Morgunblaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020 60 ára Halla ólst upp í Hafnarfirði en býr í Reykjavík. Hún er grunnskólakennari og kennir við Laugarnes- skóla. Maki: Sævar Magnús- son, f. 1959, skrifstofu- maður hjá Festi. Börn: Magnús Dagur Sævarsson, f. 1987, Ísak Óli Sævarsson, f. 1989, og Una Sóley Sævarsdóttir, f. 1995. Foreldrar: Rúnar Ólafur P. Stephensen, f. 1927, d. 2001, tannlæknir, og Soffía Kristbjörnsdóttir, f. 1927, d. 2015, hús- móðir. Þau voru búsett í Hafnarfirði. Halla Þuríður Stephensen Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er hætt við misskilningi í sam- skiptum þínum við yfirmenn í dag. Ekki ótt- ast neikvætt umtal, þú veist sannleikann. 20. apríl - 20. maí  Naut Reyndu að haga því þannig að þú fáir frí fljótlega. Þú ert í klípu vegna ummæla sem féllu fyrir löngu og hélst að væru gleymd og grafin. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur komið þér vel fyrir og ætlar að sitja sem fastast. Sumt er á síð- asta snúningi heima fyrir, vertu viðbúin/n að þurfa að endurnýja heimilistæki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Skelltu ekki skollaeyrum við aðvör- unum annarra þótt þér finnist þú sigla lygnan sjó. Hikaðu ekki við leita aðstoðar ef þér líður illa. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhver kemur þér á óvart svo þú þarft að grípa til nýrra ráðstafana. Leggðu spilin á borðið. Það er fyrir bestu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér hefur tekist vel upp við endur- skipulagningu starfs þíns. Sýndu ein- staklingi sem þú umgengst rauða spjaldið, viðkomandi skilur ekkert annað. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sjáðu til þess að þú fáir næga hreyf- ingu, því kyrrstaðan verkar illa á þig og þér er lífsnauðsyn að rífa þig áfram. Það er gott að láta sig dreyma. Skrifaðu draumana síðan niður. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sýndu fyrirhyggju og athug- aðu vel þinn gang. Ertu að umgangast vandað fólk? Mundu að vinir þínir hafa áhrif á hugsanir þínar og þannig á framtíð þína. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert gjafmildin uppmáluð. Þú ert ekki að ná stjórn á unglingnum þínum, andaðu djúpt og ræddu málin. 22. des. - 19. janúar Steingeit Reyndu að fara í langt frí á þessu ári. Þú hefur unnið of mikið síðustu ár. Þú hefur enn taugar til gamals kær- asta/kærustu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Metnaður þinn hefur verið vak- inn og væri ráð að nota daginn til þess að koma mikilvægum verkefnum af stað. Haltu áfram þar sem frá var horfið í námi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Leyndarmál verða hugsanlega af- hjúpuð í dag. Allt er á tjá og tundri heima en þú munt greiða úr því fljótlega. að fjalla um það sem ég vil, þetta hef- ur því verið skemmtilegt starf, enda finnst mér mjög leiðinlegt að gera leiðinlega hluti. Ég hef lært að þekkja þjóð mína í gegnum útvarp og tónlist.“ Þorgeir hlaut viðurkenn- inguna Lítill fugl á Degi íslenskrar tónlistar 2011. „Þótt áherslan í útvarpinu hafi frá 1992 verið á talað mál en ekki músík er tónlistin aldrei langt undan. Ég fæddist með tónlist í eyrunum og á eftir að deyja með tónlist í eyrunum. Ég er alltaf eitthvað að semja og svo finnst mér mjög gaman að fletta You- tube og spila á hljómborð með gömlu meisturunum eins og Presley, Bítl- unum og Bruce Springsteen. Ég hef líka alltaf gaman af landafræðinni og það er endalaust hægt að grúska í henni. Við hjónin eigum athvarf bæði hornið á Ríkisútvarpinu og síðar sjónvarpsþáttinn Skonrokk. „Rás 2 var mikill viðburður í menningarlíf- inu, einkanlega hjá yngra fólkinu sem beið eftir að heyra dægurtónlist. Ég fékk einvalalið með mér á Rás 2, og svo þurfti ég að kljást við pólitík á þessum tíma, en þess var krafist að Rás 2 næði til alls lands og ég fékk símtöl frá mörgum sveitarstjórunum. Þetta var skemmtilegur tími.