Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 45
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 45 hann lengi leitað að af- sökun til að leggjast í það verkefni. Við feng- um dásamlegt veður eins og oft er á Laug- arvatni; logn og blíðu og um kvöldið tóku við leiftrandi norðurljós gestum okkar til mik- illar gleði. Sérstaklega erlendum gestum sem margir hverjir höfðu ekki séð slíkt áður.“ Hvernig er að búa á Íslandi? „Mér finnst ég vera búin að festa rætur hér á Íslandi og finnst skemmtilegt hversu mikil áhrif veðurfarið hefur á alla hér og hversu margbreytilegt lífið er fyrir áhrif árstíðanna. Eins og áður sagði kom ég upphaflega hingað til lands til að vinna uppi á jöklunum. Ég hef því verið búsett í Öræfum undanfarin þrjú ár og hef kynnst þar dásamlegri ósnortinni náttúru auk alls konar veðurs. Eftir að ég hef kynnst betur íslenskum lífsháttum hef ég lært að meta siði og menningu Íslendinga í gegnum mína íslensku fjölskyldu og haft gaman af.“ Hvað er einstakt við sveitabrúðkaup? „Sveitabrúðkaup er frábær upplifun fyrir alla veislugesti, ekki einungis fyrir brúð- hjónin sjálf. Þetta er kjörið tækifæri til að halda veislu í nágrenni við heimili þitt. Ekki partí sem einungis stendur yfir í nokkrar klukkustundir, heldur dýrðlega veislu fyrir gestina þína sem getur stað- ið yfir heila helgi. Það er gott að hafa nægjanlegt rými og nálægð við nátt- úruna fyrir sjálfan þig og fjölskyld- una. Gott tækifæri til að hægja að- eins á sér og njóta.“ Hefur hlaðan verið notuð fyrir fleiri brúðkaup? „Fyrsta brúðkaupið hér var brúð- kaupið okkar og okkur óraði ekki fyrir því hvert framhaldið yrði svo. Búið er að bóka þrjú brúðkaup í haust og svo nokkur á næsta ári sem ekki er búið að stað- festa endanlega. Við höfum fengið fjölda fyr- Fjöldskyldan að Eyvindartungu. Ffrá vinstri: Snæbjörn Smári Þorkelsson, Helga Jóns- dóttir, Magnús Bjarki Snæbjörnsson og Stephanie Langridge. Gestirnir skemmtu sér konunglega í brúðkaupinu. irspurna og reiknum með að fara á fullt með þetta sumarið 2021.“ Aðeins meira lagt í brúðkaup í Ástralíu Hverjar eru brúðkaupshefðirnar í þínu landi? „Það tíðkast í Ástralíu að fólk gifti sig áður en það fer að eignast börn. Það er litið á giftinguna sem skref sem tekið er áður en fólk fer að kaupa sér húsnæði eða eignast börn. Giftingar í Ástralíu eru oftast fjölmenn- ari og dýrari en þær sem ég hef séð hér á landi. Í kringum 3-7 milljónir íslenskra króna. Það er lögð mikil áhersla á að veislan sé margmenn, íburðarmikil og umfram allt fullkomin í alla staði. Ég kann betur við þetta persónulega, meira tengt náttúrunni og jafn- framt óheflaðra þema sem ég hef séð hér á Íslandi.“ Hvað ætti fólk að hafa í huga við undirbúning brúð- kaups í hlöðu? „Eins og áður sagði er hlaðan okkar í ríflega klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. Fólk verður að hafa það í huga og því að athuga með gist- ingu í nágrenninu eða að öðrum kosti hvernig það ætl- ar að komast til baka til Reykjavíkur. Við erum með lítinn sumarbústað til útleigu hér en ef veislugestir hafa ekki aðgang að sumarbústað eða einhverju slíku hér nálægt eða ef von er á mörgu fólki eru gistimögu- leikar í nágrenninu. Þar má t.d. nefna Héraðsskólann sem næsti nágranni okkar. Þegar við giftum okkur skipulögðum við nokkrar ferðir til baka til Reykja- víkur með smárútum. Þegar kemur að því að skreyta hlöðuna þarf ekki svo mikið til, þar sem hlaðan sjálf er mjög skemmtileg ein og sér. Að mínu mati þarf að hafa í huga allt umhverfi hlöðunnar og hvað gestirnir myndu vilja gera. Hægt er að laga klæðnað veislu- gesta að því sem gera skal, t.d. smábrennu, litlum göngutúrum um nágrennið eða einhverjum athöfnum utandyra. Sveitabrúðkaup þarf ekki að vera óheflað, sveitalegt eða gamaldags. Það getur verið mjög svo nýtískulegt og smart með því einfaldlega að breyta nokkrum vegg- og borðskreytingum og breyta þannig ásýnd salarins.