Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
D
agurinn byrjaði á undirbúningi
þar sem við vorum með okkar
nánasta fólki í sitthvoru lagi. Ég
var með stelpupartý í Reykjavík
Makeup School, þar sem við hitt-
umst, fengum okkur mimosu og dögurð og
græjuðum okkur fyrir daginn. Maðurinn minn
hélt stráka-pottapartý með hamborgara og bjór
þangað til við mættum í kirkjuna“ segir
Alexandra.
Gifti sig á afmælisdegi afans
Alexandra átti fallega stund með förður sín-
um fyrir athöfnina.
„Pabbi sótti mig og við komum við í kirkju-
garðinum hjá afa, en hann hefði orðið 85 ára á
þessum degi. Kirkjuathöfnin var falleg og
skemmtileg. Við pabbi gengum inn á eftir stelp-
unum okkar, sem voru æðislegar. Ég sá ekkert
nema manninn minn með tár í augunum. Við
höfðum oft grínast með það að við ætluðum ekki
að gráta, en þegar Jóhanna Guðrún byrjaði að
syngja lög sem snerta okkur var nú bara ekki
annað hægt. Eftir athöfnina fórum við í mynda-
töku með Írisi Dögg ljósmyndara og svo lá leið-
in upp í Glersalinn í Kópavogi þar sem við vor-
um með veisluna. Gleði, hlátur, ræður, tár,
söngur, leikir og dans er það sem einkenndi
veisluna og við gætum ekki verið hamingjusam-
ari með þennan dag.“
Við völdum 13. júlí, hreinlega því okkur langaði
að hafa laugardagsbrúðkaup yfir sumartímann.
Við tókum eftir 13. júlí á dagatalinu og þá hringdi
ég í ömmu og spurði hana hvort ég „mætti“ gifta
mig þennan dag. Hún svaraði játandi og sagði að
afi hefði örugglega verið ánægður með það.
Athöfnin fór fram í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Mér hefur alltaf fundist svo heillandi að ganga
Ljósmyndir/Íris Dögg
Alexandra Ósk Ólafsdóttir kírópraktor og Kristófer Númi Hlynsson
knattspyrnumaður og sérfræðingur hjá Nastaq, giftu sig 13. júlí 2019
og var dagurinn í heild sinni draumi líkastur að sögn þeirra.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Fjölskyldan á brúð-
kaupsdaginn en
myndirnar voru
teknar í Þjóðmenn-
ingarhúsinu.
Glæsileg á brúð-
kaupsdaginn.
„Fann
draumakjólinn
í Bretlandi“