Morgunblaðið - 02.06.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 02.06.2020, Qupperneq 27
„Þessir gömlu karlar líta mjög vel út“ KR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Akureyringurinn Atli Sigurjónsson er spenntur og klár í slaginn þegar Íslandsmótið í fótbolta fer af stað á nýjan leik síðar í mánuðinum. Atli kom fyrst til KR frá Þór 2012 og varð Íslandsmeistari með liðinu ári síðar. Árin 2015 og 2016 lék hann með Breiðabliki en sneri aftur til KR árið 2017 og varð Íslandsmeistari með lið- inu í annað sinn síðasta sumar. Hann segir meistarana klára í slaginn og er Atli sjálfur sérstaklega spenntur fyr- ir því að leika knattspyrnu fyrir framan áhorfendur á nýjan leik. „Stemningin er mjög góð. Við er- um loksins byrjaðir að æfa eðlilega, það er mjög gaman og maður er orð- inn mjög klár í sumarið. Ég held fólkið í landinu sé líka orðið mjög spennt að sjá fótbolta aftur, bæði í Vesturbænum og annars staðar. Skemmtunargildi fótbolta er 70-80 prósent stemningin í stúkunni og íþróttir án áhorfenda eru ekki neitt. Að horfa á fótboltaleik er eins og að horfa á sjónvarpsþátt, en fótbolta- leikur þar sem er mikil stemning í stúkunni er eitthvað miklu meira. Ég sá eitthvað aðeins úr leik í Þýska- landi á dögunum og ég nennti ekki einu sinni að horfa á til enda þegar það voru engir áhorfendur,“ sagði Atli við Morgunblaðið. Erfiður og skrítinn tími Hann viðurkennir að á tímabili hafi verið erfitt að finna hvatningu til að æfa einn á meðan Íslandsmótinu var frestað og íþróttaæfingar liða bannaðar. Var um tíma óvíst hvort Íslandsmótið færi yfir höfuð fram. „Það var frekar erfiður og skrýt- inn tími. Til að byrja með þegar allt var lokað og búið að fresta deild- unum vissi maður ekki neitt; hvorki hvernig þetta yrði eða hvenær. Það var erfitt til að byrja með þegar við máttum heldur ekki æfa sem lið. Það var erfitt að finna hvatninguna og fyrstu vikurnar sem maður æfði einn voru ekki spennandi. Síðan fór mað- ur að kafa eftir hvatningu og náði að rífa sig í gang. Þetta hefur farið stíg- vaxandi síðan þá.“ Stórkostleg upplifun Tímabilið hjá KR byrjar með tveimur stórum leikjum. 7. júní leik- ur liðið við Víking Reykjavík í Meist- arakeppni KSÍ, þar sem Íslands- og bikarmeistararnir eigast við ár hvert. Þá hefst titilvörn liðsins á úti- velli erkifjendanna í Val 13. júní. „Það er frábært að byrja svona. Þetta eru tveir stórir leikir og verða væntanlega mjög skemmtilegir. Von- andi verða leyfðir sem flestir áhorf- endur, þar sem þetta er allt annar leikur þegar það er vel mætt. Leik- irnir um mitt síðasta sumar og út tímabilið voru æðislegir og það var stórkostleg upplifun að fá að spila þá leiki. Fólk mætti í stúkuna þegar við vorum að hita upp og hún var orðin full þegar flautað var á, sem hefur ekki alltaf verið staðan á Íslandi,“ sagði Atli Aðeins meiri pressa Flestir áttu von á að Valur yrði Ís- landsmeistari þriðja árið í röð síðasta sumar, þar sem liðið tefldi fram gríðarlega sterku liði. Það gekk hins vegar lítið hjá Valsmönnum og KR- ingar urðu afar sannfærandi Íslands- meistarar. Liðið endaði með 52 stig, 14 stigum meira en Breiðablik í öðru sæti. Atli segir aðeins meiri pressu á KR fyrir tímabilið í ár, en hann á von á jöfnu Íslandsmóti. „Það er kannski aðeins meiri pressa og aðeins meira horft á okkur, en við förum inn í þetta tímabil eins og síðasta. Við ætl- um að berjast um titilinn. Þetta er einn leikur í einu hjá okkur, það er ekkert flóknara en það. Þetta er eng- in tengiskrift. Þetta er lítil deild, stutt á milli og mörg lið sem eru að fara að gera atlögu að titlinum. Það getur allt gerst í þessu.