“ Árið 1987 stofnaði Þorgeir útvarpsstöðina Stjörnuna en söðlaði síðan um 1992 og tók við stjórn morgunþáttar á Bylgjunni. Frá 2001 hefur Þorgeir verið með útvarpsþáttinn Reykjavík síðdegis. „Þetta er eins og hjá Sumargleð- inni, maður kynnist fólki úti um allt land í útvarpinu og eignast fjölmarga vini. Ég hef fengið frjálsar hendur við Þ orgeir Ástvaldsson er fæddur 2. júní 1950 í Reykjavík og ólst upp í Laugardalnum. „Tengsl- in voru mjög sterk við sveitina í Dölunum, en foreldrar mín- ir voru þaðan. Tónlistin var allt um kring, en faðir minn og Torfi bróðir hans og Friðjón móðurbróðir voru í sönghópnum Leikbræðrum.“ Sjálfur var Þorgeir í skólahljómsveitinni Tempó í Langholtsskóla, en sú hljóm- sveit hitaði upp fyrir The Kinks og Swinging Blue Jeans árið 1965 og var eitt vinsælasta bítlabandið á tímabili. „Það breytti gangi mála hjá mér. Ég hafði verið að baksa í íþróttum og spilaði til dæmis fótbolta með Fram en hafði engan tíma fyrir það lengur.“ Þorgeir varð stúdent frá MR 1971, fór í landafræði í HÍ og fór svo að vinna á Þróunarstofnun Reykjavíkur. „Þar vorum við að vinna að aðal- skipulagi Reykjavíkurborgar, en borgin var að tútna út á þessum tíma, og ég var þarna á þriðja ár.“ Þorgeir var minna áberandi í tónlistinni á 8. áratugnum en söng þó með Fóst- bræðrum á þessum tíma. Hann gekk síðan í Sumargleðina 1980 og söng meðal annars lagið Ég fer í fríið á plötu sveitarinnar frá 1981. „Þetta var einstaklega skemmtilegur tími og að fara út um allt land og kynnast mannlífinu þar. Þarna byrjaði ég að vinna með Ragga Bjarna, en ég átti mjög ánægjulega samleið með hon- um um árabil. Ég vann að fimm hljómplötum með honum, sá um og var þátttakandi í fjölmörgum tón- leikum með honum, m.a. í Hörpunni, og framleiddi heimildarmyndina Með hangandi hendi, um hann.“ Þorgeir var áberandi á fyrri hluta 9. áratugarins í tónlistinni, tók árið 1981 þátt í gerð hljómplötunnar Him- inn og jörð með Gunnari Þórðarsyni og söng m.a. lagið Fjólublátt ljós við barinn. Hann gaf síðan árið 1982 út sólóplötuna Á puttanum og tók þátt í gerð fleiri hljómplatna. Á þessum tíma var þó annar ferill að taka yfir. Hinn 1. desember 1983 fór Rás 2 í loftið, en Þorgeir var stofnandi og fyrsti forstöðumaður útvarps- stöðvarinnar. Hann hafði frá 1977 verið með útvarpsþáttinn Popp- á Breiðabólsstað í Dölum í bústað sem foreldrar mínir reistu og í Grímsnesi þar sem tengdaforeldrar mínir reistu bústað og við höfum haldið tryggð við þá.“ Fjölskylda Eiginkona Þorgeirs er Ásta Eyj- ólfsdóttir, f. 18.1. 1954, starfsmaður Landsbankans. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar Ástu: Hjónin Eyjólfur Högnason, f. 16.11. 1932, d. 2.5. 2017, skrifstofustjóri, og Krist- jana I. Heiðdal, f. 22.7. 1933, hús- freyja í Reykjavík. Börn Þorgeirs og Ástu eru 1) Kristjana Helga, f. 16.3. 1971, rekstrarstjóri, búsett í Garðabæ. Börn: Aron, f. 30.1. 1995, Selma Lind, f. 4.3. 1997, stjúpdóttir, Helena, f. 20.9. 2000. Mía, f. 28.11. 2004; 2) Eva Rún, f. 7.11. 1978, rithöfundur, búsett í Mosfellsbæ. Maki: Snæbjörn Sig- urðsson, f. 18.3. 1975. Börn: Rík- harður, f. 9.6. 1999, stjúpsonur, Sara, f. 27.3. 2007, Tinna, f. 27.10. 2009, og Sindri, f. 17.10. 2014; 3) Kolbeinn Þór, f. 19.9. 1983, smiður, búsettur í Reykjavík. Maki: Ziva Ivadóttir, f. 17.4. 1989; 4) Eygló Ásta, f. 23.10. 1989, leikari og leikstjóri, búsett í London. Maki: Ramon Ayres, f. 1.3. 1987. Systkini Þorgeirs eru Dóra Stein- unn, f. 25.11. 1947, tónmennta- kennari, búsett í Reykjavík; Magnús, f. 13.1. 1955, fiskeldisfræðingur, bú- Þorgeir Ástvaldsson, fjölmiðla- og hljómlistarmaður – 70 ára Fjölskyldan Þorgeir og Ásta ásamt börnum sínum. „Hef lært að þekkja þjóð mína“ Sumargleðin Þegar vinsældirnar stóðu sem hæst, árið 1980. Rás 2 Bogi Ágústsson, Þorgeir og Sigurður Ingólfsson tæknimaður að koma útvarpsstöðinni í loftið. 40 ára Friðsemd ólst upp á Hellu en býr í Reykjavík. Hún er hjúkrunar- fræðingur og starfar á hjarta- þræðingu Land- spítalans. Maki: Aðalsteinn Heimir Jóhannsson, f. 1973, vinnur á fyrirtækjasviði hjá TM. Foreldrar: Friðsemd Hafsteinsdóttir, f. 1952, matráður í Búrfellsvirkjun, og Jón Thorarensen, f. 1949, fyrrverandi skólabílstjóri og kjúklingabóndi. Þau eru búsett á Hellu. Friðsemd Thorarensen Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.