Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 41
Rakgefandi
SOS Hydra Refreshing
Hydration Mask frá Clarins
fyllir húðina raka á aðeins 10
mínútum. Formúlan er
krem-gelkennd og kælandi
en eftir notkunina verður
húðin þrýstnari og ljóma-
meiri.
5.899 kr.
Örvandi
Cellular Performance
Mask frá Sensai örvar
blóðflæði húðarinnar og
endurvekur hana. For-
múlan er kremkennd og
mýkjandi en hana má nota
sem upplífgandi andlits-
maska eða leyfa henni að
liggja á húðinni yfir nótt fyrir
enn betri árangur.
9.700 kr.
Nærandi
Algae Mask frá Bláa lóninu
er djúpnærandi þör-
ungamaski sem byggir á ein-
stökum þörungum Bláa lóns-
ins. Maskinn eykur heilbrigði
húðarinnar og ljóma ásamt
því að draga úr sýnilegum lín-
um á húðinni.
9.900 kr.
Hreinsandi
Supermud Clearing Treatment frá
GlamGlow býr yfir djúphreinsandi
kolum, sem nánast sjúga í sig óhrein-
indi, og blöndu sex
endurnýjandi
andlitssýra.
Þannig djúp-
hreinsar for-
múlan svita-
holur og bætir
útlit venju-
legra, bland-
aðra eða ból-
óttra
húðgerða.
9.380 kr.
Endurlífgandi
Advanced Night
Repair Concentrated
Recovery Powerfoil
Mask frá Estée Lauder
virðist gera allt í einu.
Formúlan gerir húðina
bjartari og jafnari ásýnd-
ar ásamt því að veita
henni raka og aukinn þéttleika. Álþynnan kemur í veg
fyrir uppgufun virkra innihaldsefna svo þau ná dýpra
inn í húðina.
18.299 kr. (4 grímur)
Sléttandi
Advanced
Génifique
Hydrogel Melt-
ing Mask frá
Lancôme er öfl-
ug formúla sem
fyllir húðina
raka og nær-
ingu ásamt því að styrkja yfirborð
hennar með háu hlutfalli Bifidus-
extrakts. Þannig verður húðin
þrýstnari, sléttari og mýkri.
2.151 kr. (1 gríma)
Þéttandi
Le Lift Skin-Recovery Sleep
Mask frá Chanel er næturmaski
sem hjálpar húðinni að verða þétt-
ari og sléttari. Með öflugum inni-
haldsefnum á borð við 3.5-
DA og silkipróteinum veit-
ir maskinn húðinni mikla
mýkt og dregur úr sýni-
legum þroskamerkjum.
17.399 kr.
Róandi
Cucumber Face Mask frá
Verandi er bæði kælandi og
róandi fyrir húðina en form-
úlan er byggð á íslenskum
gúrkum. Maskinn býr einnig
yfir vítamínum, steinefnum og
aloe vera sem hefur græðandi
áhrif.
3.751 kr.
Andlitsmaskar gegn
öllum vandamálum
Skjáskot/Instagram.
Karlie Kloss með
andlitsmaskann
frá Estée Lauder.
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 41
Það fylgir brúðkaupsundirbúningnum að koma húðinni í sitt besta stand.
Góður andlitsmaski er alltaf hentugur til að vinna gegn tilteknum húðvanda-
málum eða einfaldlega til að slaka á og njóta eina kvöldstund.
Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com