“ Mikið var rætt og ritað um háan aldur lykilmanna KR síðasta sumar og margir sem efuðust að liðið gæti náð langt vegna þessa. Óskar Örn Hauksson og Pálmi Rafn Pálmason eru nú orðnir 35 ára og Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Gunnar Þór Gunn- arsson eru 34 ára. Meðalaldur byrj- unarliðs KR í úrslitum Reykjavíkur- mótsins gegn Val var yfir 30 ár. Atli hlær að umræðunni og segir eldri leikmenn KR vera klára í slaginn. „Þessir gömlu karlar líta mjög vel út. Ég er sjálfur að verða helvíti gamall en ég er samt enn ungur í reitabolt- um og þegar ungir og gamlir mætast. Þeir sem eru enn eldri en ég líta samt mjög vel út,“ sagði Atli, sem verður þrítugur á næsta ári. Lítið breyttur hópur Leikmannahópur KR fyrir sum- arið er að mestu skipaður sömu leik- mönnum og síðasta sumar. Skúli Jón Friðgeirsson hefur lagt skóna á hill- una, eins og Sindri Snær Jensson. Þá hafa Guðjón Orri Sigurjónsson og Emil Ásmundsson bæst við hópinn, en Emil verður væntanlega ekkert með í sumar þar sem hann sleit krossband í hné í vetur. Atli er ánægður með litlar breytingar á milli ára. „Það er klár plús að leik- mannahópurinn er mjög svipaður. Leikmenn ná mjög vel saman og það er oft vanmetinn hluti fótboltans. Það er mikilvægara en að hafa marga góða einstaklinga. Við erum með frábæra leikmenn og svo er enn betri samstaða í hópnum.“ KR fékk 0:3-skell gegn Stjörnunni í fyrsta æfingaleik liðsins eftir að æf- ingar voru leyfðar án takmarkana á ný. Þrátt fyrir það hefur Akureyr- ingurinn litlar áhyggjur. „Alls ekki neitt. Við erum nýbyrjaðir að æfa og við höfum engar áhyggjur. Þetta kemur mjög fljótt, við verðum betri með hverri æfingunni og verðum klárir fyrir fyrsta leik,“ sagði Atli Sigurjónsson við Morgunblaðið í gær. Morgunblaðið/Hari KR Atli Sigurjónsson í skallaeinvígi gegn Matt Garner í leik á móti ÍBV í Frostaskjólinu í fyrra.  Atli Sigurjónsson segir mörg lið gera atlögu að titlinum í þetta skiptið ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020 Knattspyrnuþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir er á leið inn í tólfta tímabil sitt hjá sænska úrvals- deildarfélaginu Kristianstad. Liðið hafnaði í 7. sæti deildarinnar á síð- ustu leiktíð. Félagið hefur hins veg- ar styrkt leikmannahópinn fyrir komandi tímabil, en Elísabet er í áhugaverðu viðtali við sænska miðil- inn Expressen. „Ég er virkilega ánægð með leikmannahóp Kristian- stad og hann hefur aldrei litið betur út. Við erum með 21 leikmann en all- ir eru á svipuðum stað og það verður ansi krefjandi verkefni að velja byrj- unarliðið.“ sport@mbl.is Hópurinn aldrei jafn sterkur Ljósmynd/Kristianstad Þjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir gjörþekkir sænsku deildina.  