Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 35 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið GLOBL VIKTOR Hvíldarstóll KRAGELUND OTTO KRAGELUND K371 Kragelund stólar K 406 Stólar Sófasett Borðstofuborð Skenkar/skápar Kommóður/hillur Hvíldarstólar o.m.fl. Borstofuhúsgön frá Casö Mikið úrval af hvíldarstólum með og án rafmagns. CHICAGO hornsófi Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu „Ég er með sítt og þykkt hár og valdi að láta greiða það frá í afslappað tagl til að kjóllinn og skartið fengi að njóta sín. Ég rakst á skóna á Instagram og pantaði að utan, en þeir eru úr fölbleiku satíni og smellpöss- uðu við skartið. Galdrakonurnar hjá Pastel blómum gerðu brúðarvöndinn úr blöndu af blómum frá mér og þeim. Ég hafði þurrkað rós frá brúðkaupsdeginum árinu áður sem ég vildi nota í vöndinn og þær röðuðu í kringum hana dásamlegri blöndu af íslenskum fífum og öðrum hvítum þurrkuðum blómum. Þær útbjuggu síðan barmblóm fyrir Yngva og til að ramma inn heildina fengu börnin okkar fylgihluti í sama stíl, son- ur okkar var með barmblóm og dóttir okkar með hár- skraut úr sömu blómum.“ Hvernig lýsir þú brúðkaupinu þínu? „Við héldum vetrarbrúðkaup, sem er kannski frek- ar óhefðbundið. Við ákváðum að halda veisluna dag- inn fyrir eins árs brúðkaupsafmælið eftir óvænta gift- ingu árið áður um miðjan febrúar. Tímasetningin ákvað sig því dálítið sjálf. Veturinn setti svip sinn á undirbúninginn, til dæmis var rauð viðvörun daginn áður og tvísýnt hvort við næðum að skreyta salinn og hvort vinir og ættingjar kæmust með flugi að utan en það hafðist allt á endanum. Þó að við höfum verið búin að gifta okkur áttum við eftir að setja upp hringa og ákváðum að halda athöfn i kringum það í Dómkirkj- unni í Reykjavík. Það myndast svo töfrandi stemmn- ing í brúðkaupsathöfnum sem setur tóninn fyrir rest- ina af deginum svo við tímdum alls ekki að sleppa því.“ Gestirnir gátu farið í íslenska ilmsturtu Brúðhjónin tóku þá ákvörðun að skipuleggja veisl- una sjálf frá upphafi til enda. „Við vorum með ákveðnar hugmyndir sem okkur langaði að útfæra, bæði hvað varðar veitingar, skreyt- ingar og fleira. Pælingin var að skapa íslenska sum- arstemmningu í miðju skammdeginu. Sumarið áður Magnea var í smart yfirhöfn eftir athöfnina. Enda ein smekklegasta kona landsins að margra mati. Ljósmynd/Sunday & White Fatnaður og fylgihlutir brúðhjónanna var til fyrirmyndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.