Morgunblaðið - 13.07.2020, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 3. J Ú L Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 163. tölublað 108. árgangur
TVEGGJA VIKNA
EINANGRUN
Í KÍNA
VAR Í DÁI Í 35
KLUKKU-
STUNDIR
VERÐMÆTA-
SKÖPUN SEM
MUNAR UM
GEFUR ÚT PLÖTU 29 MATVÆLAFRUMKVÖÐULL 12DETTIFOSS HEIM 6
Margir fylgdust með söltunarsýningu Síldarminjasafnsins á
Siglufirði um helgina, þar sem síldarstúlkur staðarins vöktu
upp gamla andann af síldarplönunum og söltuðu síld af mikilli
kappsemi, enda byggðu launin á afköstum en ekki tímavinnu í
þá gömlu daga. Um 200 manns sóttu sýninguna, að sögn Anitu
Elefsen, safnstjóra Síldarminjasafnsins.
„Það var mikið fjör, þær brugðu á leik á meðan á söltuninni
stóð og létu til sín taka; hrópuðu og kölluðu eftir salti og nýj-
um tunnum, sem vakti mikla lukku,“ segir Anita.
Síldarstúlkur hrópuðu og kölluðu eftir salti á síldina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bryndís Har-
aldsdóttir, þing-
maður Sjálf-
stæðisflokks,
bindur vonir við
að beiðni um
skýrslu um
dánaraðstoð
verði uppfyllt af
heilbrigðis-
ráðherra á yfir-
standandi lög-
gjafarþingi. Farnist heilbrigðis-
ráðherra að leggja fram skýrslu
hyggst hún leggja fram beiðnina í
þriðja skipti á nýju löggjafarþingi.
Í kjölfar þingsályktunartillögu
Bryndísar og fleiri þingmanna var
málefnið umdeilt og taldi embætti
landlæknis vert að íhuga hvort mál-
ið væri nógu brýnt til að hafa for-
gang gagnvart öðrum málum á
hendi heilbrigðisráðherra.
Ingvi Hrafn Jónsson fjölmiðla-
maður vakti athygli á því í viðtali í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
um helgina að löggjöf um dánar-
aðstoð skorti hér á landi. »2
Tvisvar verið beðið
um skýrslu á Alþingi
um dánaraðstoð
Bryndís
Haraldsdóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Horfa ætti til þess að flýta fram-
kvæmdum við Borgarlínu og aðrar
samgöngubætur. Við núverandi að-
stæður í efnahagslífinu er slíkt kjörið.
Þetta segir Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri í Reykjavík, í viðtali við
Morgunblaðið í dag.
Með samþykkt Alþingis á nýrri
samgönguáætlun á dögunum er hægt
að hefjast handa um gerð Borgarlín-
unnar, en í fyrsta áfanga er leið hrað-
fara strætisvagna úr miðborg
Reykjavíkur í Höfðahverfið og í
Hamraborg í Kópavogi. Borgarstjóri
væntir að hönnun þessara fram-
kvæmda ljúki næsta vetur og að
vagnarnir verði
komnir á leið eftir
þrjú ár hið mesta.
„Reyndar horfi
ég til þess að sam-
gönguverkefnun-
um, sem eiga að
kosta 120 millj-
arða í heild og
vinnast á 15 árum,
verði flýtt,“ segir
borgarstjóri.
Með því að auka vægi almennings-
samgangna í umferðinni segir Dagur
að rýmkist um aðra umferð á sam-
gönguæðum höfuðborgarsvæðisins.
Einkabíllinn fái meira rými, en einnig
sé skapað svigrúm fyrir þá sem
ganga, hlaupa eða fara leiða sinnar á
reiðhjóli. Deilibílar eigi sömuleiðis að
vera sjálfsagður samgöngukostur. „Í
framtíðinni verða ferðavenjur flestra
meiri blanda ólíkra kosta en nú. Því er
okkur nauðsynlegt að komast út úr
þeim skotgrafahernaði að líta á að
einhver einn ferðamáti skuli ráða,“
segir Dagur.
Stöðu borgarsjóðs segir borgar-
stjóri vera sterka. Hins vegar séu
blikur á lofti ef kórónuveirufaraldur-
inn dragist á langinn. Í þeim aðstæð-
um sé niðurskurður í rekstri borgar-
innar eða framkvæmdastopp ekki
svarið. Mikilvægt sé að opinberir að-
ila taki nú höndum saman og fleyti at-
vinnulífinu yfir erfiðan hjalla.
Vill að Borgarlín-
unni verði flýtt
Skotgrafahernaður um áherslur í samgöngumálum víki
MNiðurskurður ekki svarið »10
Dagur B.
Eggertsson
Tónlistargeirinn hér á landi varð fyr-
ir þungum búsifjum þegar kórónu-
veirufaraldurinn skall á. Tekjumögu-
leikar þeirra sem hafa tónlist að
atvinnu með einum eða öðrum hætti
nánast þurrkuðust út á einni nóttu í
marsmánuði síðastliðnum.
Út er komin skýrsla þar sem áhrif
faraldursins á tónlistargeirann eru
tíunduð. Í skýrslunni kemur m.a.
fram að þær aðgerðir sem stjórnvöld
gripu til í faraldrinum, m.a. hluta-
bótaleiðin, nýttust tónlistargeiranum
illa.
Lagðar eru fram nokkrar tillögur
til að koma betur til móts við tón-
listarmenn. »14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Harpa Tónlist flutt fyrir tómu húsi.
Þungar
búsifjar