G. Jensdóttir Hafdís Jensdóttir Haraldur R. Ólafsson Guðmundur Karl Jensson Ásta K. Jensdóttir Jenný B. Jensdóttir Anna K. Jensdóttir Hermann S. Jónsson Rafnar Jensson Silja Jensdóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangaömmubarn KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR fyrrverandi kennari í Borgarnesi, er látin. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið eða aðrar líknarstofnanir. Aðstandendur vilja þakka starfsmönnum Grundar kærleiksríka umönnun. Guðmundur Julia Halldór Sesselja Gísli Kolbrún Ása Hans Sóley Einar barnabörn og barnabarnabörn Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 ✝ Einar Andrés-son fæddist í Reykjavík 18. apríl 1953. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 15. maí 2020. Foreldrar hans voru hjónin Andrés Ingibergsson rak- ari og sjúkraliði, f. 26.1. 1924, d. 30.6. 2000, og Guðrún Guðnadóttir verkakona og hús- móðir frá Eyjum í Kjós, f. 31.5. 1917, d. 4.12. 1987. Bræður Einars eru Sigurður Ingi Andrésson, f. 1945, kona hans er Soffía Sigurðardóttir, og Gunnar Guðni Andrésson, f. 1947, maki Guðbjörg Aðal- 2001. Börn Höllu og stjúpbörn Einars eru Fannar Þór, f. 1987, og Íris Ösp, f. 1990. Einar varð ungur virkur í fé- lagsstörfum, fyrst í skóla- félögum og æskulýðsstarfi og síðan í hreyfingu ungs og rót- tæks vinstrifólks og virkur í starfi þeirra um árabil. Einar starfaði sem fanga- vörður í 40 ár og var formaður Fangavarðafélags Íslands í nokkur ár og sat lengi í stjórn þess félags og samninganefnd og einnig í stjórn Starfsmanna- félags ríkisstofnana og gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélögin. Hann beitti sér fyrir umbót- um í meðferð fanga og menntun þeirra. Útförin fer fram frá Grafar- vogskirkju í dag, 2. júní 2020, klukkan 15. Slóðina má nálgast á www.mbl.is/andlat Stytt slóð á streymi: Meira: tinyurl.com/yahseuk9 heiður Stefáns- dóttir. Einar kynntist Hólmfríði Gröndal árið 1982 og þau giftu sig 1986, en þau slitu síðar sam- vistum. Sonur þeirra er Ingi- bergur, f. 14.4. 1989. Sonur Ingi- bergs og Hrefnu Hilmarsdóttur er Einar Þór, f. 14.12. 2015. Einar var einnig uppeldis- faðir dóttur Hólmfríðar, Kol- brúnar Maríu Einarsdóttur, f. 3.12. 1980, d. 11.7. 1998. Síðari sambýliskona Einars frá 1987 til 2003 er Halla Hallsdóttir. Dóttir þeirra er Hróðný Rún, f. 18.1. Elsku pabbi minn, þú hefur verið kletturinn minn síðan ég man eftir mér. Orð geta ekki lýst því hvað það er tómlegt án þín, og hvað það er skrítið að geta ekki talað við þig í símann á hverjum degi. Þú varst hjartahlýjasti, blíðlyndasti og tryggasti maður sem ég hef nokkurn tímann kynnst. Og ég er svo ótrúlega heppin og stolt að kalla þig pabba minn. Ein af fyrstu minningun- um mínum af þér þegar ég var lítil var þegar við bjuggum í Kópavoginum í húsinu með gras- blettinum á þakinu. Ég var veik og þú gerðir allt mögulegt til að reyna að láta mér líða betur. Þó svo að þetta væri bara smávegis hiti og hósti. Þú gerðir samt sem áður allt í þínu valdi til þess að mér liði sem best og gerðir það alltaf. Ég er svo ævinlega þakk- lát fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og allar þær minningar sem ég hef með þér. Ég væri ekki manneskjan sem ég er í dag án þín og mömmu. Ég sakna þín á hverjum einasta degi og elska þig meira en allt, elsku pabbi minn. Hvíldu í friði kletturinn minn, þín litla stelpa Hróðný Rún. Einar Andrésson fæddist 1953 og var því 67 ára þegar hann lést. Einar hafði í um 40 ár starfað sem fangavörður við fangelsi rík- isins. Einar var öflugur liðsmað- ur fangelsiskerfisins, gegndi