“ Mælir með að hafa góðan veislustjóra Áttu góð ráð fyrir þá sem eru að undirbúa brúðkaup núna? „Ég mæli með að hafa góðan veislustjóra. Við vor- um með bróður Magnúsar sem veislustjóra um kvöld- ið. Hann var bráðfyndinn og hélt uppi fjörinu. Eins finnst mér áhugavert að hafa söng og tónlist. Mér fannst mjög skemmtilegur söngurinn á þorra- blótinu okkar. Í brúðkaupinu sungum við í súrheys- turninum, en hann hefur einstakan og mjög skemmti- legan hljómburð. Ef þið eruð sjálf að skipuleggja brúðkaupið ykkar er gott að vera með tékklista á netinu, svo hægt sé að stroka út jafnóðum ef eitthvað passar ekki við veisl- una. Síðan er gott að yfirfara þennan lista reglulega frá því þremur mánuðum til viku fyrir brúðkaupið. Þegar kemur að skreytingum finnst mér mikilvægt að hafa í huga að vera með skreytingar sem hægt er að nýta eftir brúðkaupið eða selja að loknu brúðkaup- inu ef halda á kostnaði í lágmarki. Ég fann helling af dóti á Facebook-síðunni Sölusíða – brúðkaupstengdir hlutir og í Góða hirðinum. Eins langar mig að nefna að ég mæli með að velja ljósmyndara með það í huga – hvernig ljósmyndir hann tekur þegar þú ert ekki með honum. Ég valdi að fá Kaju til að taka ljósmyndir, vegna þess að í brúðkaupi vina okkar náði hún að fanga fallegar stundir meðal gestanna einnig. Það var mikilvægt fyrir okkur að ná upplifun vina okkar og fjölskyldu.“ Að taka daginn ekki of hátíðlega Hvað ætti fólk að forðast? „Ekki vera sjálf með allt á herðunum á sjálfan brúð- kaupsdaginn. Við Magnús eyddum lunganum af fimm mánuðum ásamt fjölskyldunni í að gera upp hlöðuna. Skreytingum og öðrum slíkum undirbúningi lauk á síðustu stundu. Ef þið hafið möguleika á slíku, látið þá einhverja fjölskyldumeðlimi eða vini sjá um lokaund- irbúninginn eða ráðið einhvern fagmann í verkið.“ Að lokum segir Stephanie að vanalega reddist hlutir fyrir brúðkaupið. „Það er viðbúið að eitthvað fari úrskeiðis. Sem dæmi var seinkun á flugi foreldra minna þannig að þau komu ekki fyrr en þremur klukkustundum fyrir giftingarathöfnina. Ljós og kerti geta verið útbrunnin áður en myndir eru teknar. Einhver gæti gleymt ræðunni sinni eða orðið ofurölvi. Það verður bara að taka hlutunum eins og þeir eru og hlæja svo að öllu saman eftir á.“ Hlutirnir úr sveit- inni eru notaðir til skrauts í sveita- brúðkaupum sem haldin eru í hlöðu. Stephanie er ánægð í íslensku sveitinni en hún er fædd og uppalin í Ástralíu. Eldhústöfrar ehf. - Opinber dreifingaraðili Vorwerk á Íslandi Síðumúla 29 108 Reykjavík Sími 696 7186 info@eldhustofrar.is eldhustofrar.is Thermomix á Íslandi thermomixiceland Notkunarmöguleikar 20 hefðbundinna heimilistækja í einu tæki sem gerir nú öllum kleift að elda og baka frá grunni á einfaldan, aðgengilegan og skemmtilegan hátt. Kynnið ykkur brúðkaupstilboðið okkar Snjalltæki í eldhúsið sem farið hefur sigurför umheiminn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.