Morgunblaðið - 19.06.2020, Síða 44

Morgunblaðið - 19.06.2020, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Við bjóðum upp á nýjustu tækni í laser háreyðingu Háreyðing er lasermeðferð sem er framkvæmd í þeim tilgangi að fjarlægja hárvöxt á líkamanum. Varanleg Laser Háreyðing SPARAÐU 15% þegar þú bókar 4. skipti í háreyðingu S tephanie Langridge og eiginmaður hennar Magn- ús Bjarki Snæbjörnsson reka veislusal og fjárbú ásamt foreldrum hans, þeim Snæbirni Smára Þor- kelssyni og Helgu Jóns- dóttur. Fjölskyldan býr að Eyvindartungu sem er fjölskyldubú í næsta nágrenni við Laugar- vatn, sem er ríflega klukkustundar akstur frá Reykjavík. „Áður fyrr var stund- aður hér blandaður bú- skapur en í dag rekum við lítið fjárbú ásamt raf- orkuframleiðslu. Á jörð- inni var fyrst reist raf- stöð 1929 sem hefur nú verið endurnýjuð og í dag eru tvær rafstöðvar hér. Útihús á jörðinni sem nú hafa fengið nýtt hlutverk eru upphaflega fjós, hlaða, súr- heysturn og skemma. Leitast hefur verið við að breyta þeim eins lítið og kostur er, þar sem hluti af fegurð bygginganna er fólginn í tengingu þeirra við for- tíðina. Staðsetningin er mjög svo falleg með Laugarvatnsfjall og Kálfstinda (þar sem Flosa- tind ber hæst) til norðurs og síð- an dásamlegt útsýni til suðurs með Heklu í forgrunni.“ Hlaðan gerð upp fyrir brúðkaupið Stephanie segir að upphaflega hafi ætlunin verið að hreinsa út hluta af hlöðunni fyrir brúðkaup þeirra Magnúsar. „Verkefnið vatt síðan fljótlega upp á sig þannig að það endaði með því að við héldum 120 manna brúðkaupsveislu í hlöðunni! Faðir brúð- gumans, húsasmiðurinn Snæbjörn, var fullur innblást- urs þegar kom að endurbótum húsanna, enda hafði Ljósmyndir/Kaja Balejko „Sveita- brúðkaup er frábær upplifun fyrir alla“ Stephanie Langridge kom upp- haflega til Íslands frá Ástralíu til að starfa sem leiðsögumaður á jökl- unum. Örlögin tóku í taumana og hún giftist Magnúsi Bjarka eigin- manni sínum í hlöðu í rómantísku sveitabrúðkaupi að Eyvindartungu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Brúðhjónin eru náin og voru mjög ham- ingjusöm á brúð- kaupsdaginn. Hlaðan var gerð upp fyrir brúðkaupið. Gömul ljósmynd af Eyvindartungu frá Jóni Teitssyni, fósturföður Helgu. Kindurnar í sveitinni eru merktar honum, Jón T, í dag. Fyrir brúðkaupið var öllu komið fyrir á fallegan hátt í hlöðunni. Stephanie og Magnús giftu sig í fallegu sveitabrúðkaupi að Eyvindartungu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.