stjórnunarstöðum um langt skeið á vinnustöðvum Fangelsismála- stofnunar. Þá var hann formaður Fangavarðafélagsins um margra ára skeið og tók þátt í kjarabar- áttu félagsins allt fram á síðasta dag. Einar var maður mikilla mannkosta sem skinu í gegn við öll hans störf. Hann var harður í horn að taka í stéttarfélagsmál- um og beitti sér af hörku fyrir sína félagsmenn og oft þannig að fundir okkar voru eftirminnilegir vegna hreinskiptinna samskipta. Einar var þó alltaf sanngjarn, heiðarlegur og dagfarsprúður auk þess að vera mikill mannvin- ur. Þessir eiginleikar hans komu einnig berlega í ljós í samskipt- um hans við skjólstæðinga Fang- elsismálastofnunar. Alltaf kom hann fram við þá af virðingu, sýndi þeim raunverulega sam- kennd og lagði áherslu á að hver og einn gæti náð bata og fetað beinu brautina að afplánun lok- inni. Lagði hann töluvert á sig til að aðstoða hvern og einn fanga með þetta göfuga markmið að leiðarljósi. Einar tók virkan þátt í að benda á slæmar aðstæður fanga í fangelsum landsins síðustu ára- tugi og gegndi mikilvægu hlut- verki við endurreisn fangelsis- kerfisins með lokun tveggja fangelsa sem hann hafði starfað í, Kvennafangelsinu og Hegningar- húsinu. Rödd hans sem öflugs fulltrúa stéttarfélags fangavarða skipti máli og hafði áhrif á að Al- þingi ákvað að byggja nýtt fang- elsi að Hólmsheiði. Síðustu árin starfaði Einar við nýja fangelsið á Hólmsheiði og var þar sem ann- ars staðar vel liðinn af samstarfs- mönnum og föngum. Fyrir hönd vina og samstarfs- félaga í Fangelsismálastofnun votta ég fjölskyldu og öðrum ást- vinum Einars innilega samúð á erfiðum tímum. Einars verður sárt saknað í fangelsiskerfinu og minnst sem vandaðs fagmanns, góðs félaga og umfram allt mikils mannvinar. Blessuð sé minning Einars Andréssonar. Fyrir hönd Fangelsismála- stofnunar, Páll Winkel. Guðrún í Eyjum í Kjós og Ög- mundur í Hólabrekku á Gríms- staðaholti í Reykjavík voru systkin, börn hjónanna á Hurðar- baki í Kjós, þeirra Guðrúnar Ög- mundsdóttur frá Hlemmiskeiði á Skeiðum og Hans Stefánssonar Stephensen frá Reynivöllum í Kjós. Guðrún var amma Einars og Ögmundur var afi minn. Þannig að við Einar Andrésson vorum þremenningar að skyld- leika, báðir mjög meðvitaðir um að svo væri. Ávörpuðum við hvor annan oftar en ekki sem frænda og þótti okkur vænt um það. En við vorum líka vinir og einnig félagar í verkalýðsbaráttu og pólitík nánast öll okkar full- orðinsár. Einar var í forystu fyrir fangaverði, lengi formaður Fangavarðafélags Íslands. Mér er sagt að föngum hafi verið hlýtt til fangavarðarins Einars Andr- éssonar. Það kemur mér ekki á óvart. Á vettvangi BSRB lét Einar að sér kveða. Þar áttum við sam- leið og samstarf um áratuga skeið og var alltaf gott að leita til hans. Í pólitíkinni gátu menn gengið að því sem vísu að í öllum málum tæki Einar afstöðu út frá fé- lagshyggju og sósíalisma. Hann vildi jöfnuð í samfélaginu og beitti sér mjög í þágu þeirra sem hann taldi að samfélagið þyrfti að rétta hjálparhönd. Marga fundi sat ég með Einari þar sem hann talaði máli slíkra einstaklinga auk þess sem hann var óþreyt- andi að berjast fyrir réttlátu þjóðfélagi almennt. Mér er minnisstætt af hve mikilli væntumþykju Einar talaði um börnin sín öll. Missir þeirra er mikill við fráfall hans, slíkur bakhjarl trúi ég að hann hafi ver- ið þeim. En missir okkar allra, vina hans og samstarfsmanna, er einnig mikill því Einar Andrés- son hafði mannbætandi áhrif á allt umhverfi sitt. Hann lagði gott til mála, var málefnalegur, já- kvæður og vinsamlegur, einnig gagnvart þeim sem hann átti ekki samleið með í skoðunum. Við sem fengum að kynnast því hve traustur Einar var vinum sínum, munum ávallt minnast hans af hlýhug. Megi sú vænt- umþykja sem hann naut umvefja fjölskyldu hans alla. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég börnum Einars og fjöl- skyldu hans allri. Megi minning hans lifa og ylja ykkur um ókomna daga. Ögmundur Jónasson. Einar Andrésson mágur minn fæddist inn í samheldna fjöl- skyldu og bjó með foreldrum sín- um og bræðrum í sama húsi og amma hans og afi. Þegar Ingi- bergur afi Einars hætti á sjónum og varð húsvörður í Alþýðuhús- inu fékk hann loks tækifæri til að hafa lítinn dreng með sér og þess nutu þeir báðir. Eftir kvöldmat fór Einar upp til þeirra. „Amma, ég er svangur.“ „Fékkstu ekkert að borða, Einar minn?“ „Nei!“ Og þá eldaði amma hans handa honum grjónagraut með rúsínum. Þess vegna varð Einar svona stór. Þegar Einar var 10 ára flutti fjölskylda hans í blokk í Álfta- mýri þar sem mikill barnaskari gekk í Álftamýrarskóla. Þar eignaðist hann góða vini og hóf þátttöku sína í félagsstarfi og á heimili fjölskyldu hans varð mið- stöð félagahóps þeirra bræðr- anna. Fjölskylda og félagar voru þau rótarbönd sem Einar rækt- aði. Sú rót óx og óx með nánum vinum og átti líka anga sem leiddu út um allan heim, til allra þeirra sem þráðu réttlæti og frið. Einar var kominn af alþýðu- fólki sem bar virðingu fyrir sinni stétt, þeim sem með vinnu sinni sköpuðu þann auð og velferð sem til varð í þessu landi. Hann tók þátt í breiðu starfi baráttufúss ungs fólks sem barðist jöfnum höndum fyrir betra samfélagi á Íslandi og réttindum um heim allan og söng „alþýðan sigrandi um veröldina fer“. Einar var heilsteypt mann- eskja sem fylgdi sömu lífsgildum í öllu sínu lífi og starfi. Hann átti bæði hamingju- og sorgartíma í fjölskyldulífi sínu. Einar giftist Hólmfríði Gröndal, sem kom inn í líf hans með Kollu tveggja ára og þar með varð Einar pabbi í fyrsta sinn. Nokkrum árum síðar bætt- ist þeim við sonurinn Ingibergur, sem síðar bætti við litlum Einari Þór sem varð afa sínum mikill gleðigjafi og gagnkvæmt. Einar og Fríða slitu samvistum og Ein- ar stofnaði síðar til sambúðar við Höllu Hallsdóttur og enn stækk- aði þá stjúpbarnahópur hans með Fannari og Írisi og við bættist dóttirin Hróðný Rún, sem nú er 19 ára. Þótt hjónabönd rakni halda þau fjölskyldubönd sem þar urðu til og Einar ræktaði þau áfram. Hún Kolla sem kom inn í stór- fjölskylduna okkar féll strax inn í þéttan frændsystkinahóp. Erfið veikindi Kollu og fráfall hennar á unglingsárum urðu okkur öllum mikill harmur. Í tengslum við þá raun fór Einar að starfa með fé- laginu Geðhjálp og bæði veitti því af liðsstyrk sínum og naut lið- sinnis þess. Þegar Einar réðst sem fanga- vörður í sumarafleysingum í Hegningarhúsið á Skólavörðu- stíg hinn 1. júní 1980 varð ævi- starf hans ráðið. Einar gekk til þess starfs drifinn af sömu hug- sjónum og mótað höfðu hann áð- ur, var vinnufélögum sínum góður félagi og miðlaði skjól- stæðingum sínum af hlýju sinni, trausti og hvatningu. Var sam- starfsfólk hans að undirbúa að fagna með honum 40 ára starfs- afmæli þegar hann varð óvænt bráðkvaddur. Í dag fer útför Einars fram með viðhöfn í Grafarvogskirkju og síðan verður hann borinn til grafar í Fossvogskirkjugarði við hlið Sigríðar ömmu sinnar. Og í kvöld mun hún amma hans Ein- ars taka á móti honum og gefa honum grjónagraut með rúsín- um. Soffía Sigurðardóttir. Mig langar til að kveðja með nokkrum orðum Einar Andrés- son, samstarfsfélaga til margra ára, sem varð bráðkvaddur á