Jón Axel Guðmundsson, landsliðs- maður í körfubolta, var valinn íþrótta- maður ársins hjá Davidson-háskól- anum í Bandaríkjunum. Skólinn teflir fram liðum og einstaklingum í hinum ýmsu greinum undir nafninu Davidson Wildcats, en Jón Axel þótti skara fram úr í skólanum í karlaflokki. Jón er einn merkasti íþróttamaðurinn í sögu körfuboltaliðs skólans, en hann var m.a. valinn leikmaður ársins í Atlantic 10 riðlinum á síðasta ári. Þá er hann eini leikmaðurinn í sögu skólans sem hefur skorað 1.000 stig, tekið 500 frá- köst og gefið 500 stoðsendingar.  Tékkinn Filip Jicha hefur verið val- inn þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni í handbolta. Jicha er á sínu fyrsta ári með Kiel, en hann tók við liðinu af Al- freð Gíslasyni eftir síðustu leiktíð. Þjálfarar og fyrirliðar liða í deildinni standa fyrir valinu. Jicha er sá fyrsti í deildinni sem hefur verið kjörinn leik- maður og þjálfari ársins.  Knattspyrnudeild Þórs/KA hefur gengið frá samningi við Berglindi Baldursdóttir og kemur hún til félags- ins frá reiðabliki. Hefur hún spilað átta leiki með Kópavogsliðinu í efstu deild. Berglind, sem er fædd árið 2000, hef- ur leikið með U17 og U19 ára lands- liðum Íslands. Lék hún tvo leiki með Breiðabliki í Pepsi Max-deildinni á síð- ustu leiktíð. Þá hefur hún einnig leikið með Haukum og Augnabliki.  Ármann hefur ákveðið að senda lið til keppni í 1. deild kvenna í körfu- knattleik á næstu leiktíð en það var Karfan.is sem greindi fyrst frá þessu. Ármann var síðast með lið í 1. deildinni árið 2018 en Karl H. Guðlaugsson mun stýra liðinu á komandi keppnis- tímabili. Frestur til þess að skrá lið til keppni rann út um mánaðamótin maí/ júní en Stjarnan og ÍR verða einnig með lið í 1. deildinni. Þá munu Hamar og Þór tefla fram sameiginlegu liði.  Bandaríski knattspyrnumaðurinn Dion Acoff hefur gert samkomulag við Þrótt Reykjavík og mun hann leika með liðinu í sumar. Acoff þekkir vel til hjá Þrótti því hann lék með liðinu tímabilin 2015 og 2016. Þá lék hann með Val 2017 og 2018 og varð Íslands- meistari með liðinu bæði árin. Acoff, sem er 29 ára, á 80 keppnisleiki að baki hér á landi þar sem hann hefur skorað 16 mörk. Þróttur var í harðri fallbaráttu í 1. deildinni síðasta sumar og rétt slapp við fall í lokaumferðinni.  Milos Milojevic, fyrrverandi þjálfari Víkings Reykjavíkur og Breiðabliks, varð um helgina serbneskur meistari með liði Rauðu stjörnunnar en hann er aðstoðarþjálfari liðsins. Dejan Stanko- vic er knattspyrnustjórinn, en hann tók við aðalliði Rauðu stjörnunnar í fyrra eftir að hafa þjálfað þar hjá yngri flokkum. Rauða stjarn- an var í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á þessari leiktíð og var í riðli með Tott- enham, Bay- ern München og Olympia- kos. Liðið er það sig- ursælasta í Serbíu og varð Evr- ópumeistari meistaraliða árið 1991. Eitt ogannað Haukar hafa styrkt sig fyrir frá- kastabaráttuna á næsta keppnis- tímabili á Íslandsmótinu í körfu- knattleik og samið við miðherjann hávaxna Ragnar Nathanaelsson. Ragnar kemur frá Hveragerði og hefur leikið með Hamri, Þór Þor- lákshöfn, Njarðvík og Val hérlendis og var einnig um tíma á Spáni. Ragnar lék með Val á síðasta tíma- bili en var með lausan samning. „Ég hef haft mikinn áhuga á að vera undir handleiðslu Israel Mart- ins frá því hann byrjaði að þjálfa á Íslandi,“ er haft eftir Ragnari í til- kynningu frá Haukum. Ragnar verður á Ásvöllum Morgunblaðið/Hari Miðherji Ragnar Nathanaelsson verður undir körfunni hjá Haukum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.