heimili sínu 15. maí sl. Leiðir okkar Einars lágu fyrst saman fyrir meira en 40 árum í Hegn- ingarhúsinu Skólavörðustíg 9, þegar við störfuðum þar á vökt- um sem fangaverðir í sumaraf- leysingum. Síðar þróuðust mál þannig að við urðum báðir fast- ráðnir í fangelsiskerfinu, ég sem forstöðumaður fangelsa á höfuð- borgarsvæðinu og Einar sem að- stoðarvarðstjóri og síðar varð- stjóri. Einar starfaði við öll fangelsin á höfuðborgarsvæðinu, einnig á Litla-Hrauni um hríð, en lengst af var hann varðstjóri í Fangelsinu Kópavogsbraut 17. Þegar hann lést vann hann í Fangelsinu Hólmsheiði. Einar gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir fangaverði. Hann var um árabil formaður Fangavarðafélags Íslands, var í framvarðasveit kjarabaráttu fangavarða og var virkur á sviði samstarfs norrænna fangavarða- félaga. Við áttum gott samstarf á sviði menntunar fangavarða í Fangavarðaskólanum, en hann var áhugasamur um þau mál. Mér er sérstaklega minnisstætt varðandi Einar hve fúslega hann gaf sig að öllu sem að starfinu laut. Hann var nánast alltaf til- búinn að mæta á aukavakt ef með þurfti, var óþreytandi við að koma með ábendingar og að leggja sitt af mörkum í fé- lagsmálum og bar hag skjólstæð- inga sinna mjög fyrir brjósti. Þrátt fyrir að heilsan væri ekki alltaf í toppstandi kvartaði Einar ekki, hann bjó yfir miklu þolgæði og seiglu og fór sínu fram með hægð. Hann var góður félagi, dagfarsprúður og ljúfur í lund, lét ekki skapið hlaupa með sig í gönur en var fastur fyrir. Samstarfsmenn og skjólstæð- ingar sakna Einars Andréssonar, hann var drengur góður, blessuð sé minning hans. Aðstandendum sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur Gíslason. Við kveðjum í dag kæran fé- laga sem kvaddi allt of snemma. Einar Andrésson fangavörður var sterk stoð í starfi SFR stéttarfélags og síðar Sameykis. Hann sinnti ótal trúnaðar- hlutverkum fyrir félögin. Hann sat meðal annars í stjórn SFR, var formaður Fangavarðafélags Íslands og í mörg ár trúnaðar- maður og fulltrúi okkar á þingi BSRB, auk þess að vera fé- lagslegur endurskoðandi reikn- inga SFR og síðar Sameykis. Ferill Einars innan félagsins er langur, enda var hann traustur og úrræðagóður og góður liðs- maður í forystu þess í fjölda ára. Það var gott að leita til hans. Hann íhugaði málin í rólegheit- um og anaði ekki að neinu. Hann lá þó ekki á skoðunum sínum og var fastur fyrir þegar á þurfti að halda. Einari var afar umhugað um Fangavarðafélag Íslands og var vakinn og sofinn yfir stöðu fanga- varða og réttindum þeirra. Oftar en ekki sá ég hann koma þung- búinn inn ganginn í átt að skrif- stofunni minni þar sem hann settist niður og við ræddum sam- an um málefni fangavarða og fé- lagsins. Félagið hefur látið til sín taka á mörgum sviðum og er virkni þess ekki síst Einari að þakka. Einar starfaði eins og kunnugt er sem fangavörður stóran hluta ævi sinnar. Meðal starfsfélaga sinna eignaðist hann trausta vini. Ekki er langt síðan hann lét af því starfi en hann sinnti áfram fé- lagsstörfunum og var í trúnaðar- störfum fyrir félagið fram til þess síðasta. Við félagar hans hjá Sameyki höfðum hvatt hann til þess að halda áfram að láta til sín taka innan félagsins, enda þekktum við sterkan félagsanda hans. Það er sannarlega mikill missir að honum í starfi okkar. Við kveðj- um kæran félaga með trega og sendum hugheilar samúðar- kveðjur til fjölskyldu hans og vina. Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis stéttar- félags í almannaþjónustu. Einar Andrésson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.